Skattrannsóknarstjóri kyrrsetti og haldlagði eignir upp á 2,2 milljarða

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra vís­aði 41 máli til hér­aðs­sak­sókn­ara í fyrra. Ætluð und­an­skot voru frá millj­ónum króna og upp í sjö­unda hund­rað millj­óna króna í ein­stökum málum.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Mynd: RÚV/Skjáskot

Á árinu 2017 voru kyrr­settar og hald­lagðar eignir undir rann­sókn hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins að fjár­hæð alls ríf­lega 2,2 millj­arðar króna í alls 15 málum. Í lang­flestum til­vikum er um að ræða kyrr­setn­ingar toll­stjóra til trygg­ingar vænt­an­legri skatt­kröfu, fésekt og sak­ar­kostn­aði. Þetta kemur fram í frétt á vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem birt var í dag.

[links]Þar segir að á síð­asta ári hafi 41 máli verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara til ákæru­með­ferðar í kjöl­far rann­sóknar skatt­rann­sókn­ar­stjóra, og að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi farið fram með sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd í alls 36 málum á árinu vegna ætl­aðra skatta­laga­brota. Í 22 málum var geng­ist undir sekt hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

„Ætluð und­an­skot eru af marg­vís­legum toga og mál mis­jöfn að umfangi. Ætlaður und­an­skot­inn skatt­stofn er allt frá millj­ónum króna upp í á sjö­unda hund­rað millj­óna kr. í ein­stökum málum,“ segir í frétt­inni.

[adspot]Í kjöl­far til­kynn­inga skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins um rann­sókn vegna ætl­aðra brota vegna van­skila á inn­heimtum virð­is­auka­skatti og stað­greiðslu opin­berra gjalda, svo­nefnt vörslufé, voru greiddar ríf­lega þrjú hund­ruð millj­ónir króna inn á van­gold­inn höf­uð­stól á árinu 2017 meðan á rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra stóð eða í eft­ir­far­andi refsi­með­ferð.

Alls 66 mál felld niður

Hér­aðs­sak­sókn­ari felldi niður alls 66 mál á síð­asta ári sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði kært til hans. Ástæðan var sú að máls­­með­­­ferð þeirra hjá ann­­ars vegar skatt­yf­­ir­völdum og hins vegar hér­­aðs­sak­­sókn­­ara var ekki næg­i­­lega sam­t­vinnuð í efni og tíma, aðal­­­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna þess að beðið var nið­­ur­­stöðu máls sem var til með­­­ferðar hjá Mann­rétt­inda­­dóm­stóli Evr­­ópu.

Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál ein­stak­linga sem komu fyrir í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Og stór hluti mál­anna snýst um ein­stak­linga sem geymdu fjár­muni utan Íslands til að kom­ast hjá skatt­greiðsl­um. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætl­uðum skattsvikum verði felld niður á næst­unni, en alls voru 152 mál til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Alls er skatt­stofn­inn í öllum þeim málum yfir 30 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár