Jörðin sem ruslahaugur – Tímamótaverk Andra Snæs

Um tím­ann og vatnið, gefin út af Máli og menn­ingu 2019. Hönnun kápu, Börkur Arnarson og Einar Geir Ingv­ars­son. Mynd á kápu, Ari Magg.

Andri Snær Magnason, lista­maður, hefur um langt skeið verið í hópi fram­sækn­ustu rit­höf­unda þjóð­ar­innar og sá sem hefur haft hvað mest áhrif á þjóð­mála­um­ræðu á Íslandi í seinni tíð.

Hann hefur ein­stakt lag á því að nálg­ast mik­il­væg mál - ekki síst á sviði umhverf­is­mála og nátt­úru­verndar - með því að stíga út fyrir rammann sem áður mót­aði umræð­una og búa til nýjan víg­völl rök­ræð­unnar. Fyrir vikið verður til nýtt sjón­ar­horn, ný sýn.

Ný göng, nýir hellar, nýir dalir

Þetta víkkar út rammann. Að þessu leyti hefur Andri Snær haft svipuð áhrif á sam­fé­lagið og frum­kvöðlar. Þeir þenja út heild­ar­mynd sam­fé­lags­ins þegar vel tekst til, og reyndar líka oft þegar það tekst ekki vel til.

Dyr opn­ast sem áður voru lok­aðar. Þeir lýsa inn í ný göng, nýja hella, nýja dali.

Drauma­landið var slík bók en það á einnig við um aðrar bækur hans. Sagan af Bláa hnett­inum hefur farið sig­ur­för um heim­inn og ég gerði mér ekki almenni­lega grein fyrir hversu djúp­stæð áhrif sú bók hefur haft víða um heim fyrr en ég flutti úr landi. Ég þurfti bók­staf­lega að flytja til útlanda til að átta mig á þessu.

Ég lauk nýverið við að lesa bók Andra Snæs, Um tím­ann og vatnið, sem kom út í gær. Ég var reyndar hepp­inn að fá Andra Snæ í kaffi hér heim til okkar í Kirkland, í útjaðri Seattle, þar sem hann sagði mér frá bók­inni og spurn­ing­unum sem hann er að takast á við í henni.

Það eitt kveikti mik­inn áhuga en ég var samt ekki alveg viss um hvernig þetta ætti eftir að koma út í bók. Hann var þá að und­ir­búa fyr­ir­lestur í Elliot Bay Book Company, einni virt­ustu og líf­leg­ustu bóka­búð Seattle borgar og raunar Vest­ur­strand­ar­innar allrar, ef út í það er farið. Í kringum búð­ina er bóka­sam­fé­lag þar sem bóka­ormar allra landa sam­ein­ast.

Um hvað er svo bókin? Þegar stórt er spurt, er stundum fátt um svör, en mér finnst það ekki eiga við um þessa bók. Bókin er heil­steypt stór­virki, þar sem tek­ist er á við mik­il­væg­ustu spurn­ingar sam­tím­ans.

Hvernig við mann­fólkið erum að fara með jörð­ina með öllu til­heyr­andi - haf­inu, land­inu og sam­fé­lög­unum sem við höfum búið til.

Bókin er um þetta. Hún fangar það sem Greta Thunberg hefur fangað með skörpum skila­boðum sínum, og bylgj­unni sem hún bjó til. Hún fangar líka hug­fars­breyt­ing­una sem við vitum að þarf að eiga sér stað, og veltir því upp hjá les­and­anum hvort við séum vilj­andi að horfa fram­hjá því sem er að ger­ast. En um leið er bókin stað­fest­ing á mik­il­vægi lista­manna í þess­ari umræðu. Eins og sagan sýnir þá eru það þeir sem stinga á kýlum, róta upp í botn­fastri leðju.

Einn helsti styrkur bók­ar­innar er að hún er skrifuð af stíl­snilld en um leið tölu­verðri ákveðni. Þegar þess þarf þá er broddur í text­anum, enda er Andra Snæ dauð­ans alvara í skrif­unum.

Stað­reynd­irnar sem dregnar eru fram í bók­inni um þau hættu­merki sem sjást nú þegar á jörð­inni, ekki síst í haf­inu, eru slá­andi áminn­ing um að við getum ekki haldið svona áfram. Um leið er bókin ferða­lag eins og hann er svo góður í að setja saman fyrir les­and­ann. Við sögu komu áhrifa­mestu hug­mynda­smiðir ver­ald­ar­sög­unnar og líka minnstu smá­at­riði úr hvers­dags­leik­anum. Allt teiknar þetta upp mynd af nátt­úr­unni og við­kvæmni hennar, sam­fé­lagi okkar og því sem er að ger­ast í haf­inu, jöklunum, sönd­unum og fjalls­hlíð­unum.

„Lífs­hættir rík­asta hluta jarð­ar­búa hafa meiri áhrif á sýru- og hita­stig hafs­ins heldur en fátæk­ari hlut­inn og ástandið er hvað verst þar sem allt er snyrti­leg­ast á yfir­borð­inu. Þar er losun koltví­oxíðs á mann lang­mest og verð­mætin sem fara til spillis í rusla­haugum rík­ari landa eru marg­föld á við það sem gengur og ger­ist í fátæk­ari ríkjum þar sem sóða­skapur er sýni­legur. (bls. 224)“.

Fyrir alla

Í bók­inni felst ögrun við les­endur. Það er verið að minna þig á það, að þú getur kannski setið hér í róleg­heit­unum og lesið dásam­lega hug­hríf­andi bók, en að á meðan er í gangi stríð sem við mann­fólkið bjuggum til að miklu leyti að óþörfu. Þetta er óþægi­legur sann­leikur, og um leið stærsta við­fangs­efni sam­tím­ans. Það er ekki auð­velt að takast á við svona stórar spurn­ingar án þess að fara út af leið, en mér finnst frum­leg nálgun Andra Snæs setja bók­inni skorður sem halda allan tím­ann.

Fyrir vikið er bókin fyrir fólk á öllum aldri, unga sem aldna.

„Á Skeið­ar­ár­sandi er að verða til stærsti sjálfs­áni birki­skógur á Íslandi. Getur stærsti skógur á Íslandi heitið Skeið­ar­ár­sandur? Þá heitir skóg­ur­inn eftir jök­ulsá sem er horfin og sandi sem er fal­inn undir skóg­ar­botni. Þar sem ís, möl og sandur kemur undan jökli er nýtt land sem hefur legið frosið undir fargi í mörg hund­ruð ár og við jök­ul­rönd­ina er nauð­syn­legt að stíga var­lega til jarðar. Það er eins og landið sé hvorki ís, vatn né sandur, heldur allt í senn. Umbreyt­ingin á sér milli­stig í óreiðu eins og Völuspá segir frá upp­hafi sköp­unar: Sól það né vissi hvar hún sali átti, stjörnur það né vissu, hvar þær staði áttu, máni það né vissi, hvað hann meg­ins átti. Óreiðan er ekki ein­skorðuð við jök­ul­rönd­ina. Enginn veit hvernig jafn­vægi kemst á þegar lífs­hættir okkar hafa valdið því að jöklar heims­ins verða að vatni, núver­andi strand­lengja verður sjór og akur­lönd að eyði­mörkum. Þegar ég verð níræður mun ég sýna þrí­tugu barna­barni mínu myndir af Skeið­ar­ár­jökli á rúllug­ard­ínu, jökli sem þrjár kyn­slóðir fengu tæki­færi til að kynn­ast áður en hann hætti að vera til. Þegar ég tek ljós­mynd af jökl­inum er ég að taka upp söng gam­allar konu til að varð­veita. Eftir þús­und ár munu menn rýna í mynd­irnar eins og forn hand­rit og reyna að skilja hvað við vorum að hugsa. (bls. 188)“

Andi Guðmundar Páls svífur yfir

Við lest­ur­inn á bók­inni fann maður fyrir anda Guð­mundar Páls Ólafs­sonar heit­ins og frænda míns, rit­höf­undar og nátt­úr­vernd­ar­sinna. Stór­virki hans um nátt­úru Íslands eru tíma­laus verk sem geyma galdra íslenskrar nátt­úru um ókomna tíð. Á vissan hátt er bók Andra Snæs eins konar brú á milli bókanna um fugl­ana, perlurnar, hálendið og vatnið.

Upp í huga minn koma heim­sóknir Guð­mundar Páls á Garð­ars­braut­ina til mömmu og pabba, þegar hann kom í vinnu­ferðir norður og fékk að gista. Hlegið og pælt fram á kvöld, áður en nátt­úran var heim­sótt ýmist á landi, flugi eða í kafi. Andri Snær hefur sama eig­in­leika og Guð­mundur Páll þegar kemur að skrifum um Ísland. Það er virð­ing í text­anum, sem er órjúf­an­legur hluti af skila­boð­unum.

„Þú verndar aðeins það sem þú elskar, þú elskar aðeins það sem þú þekkir. Þú þekkir aðeins það sem þér er kennt. - Guð­mundur Páll Ólafsson (bls. 1)“

Bók Andra Snæs er tíma­móta­verk sem vekur les­endur til umhugs­unar um hvar við erum stödd, og af hverju okkur má ekki vera sama um jörð­ina og Ísland sem hluta af henni. Jörðin getur endað eins og rusla­haugur ef við gætum okkar ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár