Framsóknarmenn líta til þess að draga úr verðtryggingu í stað afnáms

Tveir þing­menn Fram­sóknar hafa birt grein þar sem þau segja nauð­syn­legt að minnka vægi verð­trygg­ingar ef ekki verði hægt að afnema hana. Þau vilja færa kostnað yfir á lán­veit­endur, sem eru að mestu í eigu rík­is­ins og sjóð­fé­laga líf­eyr­is­sjóða.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segja nauð­syn­legt að skoða allar hug­myndir um að „minnka frekar vægi verð­trygg­ingar“ ef það er ekki meiri­hluti fyrir því á Alþingi að afnema verð­trygg­ingu. Þetta kemur fram í aðsendri grein sem þau skrifa saman í Frétta­blaðið í dag.

Þar leggja þau fram nokkrar leiðir til að draga úr vægi verð­trygg­ingar og færa áhættu, og þar af leið­andi kostnað, vegna hennar í auknum mæli yfir á lán­veit­endur. Íbúðalán á Íslandi eru veitt af Íbúða­lána­sjóði í eigu rík­is­ins, við­skipta­bönkum, sem að mestu eru í eigu rík­is­ins, og líf­eyr­is­sjóðum, í eigu sjóðs­fé­laga. Aukið tap og áhætta lán­veit­enda vegna verð­tryggðra lána, sem eru um 80 pró­sent allra hús­næð­is­lána, myndi því fær­ast óbeint yfir á rík­is­sjóð og líf­eyr­is­sjóði.

Helsta kosningamál Framsóknar

Afnám verð­trygg­ingar var eitt helsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013. Þann 22. apríl 2013 skrif­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins,, pist­ill á blogg­síðu sína þar sem fyr­ir­sögn var „Fram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn“. Þar sagði hann að staðan væri ekki flók­in. Ljóst yrði að næsta rík­is­stjórn yrði annað hvort um áherslur Fram­sókn­ar­flokks­ins eða að það yrði mynduð rík­is­stjórn gegn þeim. „Annað hvort verður mynduð rík­is­stjórn um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi eða rík­is­stjórn þeirra sem telja í lagi að láta vog­un­ar­sjóð­i á­kveða hvenær Ísland brýst úr viðjum skulda og hafta, rík­is­stjórn sem telur ekki rétt að nýta ein­stakt tæki­færi til að koma til móts við skuld­sett heim­ili, rík­is­stjórn um óbreytt fjár­mála­kerfi, rík­is­stjórn um verð­trygg­ing­u“.

Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013 kom skýrt fram að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lán­um. Undir þeim lið sagði: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Skip­aður verði starfs­hópur sér­fræð­inga til að und­ir­búa breyt­ingar á stjórn efna­hags­mála sam­hliða afnámi verð­trygg­ing­ar­inn­ar, meðal ann­ars til að tryggja hags­muni lán­þega gagn­vart of miklum sveiflum á vaxta­stigi óverð­tryggðra lána.“

Starf­hópur um afnám verð­trygg­ingu skil­aði af sér 2014 og meiri­hluti hennar komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki ætti að afnema verð­trygg­ingu.

Bjarni ætlar ekki að afnema verðtryggingu

Það virð­ist þó ekki vera nein ein­ing á meðal stjórn­ar­flokk­anna um afnám verð­trygg­ingar og rík­is­stjórnin hefur ekki lagt fram neinar áætl­anir um hvernig slíkt afnám ætti að fara fram.

Í útvarps­við­tali á dög­unum sagði Sig­mundur Davíð, sem situr ekki lengur í rík­is­stjórn, að þegar hann hafi sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra hafi verið búið að und­ir­búa kynn­ingu á afnámi verð­trygg­ing­ar­inn­ar. Kynna hefði átt „mjög flott plan“ í Hörpu í sept­em­ber á þessu ári. Hann segir að nú sé kom­inn upp sú staða að ekk­ert standi í vegi fyrir því að „klára þetta verð­trygg­ing­ar­mál“.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur hins vegar margoft sagt opin­ber­lega að verð­trygg­ing verði ekki afnumin. Fyrir rík­is­stjórn­ar­fund í síð­ustu viku sagði Bjarni að í burð­ar­leggnum væri frum­varp sem drægi úr vægi verð­trygg­ingar en hann þvertók fyrir það að rík­is­stjórnin væri að ráð­ast í ein­falt afnám verð­trygg­ingar. „Ég hef aldrei talað fyrir því að á íslandi verði hægt, með einu penna­striki, að afnema verð­trygg­ing­u,“ sagði Bjarni.

Greint var frá því í jan­úar að unnið hafi verið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Líklegt verður að telj­ast að það sé frum­varpið sem Bjarni ræddi um í síð­ustu viku.

Vilja fá fram tillögur um fullt afnám

Í grein sinni í dag segja Gunnar Bragi og Elsa Lára að þær til­lögur sem munu mynda frum­varp Bjarna, og eigi að draga úr vægi verð­trygg­ingar, hafi ein­göngu verið laus­lega kynntar fyrir þing­flokki Fram­sóknar. End­an­legar til­lögur hafi heldur ekki verið kynntar í rík­is­stjórn. „Þessar til­lögur ná aðeins til ákveð­ins hóps og efumst við ekki um að það verði til mik­illa bóta fyrir þann hóp. En við, ásamt fleirum, höfum sett fyr­ir­vara við þau drög og er ástæðan sú að við sjáum ekki hvernig koma eigi til móts við þá tugi þús­unda sem nú þegar eru með verð­tryggð lán.[...]Ef þessar til­lögur eru „góðar“ þá er ekki úti­lokað að um þær náist sátt. Mik­il­vægt er þó að um leið séu næstu skref kynnt að fullu afnámi verð­trygg­ingar af neyt­enda­lánum.“

Þau telja síðan upp fjórar hug­myndir sem fram hafi verið settar um hvernig megi draga úr verð­trygg­ingu. Þær eru:

  • setja þak á verð­trygg­ingu þannig að lán­taki og lán­veit­andi skipti með sér áhættu. Með þessu verði tryggt að ef verð­bólgan fer yfir ákveðna pró­sentu þá taki lán­veit­andi á sig áhætt­una umfram það.
  • að gera breyt­ingar á útreikn­ingi verð­bólgu og verð­trygg­ingar þannig að fram­vegis verði notuð sam­ræmd vísi­tala neyslu­verðs (SVN) í stað vísi­tölu neyslu­verðs (VNV). Þannig væri hús­næð­is­þáttur tek­inn út úr vísi­töl­unni.
  • að setja tak­mark­anir á fjölda þeirra verð­tryggðu lána sem lána­stofn­anir geta átt. En það er nú svo að verð­tryggðu lána­söfn/eigna­söfn bank­anna aukast veru­lega þegar verð­bólga fer af stað. Það verður eigna­til­færsla frá heim­ilum lands­ins til fjár­mála­stofn­ana. 
  • að breyta útreikn­ingi verð­tryggðra lána þannig að breyt­ingar á vísi­tölu reikn­ist á og greið­ist af hverjum gjald­daga fyrir sig en ekki höf­uð­stól. Þannig komum við í veg fyrir þau snjó­bolta­á­hrif sem verð­trygg­ingin hefur á lána­söfn.

Lánveitandinn er að mestu ríkið

Þrjár til­lag­anna sem settar eru fram í grein Gunnars Braga og Elsu Láru miða að því að færa aukna áhættu af verð­trygg­ingu, og kostnað vegna hennar, yfir á lán­veit­endur. Þeir aðilar sem eru langstærstir á íbúða­lána­mark­aði eru Íbúða­lána­sjóður, Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki. Um síð­ustu ára­mót voru 82 pró­sent íbúða­lána þeirra verð­tryggð. Í Frétta­blað­inu í morgun kemur fram að 80 pró­sent nýrra íbúða­lána Lands­bank­ans á þessu ári séu verð­tryggð og 73 pró­sent íbúða­lána Íslands­banka.

Þrjú fyrst­nefndu fjár­mála­fyr­ir­tækin eru öll í eigu íslenska rík­is­ins auk þess sem það á 13 pró­sent hlut í Arion banka. Því væri verið að færa þá áhættu sem rætt er um yfir á rík­is­sjóð miðað við núver­andi stöðu. Auk þess er 65 pró­sent af fjár­mögnun við­skipta­bank­anna inn­lán.

Til hefur staðið að selja bæði Íslands­banka og hluta Lands­bank­ans, þótt þau áform virð­ist sem stendur í salti. Ef aukin áhætta af verð­tryggðum neyt­enda­lánum, sem eru uppi­staðan af neyt­enda­lánum beggja banka, er færð yfir á þá mun það óhjá­kvæmi­lega hafa áhrif á verð­mið­ann á þeim. Og þá til lækk­unar.

Þess til við­bótar má ganga út frá því að þak á verð­trygg­ingu eitt og sér muni leiða til hærri vaxta hjá þeim sem veita íbúð­ar­lán, enda munu vext­irnir þá þurfa að gera ráð fyrir þeirri áhættu.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að alls hafi 85 pró­sent þeirra nýju lána sem íslenskar inn­láns­stofn­anir veittu við­skipta­vinum sínum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins verð­tryggð. Bankar lán­uðu sam­tals 39,3 millj­arða króna að frá­dregnum upp­greiðslum til heim­ila lands­ins á fyrri helm­ingi árs­ins 2016 og þar af voru 33,3 millj­arðar króna verð­tryggð lán. Ein­ungis sex millj­arðar króna voru óverð­tryggð lán.

Verð­bólga hefur verið lág á Íslandi und­an­farin ár og undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í febr­úar 2014. Sem stendur er hún 1,1 pró­sent. Verð­bólgan hefur verið svona lág vegna þess að hrá­vöru­verð, aðal­lega á olíu, hefur verið lágt á heims­mark­aði. Innlend verð­bólga hefur verið mun hærri. Ef til­laga Fram­sókn­ar­þing­mann­anna um að taka hús­næð­islið­inn út úr vísi­tölu neyslu­verðs væri hér verð­hjöðnun upp á 0,6 pró­sent.

Lífeyrissjóðir hafa aukið hlutdeild sína mikið

Hinir stóru leik­end­urnir á íbúða­lána­mark­aði eru líf­eyr­is­sjóðir lands­ins. Þeir hafa bætt kjör til sinna sjóðs­fé­laga mikið síð­ast­liðið ár og stór­aukið hlut­deild sína í nýjum lánum.

Kjarn­inn greindi frá því um liðna helgi að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins virð­ast hafa tekið sér for­ystu­hlut­verk í veit­ingu íbúða­lána á und­an­förnu tæpu ári. Þeir lán­uðu rúm­lega 38 millj­arða króna til íslenskra heim­ila á fyrri helm­ing­i árs­ins, sam­­kvæmt nýjum tölum frá Seðla­­banka Íslands­. Hlut­deild sjóð­anna á íbúða­lána­­mark­að­i hefur auk­ist veru­­lega eftir að nokkrir stórir líf­eyr­is­­sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arn­ir, óverð­­tryggð lán og lægra lán­töku­gjald á seinni hluta árs 2015.

Til sam­an­­burðar námu lán líf­eyr­is­­sjóð­anna til heim­ila rétt tæp­­lega fimm millj­­örðum króna á sama tíma­bili í fyrra, áður en líf­eyr­is­­sjóð­irnir hófu í raun þessa inn­­reið sína á íbúða­lána­­mark­að­inn. Á seinni helm­ingi árs­ins 2015 voru veitt lán fyrir 16,7 millj­­arða króna, og útlánin hafa hækkað jafnt og þétt.

Hlut­­deild verð­­tryggðra lána er mun meiri en óverð­­tryggðra. Verð­­tryggð lán á fyrri helm­ingi árs­ins námu ríf­­lega 28 millj­­örðum króna en óverð­­tryggð rúm­­lega 10 millj­­örð­­um. 1817 ný verð­­tryggð lán voru veitt heim­ilum á fyrri hluta árs­ins en 648 óverð­­tryggð, sam­tals 2465 ný lán.

Tillögur Fram­sókn­ar­þing­mann­anna miða við að færa meiri áhættu yfir á líf­eyr­is­sjóð­ina frá lán­tak­endum þannig að þeir verði að axla stærri hluta kostn­aðar verð­bólgu­skota. Þær breyt­ingar munu nær örugg­lega leiða til hækk­unar á þeim vöxtum sem líf­eyr­is­sjóðir bjóða í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár