Orkumálastýra fer spennt til vinnu á hverjum morgni – Ekki bara dökk ský í loftslagsmálum

„Það sem mun koma okkur á leið­ar­enda og út úr þessu hættu­á­standi er heit­streng­ing þess að vinna saman,“ segir Halla Hrund Loga­dóttir, orku­mála­stjóri. Koma þurfi hlut­unum í verk heima fyrir en ekki síður að beita sér í þágu fátæk­ari ríkja.

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri.
Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri.

„Við þurfum að bregð­ast við núna,“ sagði Halla Hrund Loga­dóttir, orku­mála­stjóri, á ráð­stefnu um lofts­lags­mál og sjálf­bæra orku­nýt­ingu sem fram fór í Washington-borg í síð­ustu viku. Sendiráð Íslands í borg­inni, Græn­vangur og hug­veitan Atlantic Council Global Engery Center stóðu fyrir við­burð­inum. For­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra sóttu ráð­stefn­una auk ýmissa úr orku- og lofts­lags­geir­unum. „Áhrif lofts­lags­breyt­inga eru að stig­magn­ast um heim­inn,“ sagði Halla Hrund í erindi sínu. „Við fáum sífellt fleiri við­var­anir en samt þá erum við ekki að hlusta nægi­lega vel eða ekki að bregð­ast nógu hratt við.“

Hún sagði ástandið alvar­legt. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hafi aldrei í sög­unni verið jafn­mikil og á síð­asta ári. Aukin kola­notkun sé þar helsti drif­kraft­ur­inn. „Og það eru fleiri dökk ský við sjón­deild­ar­hring­inn,“ benti hún á. „Við heyrum nú oft um orku­krís­una í Evrópu og í ljósi nýj­ustu yfir­lýs­inga Pútíns [Rúss­lands­for­seta] þá virð­ast horf­urnar ekki hafa batnað.“

Orku­kreppan væri sögu­leg og hefði þegar ýtt Evr­ópu­ríkjum út í að nota meira af jarð­efna­elds­neyti á ný. Í Þýska­landi, tók hún sem dæmi, væri nú verið að nota 30 pró­sent meira af kolum til raf­magns­fram­leiðslu sam­an­borið við árið í fyrra. Ástandið vari von­andi aðeins til skemmri tíma.

[adspot]

Umskipti Evrópu í end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa er að sögn Höllu Hrundar risa­stór inn­viða­vandi. Tíma taki að byggja upp nýja inn­viði og það séu fjár­frek verk­efni. Á sama tíma og öll heims­byggðin þurfi á gríð­ar­legum fjár­fest­ingum í lofts­lags­lausnum að halda sé fjár­mögn­unin hins vegar orðin erf­ið­ari og kostn­að­ar­sam­ari. Efa­semdir séu þegar farnar að vakna um að það tak­ist að upp­fylla mark­mið sem þjóðir hafi skuld­bundið sig til á lofts­lags­ráð­stefnum Sam­ein­uðu þjóð­anna. „En ef við getum ekki staðið við þau mark­mið þá erum við að senda röng skila­boð og stíga skref aftur á bak.“

Jákvæð teikn sjást á lofti

En þrátt fyrir þessi dökku ský þá er ýmis­leg jákvæð teikn einnig innan seil­ingar, sagði Halla Hrund. Hún taldi svo upp nokkur atriði sem hún sagði gera það að verkum að hún færi spennt til vinnu á hverjum morgni og til­búin að leggja sig alla fram. Lofts­lags­stefna stjórn­valda í Banda­ríkj­unum, sem tek­ist hefði að sam­þykkja með mála­miðl­unum, væri mik­il­væg og sann­aði að opin­ber stefnu­mörkun, þar sem línur eru lagðar, skipti máli og hafi áhrif. Með þeim hætti geti hið opin­bera og einka­geir­inn gengið í takt. „Þörf er á sterkri opin­berri stefnu og djörfum ákv í þessu sam­bandi um allan heim.“

Fram­tíð­ar­sýn Evr­ópu­sam­bands­ins í orku­málum veki einnig bjart­sýni þrátt fyrir að nú geisi þar orku­krísa. Hún felst m.a. í upp­bygg­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa en einnig í orku­sparn­aði.

Íslend­ingar hafa lært að „sóa aldrei góðri orku­krísu,“ sagði Halla Hrund og upp­skar hlátur áheyr­enda. Þar átti hún við olíu­kreppur eftir seinna stríð og aftur á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Þá hafi Íslend­ingar orðið að finna inn­lendar lausnir í stað olíu­notk­unar. Ennþá sé íslenska þjóðin að njóta góðs af ákvörð­unum sem þá voru teknar í inn­viða­upp­bygg­ing­unni.

Sam­göngur eru það sem við þurfum að ein­beita okkur að núna, sagði hún. Við höfum enga afsökun á þeim sviðum þar sem tæknin er þegar til staðar, svo sem hvað varðar raf­bíla. „Við skulum gleyma því að vera í öðru sæti [í raf­bíla­væð­ing­unni] á eftir Noregi – við skulum brúa bilið.“

Eft­ir­lætis hluti Höllu Hrundar á sög­unni um inn­viða­upp­bygg­ingu í orku­málum á Íslandi sög­unnar er hlutur frum­kvöðl­anna sem varðað hafa þá leið. Allt frá sög­unni um hvernig bóndi fann lausn á því að tengja heita vatns­lind sína við nágranna­bæ­inn til sög­unnar „rokk­stjörn­unnar“ Carbfix, sem nýtir alís­lenska tækni við förgun á kolefni.

„Það sem mun koma okkur á leið­ar­enda og út úr þessu hættu­á­standi er heit­streng­ing þess að vinna saman,“ sagði Halla Hrund. Að deila reynsl­unni allri og þekk­ing­unni. „Við höfum talað mikið um hvernig við getum unnið saman til að ná mark­miðum okkar. En ég held að það sé annar ónýttur mögu­leiki. Að líta til allra fjöl­þjóð­legu stofn­an­anna sem Ísland og Banda­ríkin eiga aðild að og segja: Hvernig getum við tryggt að fjár­magn og önnur bjarggáð frá þessum stofn­unum renni til þró­un­ar­landa þar sem verður gríð­ar­leg þörf fyrir fjár­fest­ingu einka­að­ila? Þar sem við blasir áhætta sem aðeins er hægt að takast á við með alþjóð­legri sam­vinnu. Við skulum koma hlut­unum í verk heima fyrir en einnig vinna saman að því að hafa áhrif um allan heim – í sam­vinnu bæði hins opin­bera og einka­geirans.“

Ræðu Höllu Hrundar, sem hún flutti á ensku, má sjá hér að neðan á samt öllum öðrum erindum sem flutt voru á ráð­stefn­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár