Ísland á mjög mikilla hagsmuna að gæta í utanríkisviðskiptum við önnur lönd í heiminum. Íslenskur útflutningur er ekkert sérstaklega fjölbreyttur og byggist að mestu leyti upp á þremur stoðum; Sjávarútvegur, áli og ferðaþjónustu.
Sé litið marga áratugi aftur í tímann þá ber útflutningur sjávarafurða hitan og þungann af viðskiptum Íslendinga við umheiminn. Útflutningur áls og járnblendis bættist við á síðasta áratug 20. aldarinnar og hefur sá geiri vaxið síðan. Á undanförnum árum hefur svo gríðarleg aukning ferðamanna hér á landi stækkað kökuna enn frekar og myndar sá geiri nú stærstan hluta utanríkisviðskipta Íslands
Á aðeins örfáum árum hefur ferðaþjónustan orðið lang stærsti liður útflutnings vöru og þjónustu frá Íslandi. Árið 2013 áttu ferðaþjónustan og sjávarútvegurinn svipað stóra hlutdeild í útflutningi, eða um 26 prósent. Útflutningur iðnaðarvara var þá stærsti liðurinn, tæplega 30 prósent.
Aðeins þremur árum síðar árið 2016 var ferðaþjónustan orðin lang stærsti geirinn í þessum samanburði og bar ábyrgð á tæplega 40 prósent útflutnings vöru og þjónustu. Sjávarútvegurinn var 19,5 prósent og útflutningur iðnaðarvara tæplega 23 prósent.
Helstu viðskiptalönd Íslands eru í næsta nágrenni. Þau eru nær undantekningarlaust það sem í daglegu tali eru kölluð Vesturlönd og eru lang flest á norðurhveli Jarðar.
Þrjú lönd skera sig úr, það eru Bandaríkin, Holland og Bretland. Utanríkisviðskiptin við þessi lönd námu meira en 200.000 milljónum króna árið 2015.
Þegar rýnt er í samanlagðan út- og innflutning vöru og þjónustu við þrjú stærstu viðskiptalönd Íslands sést að meirihlutinn ræðst af útflutningi, eða ríflega 62 prósent.
Útflutt þjónusta, þe. ferðaþjónusta, er stærsti hluti viðskiptanna við Bandaríkin. Vöruútflutningur er langstærsti hluti viðskipta við Holland, enda fer nær allt álið sem framleitt er hér á landi í gegnum stórskipahafnir þar í landi.
Viðskiptin við Bretland byggjast hins vegar að miklu leyti upp á útflutningi sjávarafurða. Breskir ferðamenn eru einnig fjölmennir hér á landi.
Viðskiptin við Bretland námu tæplega 12 prósent af öllum utanríkisviðskiptum Íslands árið 2015. Stærstur hluti viðskiptanna er útflutningur vöru og af þeim viðskiptum hefur sjávarútvegur mestra hagsmuna að gæta. Tæplega 67 prósent alls útflutnings til Bretlands voru sjávarafurðir.
Brexit hefur þegar haft mikil áhrif
Áhrif ákvörðuna Breta komu fram strax og ákvörðunin hafði verið tekin. Hún kom mörgum stjórnmálaskýrendum á óvart, enda höfðu kannanir bent til þess að meirihluti fólks mundi vilja að Bretland yrði áfram í Evrópusambandinu.
Gengi breska pundsins tók skarpa dýfu í kjölfar þess að breska þjóðin kaus að ganga úr Evrópusambandinu í júní 2016. Á línuritinu hér að ofan má sjá gengi dollars í pundum.
Gagnvart íslenskri krónu hafa þessir tveir gjaldmiðlar, breskt pund og Bandaríkjadalur, veikst nokkuð á undanförnum misserum. Breska pundið hefur hins vegar veikst mun meira, gagnvart æ sterkri íslenskri krónu, en bandaríski dollarinn.
Brexit setur stórt strik í reikninginn
Í júní í fyrra ákvað breska þjóðin að segja sig úr Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bretland hefur verið aðili að ESB síðan árið 1973 og hefur verið aðili að sameiginlegum markaði Evrópu. Ísland er einnig aðili að þeim markaði í gegnum samninginn um evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn). Auk gamals fríverslunarsamnings síðan 1972, sem Ísland er aðili að í gegnum EFTA-samstarfið, er EES-samningurinn eini ramminn um viðskipti Íslands og Bretland.
Útganga Bretlands úr ESB getur þess vegna haft mikil áhrif á viðskipti milli Íslands og Bretlands. Íslenskt efnahagslíf þess vegna mikilla hagsmuna að gæta í samningaviðræðum ESB og Bretlands.
Í fimmtu grein Lisbon-sáttmálns segir að aðildarríki geti sagt sig úr Evrópusambandinu. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, virkjaði þessa grein sáttmálans í lok mars á þessu ári og setti um leið skeiðklukkuna í gang. Hún má, samkvæmt þessu sama ákvæði, tifa í tvö ár áður en Bretland er ekki lengur hluti af samþykktum og sáttmálum Evrópusambandsins. Jafnvel þó ekki verði búið að semja um hvernig útgöngunni verði háttað.
Samningaviðræður milli ESB og Bretlands hófust svo í lok síðasta mánaðar. Niðurstöður þessara samningaviðræðna skipta íslenskan efnahag miklu máli, enda eru engir aðrir fríverslunarsamningar í gildi við Bretland aðrir en EES-samningarnir.
Mýkri nálgun líklegri
Eftir þingkosningarnar í Bretlandi 8. júní síðast liðinn hafa líkurnar á mýkri sambandsslitum Bretlands og ESB aukist nokkuð. Í kosningunum hlaut flokkur forsætisráðherrans May mun lélegri kosningu en áætlað hafði verði þegar boðað var til kosninganna. Kosningarnar áttu að styrkja umboð May í samningaviðræðunum við ESB og tryggja stuðning þingsins við skýran aðskilnað við meginlandið.
Samtök atvinnulífsins (SA) hafa greint mögulegar sviðsmyndir sem gætu skapast við Brexit í mars 2019. Greiningin var kynnt á fundi í síðustu viku og er hún aðgengileg á vef SA. Tvær leiðir eru færar.
Mýkri nálgun
- Bretlandsmarkaður yrði ennþá hluti af innri markað
- Evrópusambandsins.
- Gagnkvæmur staðfesturéttur fyrirtækja milli Bretlands og ríkja
- ESB.
- Frjálst flæði fjármagns milli Bretlands og ríkja ESB.
- Frjálst flæði vinnuafls milli Bretlands og ríkja ESB með
- minniháttar takmörkunum.
- Gagnkvæm viðurkenning á réttindum milli Bretlands og ríkja
- ESB.
- Bretland myndi áfram þurfa að greiða framlög til fjárlaga ESB.
- Bretland myndi áfram þurfa að taka upp löggjöf ESB.
- Bretland hefði takmörkuð áhrif á stefnu ESB.
- Bretland hefði takmörkuð áhrif á þróun löggjafar ESB.
Skýr aðskilnaður
- Bretland verður ekki lengur hluti af innri markað
- Evrópusambandsins.
- Bresk fyrirtæki og breskir þegnar munu ekki lengur njóta
- ávinnings af fjórfrelsi Evrópska efnahagssvæðisins, þ.e. frjálsu
- flæði vara, þjónustu, fjármagns og vinnuafls.
- Bretar búsettir innan ESB og þegnar ESB-ríkja búsettir í Bretlandi
- munu þurfa að sérstakt leyfi til dvalar.
- Bretland mun ekki þurfa að taka upp löggjöf ESB.
- Bretland öðlast fullt frelsi til að mynda eigin stefnu og setja eigin
- löggjöf um skatta, vinnulöggjöf, fjárfestingar innanlands og
- eignarhald.
- Bretland mun þurfa að gera fríverslunarsamning við ESB um
- markaðsaðgang fyrir vörur og þjónustu.
- Bretland mun þurfa að sækja á ný um fullgilda aðild að WTO.
Eftir því hver niðurstaða samningaviðræðnanna verður, þá eru fjórar sviðsmyndir sem standa Íslendingum til boða eftir útgöngu Bretlands.
Ef mjúka nálgunin nær fram að ganga verður Bretland hugsanlega ennþá hluti af sameiginlega markaði Evrópusambandsins og Ísland nýtur enn þeirra kjara í Bretlandi og fyrir Brexit.
Ef aðskilnaðurinn verður ekki eins mjúkur gæti Bretland kosið að semja við EFTA um fríverslun við Ísland, Liechtenstein, Sviss og Noreg. Ísland og Bretland gætu einnig gert tvíhliða samning um áframhaldandi viðskiptasamband.
Nái engin þessara leiða fram að ganga gilda WTO-reglur um utanríkisverslun milli landanna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir