Fyrstu íslensku snjóbrettamyndirnar á leið yfir á stafrænt form

20 árum eftir að fyrsta snjó­bretta­mynd Team Divine var fram­leidd, og 15 árum eftir að sú síð­asta kom út, stendur til að koma efn­inu yfir á star­frænt form.

Ásgeir Hösk­ulds­son er ávallt kall­aður Geiri. Hann er búinn að vera að djöfl­ast á snjó­brettum síðan hann var ell­efu ára, eða í rúm 30 ár. Geiri bjó erlendis í átta ár en flutti heim til Íslands, og Akur­eyrar, 16 ára gam­all. Þar kynn­ist hann íslensku snjó­bretta­sen­unni.

Síðan þá hefur Geiri verið virkur þátt­tak­andi í flestu sem við­kemur þeirri menn­ingu sem skap­ast hefur í kringum snjó­bretta­iðk­endur hér­lendis. Hann var til að mynda for­maður Bretta­fé­lags Íslands í þrjú ár, starf­aði hjá Nikita Clothing, sem fram­leiðir snjó­brettafatnað, í átta ár og tók þátt í að end­ur­vekja AK Extreme hátíð­ina á Akureyri.

Síð­ast­liðin ár hefur Geiri tekið að sér leið­sögu­verk­efni fyrir erlend snjó­bretta­fyr­ir­tæki ásamt því að stunda íþrótt­ina af kappi með fjöl­skyldu sinni. Hann kynnt­ist Eika og Halldóri Helga­syni, og hinum sem mynda Team Divine fram­leiðsluteymið í gegnum snjó­bretta­sen­una og safnar nú, ásamt þeim, fyrir því að komu fyrstu íslensku „bretta“ mynd­unum yfir á staf­rænt form í gegnum Karolina fund.

[adspot]Í ár eru 20 ár frá því að fyrsta myndin var fram­leidd og 15 ár síðan sú síð­asta koma út.

Geiri segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi vaknað við aðstæður sem margir aðrir kann­ast við úr nútíma veru­leika. „Ég var í sótt­kví í vetur að end­ur­skipu­leggja geymsl­una og rakst á allt gamla myndefnið sem ég og Team Divine fram­leiddum frá 2000 til 2005. Í heild­ina voru þetta sex myndir ásamt fullt af auka­efni. Mér fannst kjörið að dusta rykið af þessu öllu saman, færa þetta yfir á staf­rænt og deila þannig gleð­inni.·

Til­gang­ur­inn er ekki flók­inn: vilji til að varð­veita þennan hluta af íslenskri snjó­bretta­menn­ingu. „Ég er mjög þakk­látur og lán­samur að hafa tekið þátt í þess­ari fram­leiðslu með strák­unum í Team Divine. Þeir eiga mikið hrós skilið fyrir að hafa lagt vinnu, metnað og gleði í að skapa þessi meist­ara­verk á sínum tíma. Góðir hlutir ger­ast ef hjartað ræður för.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár