Dregið úr grímuskyldu og fjöldatakmarkanir færðar upp í 150 manns

Ný reglu­gerð tekur gildi á þriðju­dag þar sem sam­komu­tak­mark­anir verða rýmkaðar. Fallið verður frá áformum um lita­kóð­un­ar­kerfi á landa­mærum og komu­far­þegum frá háá­hættu­svæðum verður ekki skylt að dvelja í sótt­varna­húsi.

Um miðjan júní er gert ráð fyrir að 60% þjóðarinnar hafi fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólusetningar.
Um miðjan júní er gert ráð fyrir að 60% þjóð­ar­innar hafi fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­setn­ingar. Mynd: EPA

Á þriðju­dag­inn mun heil­brigð­is­ráð­herra setja nýja reglu­gerð þar sem dregið verður úr grímu­skyldu og létt verður á sam­komu­tak­mörk­unum þannig að 150 manns munu mega koma saman í stað 50. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, en sótt­varna­að­gerðir voru meðal þess sem rætt var á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Samkvæmt til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins hefur heil­brigð­is­ráð­herra ákveðið að fram­lengja reglu­gerð um sótt­kví og ein­angrun og sýna­töku við landa­mærin til 15 júní næst­kom­andi. „Á þeim tíma er gert ráð fyrir að a.m.k. 60% þjóð­ar­innar, sem jafn­gildir 75% af þeim sem áætlað er að bjóða í bólu­setn­ingu, hafi fengið a.m.k. fyrri skammt bólu­setn­ingar. Með þessu er tekið undir sjón­ar­mið sótt­varna­læknis um að skyn­sam­legt sé að halda sýna­töku á landa­mærum óbreyttri um sinn í því skyni að geta hafið aflétt­ingu sýna­töku á landa­mærum um miðjan júní,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ekki skylda að dvelja í sóttvarnahúsi

Reglu­gerðin mun engu að síður taka ein­hverjum breyt­ingum. Þannig verður skyldu­dvöl í sótt­varna­húsi vegna komu frá háá­hættu­svæði felld úr gildi. Sótt­varna­húsin verða enn notuð en notk­unin fær­ist í fyrra horf. Þau verða því í notkun fyrir ein­stak­linga sem gert er að sæta sótt­kví og eiga ekki sama­stað hér á landi eða geta af öðrum sökum ekki eða vilja ekki ein­angra sig í hús­næði á eigin vegum.

Þar kemur einnig fram að reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra um bann við ónauð­syn­legum ferða­lögum frá skil­greindum áhættu­svæðum vegna COVID-19 muni falla úr gildi 1. júní næst­kom­andi.

Þá var á rík­is­stjórn­ar­fund­inum ákveðið að lita­kóða­kerfi á landa­mær­unum muni ekki taka gildi. Nú sé stefnt að því að aflétta aðgerðum á landa­mær­unum hraðar gagn­vart öllum löndum, óháð stöðu far­ald­urs­ins í þeim vegna þess að fjöldi bólu­settra eykst hröðum skrefum, eins og það er orðað í til­kynn­ing­unni. „Við slíkar aðstæður er eng­inn ávinn­ingur í því að taka upp lita­kóða­kerfi í skamman tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár