Jóhanna: Forsætisráðherra skuldar þjóðinni að fara frá strax

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verði strax að segja af sér og rík­is­stjórnin öll verði að fara frá. Þetta segir hún á Facebook-síðu sinni.

„Það er ekki bara trú­verð­ug­leiki þjóð­ar­innar gagn­vart alþjóða­sam­fé­lag­inu sem er í húfi - heldur mun þjóðin aldrei líða það sem ráða­menn hafa orðið upp­vísir að. Það hefur mynd­ast algjör trún­að­ar­brestur milli rík­is­stjórn­ar­innar og fólks­ins í land­inu,“ segir hún.

Jóhanna segir að upp­þot og reiði í sam­fé­lag­inu verði ekki minni nú en í hrun­inu. „Fólk vill ekki hafa for­sæt­is­ráð­herra sem það þarf að skamm­ast sín fyrir - for­sæt­is­ráð­herra sem upp­vís hefur orðið að blekk­ingum og óheið­ar­leika - for­sæt­is­ráð­herra sem lýst hefur van­trausti á gjald­mið­il­inn og íslenskt efna­hags­um­hverfi með því að fela fjár­magn sitt í skatta­skjóli - for­sæt­is­ráð­herra sem virð­ist ekki skilja hvað sið­ferði er og vill fá sjálfur að setja sér sínar eigin siða­reglur - for­sæt­is­ráð­herra sem er nú settur í hóp með sið­spilltum valda­mönnum í heim­inum. For­sæt­is­ráð­herra skuldar þjóð sinni að fara frá strax og koma í veg fyrir upp­reisn í sam­fé­lag­inu.“

Seldi á einn dollara

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seldi sam­býl­is­konu sinni, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur, 50 pró­senta hlut sinn í Wintris árið 2009, 31. des­em­ber. Hann gerði aldrei grein fyrir þessum eignum í hags­muna­skrán­ingu. Kaup­verðið var einn doll­ari. Engar upp­lýs­ingar þurfti að gefa upp um félagið þar sem kaupin fóru fram fyrir ára­mótin, því ný lög tóku gildi 2010. Þetta kom fram í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur er nú á RÚV um umfangs­mesta gagna­leka í sög­unni. Elstu gögnin eru frá 1977 og nýj­ustu frá des­em­ber í fyrra. Meira en 11 millj­ónir skjala er að finna í gögn­unum, sem koma frá einni valda­mestu lög­fræði­stofu í Panama, Mossack Fonseca.

Sig­mundur Davíð er þar á lista ásamt 11 öðrum þjóð­ar­leið­togum, til dæmis Sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani, sem Íslend­ingar þekkja í tengslum við Al-Thani málið, og Pútín Rúss­lands­for­seti.

Eins og greint hefur verið frá er Wintris skráð á Tortólu. Svo virð­ist sem öll skrán­ing í kring um félagið sé á reiki, og bendir margt til að eigna­skrán­ingin sé dag­sett aftur í tím­ann. Mikið er lagt á sig að fela eigna­hlut­inn í Wintris og þarf maður að grafa tölu­vert til að finna hina raun­veru­legu eig­endur, Önnu Sig­ur­laugu og Sigmund Davíð. Wintris átti kröfur í bú Glitnis. Sig­mundur Davíð skráði aldrei tengsl sín við Wintris í hags­muna­skrán­ingu á Alþingi og ekk­ert bendir til þess að eign­ar­haldið hafi verið rangt skráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár