Davíð fær 80 prósent af launum forsætisráðherra í eftirlaun

Rúmlega 1,1 milljón króna af 3,3 millj­óna króna mán­að­ar­launum Davíðs Odds­sonar eru eft­ir­laun vegna starfa hans sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann seg­ist ekki fá nema 70 þús­und eftir skatta í eft­ir­laun vegna starfa sem seðla­banka­stjóri.

Davíð Oddsson er í framboði til forseta Íslands. Samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans mælist fylgi hans um 20 prósent.
Davíð Oddsson er í fram­boði til for­seta Íslands. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist fylgi hans um 20 pró­sent. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, fær 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun. Hann fær hærra hlut­fall af launum for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun en aðrir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herrar sem þeirra njóta sökum þess að hann sat mun lengur en þau á þeim stóli. Davíð segir að trölla­sögur um mikil við­bót­ar­eft­ir­laun hans vegna starfa fyrir Seðla­banka Íslands séu ekki sannar. Önnur eft­ir­laun hans lúti líf­eyr­is­reglum og hann fái sem dæmi um 70 þús­und krónur greiddar eftir skatta í líf­eyr­is­sjóðs­laun sem fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri. Þetta kemur fram í mynd­böndum sem fram­boð Davíðs, en hann sæk­ist eftir því að verða næsti for­seti Íslands, hefur hlaðið upp á Youtube.

Samkvæmt tekju­blaði Frjálsrar versl­unar, sem gefið var út í júlí 2015, var Davíð með um 3,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­tekjur á árinu 2014. Þær greiðslur sam­an­standa af launum hans fyrir að rit­stýra Morg­un­blað­inu og eft­ir­launum hans. Samkvæmt úrskurði Kjara­ráðs frá því í nóv­em­ber 2015 eru laun for­sæt­is­ráð­herra 1.391 þús­und krónur og því fær Davíð 1.113 þús­und krónur í for­sæt­is­ráð­herra­eft­ir­laun.

[adspot]

Í þeim mynd­böndum sem fram­boð Davíðs birtir, sem eru alls 30 tals­ins, svarar Davíð ýmsum spurn­ingum um atriði úr for­tíð­inni sem hann telur að rangt sé farið með, sýn sína á for­seta­emb­ættið og hvað honum finn­ist um ýmsa hluti, til dæmis jafn­rétti kynj­anna.

Í einu mynd­band­inu segir Davíð að það hafi verið þing­manna­nefnd, ekki hann sjálfur, sem hafi ákveðið að gera laga­breyt­ingu um eft­ir­laun þing­manna og ráð­herra. Formenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafi notið þeirra helst, enda hafi lögin þýtt að laun þeirra hækk­uðu sam­stundis um 50 pró­sent. Aðrir for­sæt­is­ráð­herra sem nutu eft­ir­launa sam­kvæmt lög­unum hafi verið Þor­steinn Pálsson, Geir. H Haarde, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Halldór Ásgríms­son, sem nú er lát­inn.

Þau fengu öll greidd 70 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra hverju sinni, en Davíð 80 pró­sent sökum þess hversu lengi hann sat á þeim stóli. Í lok eins mynd­bands­ins segir Davíð að ein­hvern tím­ann verði sú saga sögð hver aðdrag­and­inn af því að lögin voru sett var. Sú saga er þó ekki sögð í umræddum mynd­böndum.

Eft­ir­launa­lögin umdeildu, sem hækk­uðu eft­ir­laun fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­manna umtals­vert, voru sett árið 2003. Þau voru afnumin í mars 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár