Íslendingar flykkjast í verðtryggð lán

Mikið er rætt um verð­trygg­ingu, tak­mörkun hennar eða afnám. Íslend­ingar, sem hafa val um óverð­tryggð og verð­tryggð lán, taka hins vegar mun frekar verð­tryggð lán. Og umfang verð­tryggðra lána hefur auk­ist gríð­ar­lega síð­ustu miss­eri.

Alls voru 85 pró­sent þeirra nýju lána sem íslenskar inn­láns­stofn­anir veittu við­skipta­vinum sínum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins verð­tryggð. Bankar lán­uðu sam­tals 39,3 millj­arða króna að frá­dregnum upp­greiðslum til heim­ila lands­ins á fyrri helm­ingi árs­ins 2016 og þar af voru 33,3 millj­arðar króna verð­tryggð lán. Einungis sex millj­arðar króna voru óverð­tryggð lán.

Um er að ræða mik­inn við­snún­ing á örfáum árum, en eftir að bankar hófu að bjóða upp á óverð­tryggð lán haustið 2011 nutu slík mik­illa vin­sælda. Sem dæmi má nefna að á tveggja mán­aða tíma­bili - í maí og júní 2013 - tóku við­skipta­vinir banka sam­tals um 6,5 millj­arða króna í óverð­tryggð lán, eða hærri upp­hæð en þeir tóku á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Á þeim tíma nutu verð­tryggðu lánin ekki mik­illa vin­sælda og voru 2,9 millj­arðar króna að frá­dregnum upp­greiðslum. Því námu verð­tryggð lán á þessu tveggja mán­aða tíma­bili árið 2013 um 30 pró­sent allra lána til heim­ila en óverð­tryggð lán voru um 70 pró­sent slíkra.

[adspot]

Sú þróun var ein­kenn­andi fyrir stöð­una eins og hún var á árinu 2013 og fram á árið 2014. Í febr­úar það ár gerð­ust hins vegar tíð­indi; verð­bólga á Íslandi fór í fyrsta sinn í mörg ár undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands. Hún hefur hald­ist þar síðan og er nú ein­ungis 1,1 pró­sent. Ásókn íslenskra lán­tak­enda í verð­tryggð lán hefur auk­ist jafn og þétt á und­an­förnum árum en það sem af er þessu ári hefur orðið algjör kúvend­ing, líkt og sést á mynd­inni hér að neðan.

Alls eru útlán inn­láns­stofn­ana til heim­ila 926,6 millj­arðar króna. Þar af eru verð­tryggð útlán 550,2 millj­arðar króna, eða um 60 pró­sent þeirra. Inni í þessum tölum eru ekki ein­ungis íbúða­lán heldur einnig bíla­lán og önnur lán, t.d. yfir­drættir.

Þrjár af hverjum fjórum lánuðum krónum sjóða verðtryggðar

Kjarninn greindi frá því um liðna helgi að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins virð­ast hafa tekið sér for­ystu­hlut­verk í veit­ingu íbúða­lána á und­an­förnu tæpu ári. Þeir lán­uðu rúm­lega 38 millj­arða króna til íslenskra heim­ila á fyrri helm­ing­i árs­ins, sam­kvæmt nýjum tölum frá Seðla­banka Íslands­. Hlut­deild sjóð­anna á íbúða­lána­mark­að­i hefur auk­ist veru­lega eftir að nokkrir stórir líf­eyr­is­sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arnir, óverð­tryggð lán og lægra lán­töku­gjald á seinni hluta árs 2015.

Til sam­an­burðar námu lán líf­eyr­is­sjóð­anna til heim­ila rétt tæp­lega fimm millj­örðum króna á sama tíma­bili í fyrra, áður en líf­eyr­is­sjóð­irnir hófu í raun þessa inn­reið sína á íbúða­lána­mark­að­inn. Á seinni helm­ingi árs­ins 2015 voru veitt lán fyrir 16,7 millj­arða króna, og útlánin hafa hækkað jafnt og þétt.

Hlut­deild verð­tryggðra lána er mun meiri en óverð­tryggðra. Verð­tryggð lán á fyrri helm­ingi árs­ins námu ríf­lega 28 millj­örðum króna en óverð­tryggð rúm­lega 10 millj­örð­um. 1817 ný verð­tryggð lán voru veitt heim­ilum á fyrri hluta árs­ins en 648 óverð­tryggð, sam­tals 2465 ný lán.

82 prósent húsnæðislána verðtryggð um áramót

Kjarninn kall­aði fyrr á þessu ári eftir upp­lýs­ingum frá öllum við­skipta­bönk­unum þremur: Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka um hvernig hús­næð­is­lán þeirra skipt­ust eftir lána­formum um síð­ustu ára­mót. Hús­næð­is­lán Lands­bank­ans voru 217 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og höfðu vaxið mikið á árinu 2015, en þau voru 169 millj­arðar króna í byrjun þess árs. Ný og end­ur­fjár­mögnuð lán hjá bank­anum voru 70 millj­arðar króna í fyrra og þar af voru 48 millj­arðar króna vegna nýrra lána. Af þeim nýju lánum voru 63 pró­sent verð­tryggð en 37 pró­sent óverð­tryggð. Alls var skipt­ing hús­næð­is­lána­safns Lands­bank­ans þannig að 144 millj­arðar króna, eða 66 pró­sent, voru verð­tryggð lán. Óverð­tryggð lán voru 73 millj­arðar króna, eða 34 pró­sent af hús­næð­is­lánum bank­ans.

Íslands­banki átti íbúða­lán upp á 197,3 millj­arða króna í byrjun þessa árs. Þau hækk­uðu um tæpa þrettán millj­arða króna í fyrra. Skipting hús­næð­is­lána­safns­ins var þannig að 66 pró­sent þess voru verð­tryggð lán en 34 pró­sent óverð­tryggð lán.

Arion banki átti síðan stærsta safn hús­næð­is­lána af öllum við­skipta­bönk­unum. Alls nema hús­næð­is­lán bank­ans 268 millj­örðum króna. Það minnk­aði um fjóra millj­arða króna á árinu 2015 og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Arion banka var sú lækkun aðal­lega til­komin vegna leið­rétt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar sem greiddi upp ell­efu millj­arða króna af lánum hjá bank­anum á árinu. Í árs­lok var skipt­ing hús­næð­is­lána Arion banka þannig að 73 pró­sent þeirra voru verð­tryggð en 27 pró­sent óverð­tryggð.

Stærsti hús­næð­is­lán­veit­andi lands­ins er enn Íbúða­lána­sjóður, þótt hann hafi vart verið þátt­tak­andi í nýjum útlánum á und­an­förnum árum. Hann lánar ein­ungis verð­tryggt og hús­næð­is­lán hans til ein­stak­linga námu 560,4 millj­örðum króna í lok síð­asta árs.

Samkvæmt ofan­greindum tölum námu heild­ar­út­lán við­skipta­bank­anna þriggja og Íbúða­lána­sjóðs til hús­næð­is­kaupa því um 1.200,5 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Þar af voru verð­tryggð hús­næð­is­lán 988 millj­arðar króna. Því voru 82 pró­sent allra hús­næð­is­lána aðil­anna verð­tryggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár