Mæla með samstarfi við EFTA í kjölfar Brexit

Höfundar skýrslu á vegum sviss­nesku hug­veit­unnar Foraus mæla með því að Bretland sæki um sam­starfs­að­ild við EFTA í kjöl­far útgöngu þeirra úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Samstarfsaðild við EFTA gæti verið besta viðbragð Bretlands við úrsögn þeirra úr ESB.
Sam­starfs­að­ild við EFTA gæti verið besta við­bragð Bret­lands við úrsögn þeirra úr ESB. Mynd: EPA

Bretar ættu að íhuga sam­starfs­að­ild við EFTA í stað þess að ganga í sam­tökin, en þannig gætu þeir við­haldið sjálf­stæða inn­flytj­enda­stefnu ásamt því að þurfa ekki að semja frí­versl­un­ar­samn­inga við mörg lönd upp á nýtt. Þetta eru nið­ur­stöður úr skýrslu á vegum sviss­nesku hug­veit­unnar Foraus. Fari bresk stjórn­völd eftir ráð­legg­ingum skýrslu­höf­unda er lík­legt að Íslend­ingar sleppi við kostn­að­ar­samt samn­inga­ferli.

Hug­veitan Foraus, sem sér­hæfir sig í utan­rík­is­málum Sviss­lend­inga, gaf út skýrsl­una The Option of Association í júní síð­ast­liðnum. Í skýrsl­unni eru lagðar fram ástæður hvers vegna Bretland ætti að sækja um sér­staka sam­starfs­að­ild (Associate mem­bers­hip) að EFTA í stað þess að ganga í sam­tökin, en Sviss og Noregur hafa lagst gegn fullri aðild Bret­lands að þeim. Skýrslu­höf­undar eru David Phinnemore, pró­fessor við Belfast-háskóla, og Cenni Najy, stjórn­mála­fræð­ingur og stefnu­mót­un­ar­ráð­gjafi Foraus.

EFTA-samstarf myndi eyða óvissu

Í skýrsl­unni segir að mikil óvissa hafi komið upp í kjöl­far úrsagnar Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Að öllu öðru óbreytu mun úrsögnin leiða til þess að Bretar missa frí­versl­un­ar­samn­inga við 45 lönd utan ESB.

Með sam­starfi við EFTA gæti Bretland hins vegar náð að tryggja frí­versl­un­ar­samn­inga milli fjölda landa utan Evrópu, en meðal þeirra 37 landa sem EFTA hefur gert samn­ing við eru mik­il­væg við­skipta­lönd Bret­lands, eins og Singapúr og Suður-Kórea.

Enn fremur, ef Bretland vill fá aðgang að innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins, þá er EFTA-sam­starf nauð­syn­legur und­an­fari. Í skýrsl­unni eru einnig færð rök fyrir því að sam­starfið hún myndi efla þátt­töku Bret­lands í alþjóða­sam­fé­lag­inu.

Helsti kostur EFTA-aðildar er þó að mati skýrslu­höf­unda að þeirri óvissu sem ríkt hefur í Englandi vegna fyr­ir­hug­aðrar útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu verði eytt. 

[adspot]

Byrjum á samstarfsaðild

Þrátt fyrir áður­nefnda kosti við EFTA-aðild mæla höf­undar skýrsl­unnar ekki með fullri inn­göngu inn í EFTA-sam­bandið. Hins vegar telja þeir svo­kall­aða sam­starfs­að­ild við EFTA, líkri þeirri sem Finnland hafði á árunum 1961-1986, vera heppi­legri.

Einn af kostum sam­starfs­að­ildar er sá að með henni gætu Bretar stjórnað eigin landa­mærum og þyrftu ekki að standa við skuld­bind­ingar EFTA-ríkj­anna um frjálst flæði vinnu­afls. Sam­starfs­að­ildin er einnig sveigj­an­legri, en þannig hefðu Bretar frelsi til þess að velja frí­versl­un­ar­samn­inga EFTA-ríkj­anna við þriðja aðila.

[links]Án fullrar aðildar hefðu Bretar þó ekki atkvæða­rétt í sam­tökum, en myndu hins vegar öðl­ast þátt­töku­rétt í stofn­anir þeirra. Að mati skýrslu­höf­unda er sam­starfs­að­ild ákjós­an­legt byrj­un­ar­stig, en sveigj­an­leiki fyr­ir­komu­lags­ins býður upp á mögu­leika á fullri aðild að EFTA eða inn­göngu í Evrópska efna­hags­svæðið seinna. Með sam­starfs­að­ild gæti dregið úr núver­andi and­stöðu EFTA-aðildar, en norsk og sviss­nesk yfir­völd hafa bæði lýst yfir áhyggjum þess efnis að Bretland verði full­gildur með­limur sam­tak­anna.

Meiri hagsmunir en í Icesave

Kjarninn greindi frá ummælum Heiðrúnar Lind Mart­eins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra SFS, á dög­unum þar sem hún sagði hags­muni Íslands í Brexit vera meiri en í Icesave. Hags­mun­irnir eru fólgnir í sterku við­skipta­sam­bandi land­anna tveggja, en 11% af öllum vöru- og þjón­ustu­við­skiptum Íslands er við Bretland. Verði Bretland ekki partur af Evrópska efna­hags­svæð­inu, EFTA eða ESB mun núver­andi frí­versl­un­ar­samn­ingur falla úr gildi. Fari rík­is­stjórn Bret­lands hins vegar að til­lögum skýrslu­höf­unda er mögu­leiki á að hann haldi og að engin þörf verði á nýjum samn­ingi með hugs­an­lega kostn­að­ar­sömu samn­inga­ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár