Allt það markverðasta af haustviðburði Apple

Spenn­andi verður að sjá hvernig Apple-aðdá­endur taka nýjum snjall­símum og snjallúrum. Tíunda kyn­slóð iPhone-sím­anna var kynnt í gær. Gunn­laugur Reynir Sverr­is­son, umsjón­ar­maður Tækni­varps­ins, fylgd­ist með.

Nýja flaggskip Apple er iPhone X-snjallsíminn. Hann er búinn öllum fullkomnasta vélbúnaði sem völ er á.
Nýja flagg­skip Apple er iPhone X-snjall­sím­inn. Hann er búinn öllum full­komn­asta vél­bún­aði sem völ er á. Mynd: EPA

Banda­ríska tölvu­fyr­ir­tækið Apple kynnti þrjá nýja snjall­síma, nýtt snjallúr og upp­fært sjón­varps­box á árlegum haust­við­burði sínum í gær. Þrátt fyrir að allt það mark­verð­asta hafi lekið út fyrir kynn­ing­una þá var eft­ir­vænt­ingin tals­verð.

Kynn­ingin var sú fyrsta sem haldin hefur verið í Steve Jobs Theater, nýju 1000 sæta neð­an­jarð­ar­sal sem stendur við nýjar höf­uð­stöðvar Apple í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum.

Apple gengur lengra

Það sem stendur upp úr eftir kynn­ing­una er vafa­laust nýr og end­ur­hann­aður iPhone X (róm­verska talan 10, ekki bók­staf­ur­inn X). Apple fylgir í fót­spor keppi­naut­anna Samsung og LG með því að minnka rammann utan um skjá­inn. Apple gengur í raun tals­vert lengra því sím­inn er nán­ast algjör­lega ramma­laus fyrir utan agn­arsmáa rönd efst á sím­anum.

iPhone X er búinn 5,8 tommu AMOLED-skjá fram­leiddum af Samsung í upp­lausn sem Apple kallar Super Retina. Stál­rammi er umvaf­inn gleri bæði á fram­hlið og bak­hlið. Enginn heim-hnappur er á sím­anum eða fingrafara­les­ari. Í stað­inn er sím­anum aflæst með Face ID, nýrri örygg­is­tækni sem leysir fingrafar­les­ar­ann af hólmi. Apple lofar að þessi tækni sé marg­falt betri og örugg­ari en fingrafara­les­ar­inn. Það gekk þó ekki betur en svo að þegar Craig Federighi, fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­þró­unar Apple, var að sýna sím­ann þá náði hann ekki að aflæsa sím­anum í fyrstu til­raun. Mistök sem þessi hafa verið nán­ast óþekkt í kynn­ingum Apple.

Eins og í iPhone 7 Plus (stærri gerð síð­ustu kyn­slóðar iPhone-síma) eru tvær mynda­vélar á bak­hlið­inni. Báðar með inn­byggðri hristi­vörn og þökk sé nemum á fram­hlið sím­ans styður hann nú einnig Portrait-myndir á fram­hlið­inni. Þessi mögu­leiki kom fyrst fram á iPhone 7 Plus. Þetta virkar þannig að með tveimur mynda­vélum er hægt að ná fram aðskiln­aði á milli for­grunns og bak­grunns og þannig breyta fókus eft­irá. Þannig er hægt að ná fram svoköll­uðum bokeh-áhrifum eins og fást með stórum dýrum linsum. Síminn kemur með annað hvort með 64 eða 256 gíga­bita geymslu­plássi og mun kosta minnst 999 Banda­ríkja­doll­ara (um 110.000 íslenskar krónur).

[adspot]

iPhone X er nýtt flaggskip

iPhone X er þó ekki eig­in­legur arf­taki iPhone 7 eða 7 Plus. Hann er tal­vert dýr­ari en þeir báðir og er í raun hugs­aður sem tak­marka­laust flagg­skip; Það sem er hægt að gera þegar dregið er úr kröfum um að halda niður verði á íhlutum sím­ans. AMOLED-skjár­inn kostar til dæmis þrisvar sinnum meira en skjár­inn á iPhone 7. Mynda­vélin er dýr­ari sem og umgjörðin. Þetta er flagg­skip fyrir þá sem vilja það nýjasta og besta. Nafnið X er svo dregið af því að nú eru 10 ár síðan fyrsti iPhone-sím­inn kom í sölu árið 2007.

Apple kynnti einnig iPhone 8, rök­réttan arf­taka iPhone 7. Ef Apple hefði fylgt nafna­hefð­inni sem var sett með 3GS þá hefði þessi sími verið kall­aður iPhone 7S.

[links]iPhone 8 er að mestu leyti eins útlits­lega og iPhone 7, sem einnig var að mestu leyti eins og iPhone 6 og 6S. Það væri þó rangt að segja að iPhone 8 væri nákvæm­lega eins. Skelin er örlítið stærri og passar því lík­leg­ast ekki í hulstur af eldri símum. Bak­hliðin er, eins og á iPhone X, úr hertu gleri. Skjá­irnir eru með sömu upp­lausn og iPhone 7 og 7 Plus en styðja nú True Tone-tækni Apple sem hefur aðeins verið í boði í iPad Pro-spjald­tölv­unni. Með True Tone aðlagar skjár­inn sig að umhverf­is­lýs­ingu og gefur bestu mynd hverju sinni. Bæði iPhone X og 8 styðja svo loks­ins snerti­lausa hleðslu.

Margt er áhuga­vert við nálgun Apple með þessu nýja þrí­eyki og óhætt að segja að mark­aðs­deild fyr­ir­tæk­is­ins hefur ekki staðið frammi fyrir jafn krefj­andi verk­efni í langan tíma. Mark­miðið er vænt­an­lega að gera iPhone X aðlað­andi án þess að það skaði sölu á iPhone 8. Flestir myndu vænt­an­lega velja iPhone X ef ekki væri fyrir verðið en hann er jú tals­vert dýr­ari. Líklegt er að fram­boð af flagg­skip­inu verði tak­markað í fyrstu.

Fluttar hafa verið fréttir af erf­ið­leikum við fram­leiðslu sím­ans og lík­legt er að margir muni annað hvort sætta sig við iPhone 8 eða leita á önnur mið. Samsung og LG munu taka neyt­endum fagn­andi sem vilja í ramma­lausa síma en eiga aðeins 100.000 krónur til að eyða.

Ekkert kom fram í kynn­ingu Apple í gær um verð eða útgáfu­tíma á Íslandi en ef eitt­hvað er að marka reynslu Íslend­inga und­an­farin ár þá má búast við iPhone 8 í sölu í lok sept­em­ber og að hann muni kosta frá 120.000 krónum. iPhone X fer ekki í sölu í Banda­ríkj­unum fyrr en í nóv­em­ber og skilar sér von­andi hingað til Íslands fyrir jól.

Uppfærðar stuðningsgræjur

Auk nýrra síma kynnti Apple einnig þriðju kyn­slóð snjallúr­anna Apple Watch. Útlitið er það sama og á fyrri úrum en það hefur nú bæði meira afl og er nú í fyrsta skipti í boði með inn­byggðu 4G-far­neti. Þannig verður hægt að streyma tón­list, fá upp­lýs­ingar beint í for­ritin og taka sím­töl annað hvort beint á úrið eða í gengum þráð­laus heyrna­tól.

Með Apple Watch 3 og Apple Airpods er komin hin full­komna hlaupa­græja fyrir þá sem vilja hlaupa með sem minnstan far­angur. Í kynn­ing­unni á Apple Watch kom fram að Apple er orð­inn stærsti úra­fram­leið­andi í heimi ef horft er á veltu og að 97 pró­sent not­enda séu ánægðir með vör­una. Til marks um það var sýnd aug­lýs­inga þar sem not­endur Apple Watch lásu upp bréf sín til fyr­ir­tæk­is­ins þar sem þeir lof­sama úrið og hvernig það hefur nýst í þjálfun eða bar­áttu við fötlun eða aðrar hindr­anir.

Einnig var kynnt upfærsla á Apple TV sem styður bæði 4K-myndefni og HDR-mynd­gæða­tækni. Útlitið er það sama og áður og þeir sem höfðu von­ast eftir end­ur­hönnun á fjar­stýr­ing­una fengu ekki ósk sína upp­fyllta. Þú munt þess vegna áfram snúa fjar­stýr­ing­unni öfugt og spóla langt inn í mynd­ina með til­heyr­andi pirr­ingi.

Heilt yfir var við­burður Apple vel heppn­aður. Steve Jobs Theater lítur virki­lega vel út og loks­ins er Apple komið með vett­vang fyrir kynn­ingar sem er í sama gæða­flokki og vör­urnar sem það kynnir. Áhuga­vert verður þó að sjá hvernig iPhone 8 og X selj­ast. Það er aug­ljóst að iPhone X er fram­tíð Apple og iPhone-vöru­merk­is­ins.

Spurn­ingin er eftir sem áður: Munu kaup­endur sætta sig við iPhone 8? Munu þeir sætta sig við verðið á X eða verður vist­ar­band Apple neyt­enda loks­ins afnumið?

Eina sem er öruggt er að vísa­reikn­ingur margra Apple-neyt­enda mun snar­hækka á næstu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár