Búið að samþykkja lög um losun hafta

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði frumvarpið fram.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði frum­varpið fram.

Breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­mál, sem leiða að sér losun á fjár­magns­höftum sem hafa verið við lýði á Íslandi frá því í nóv­em­ber 2008, voru sam­þykkt á Alþingi í dag með öllum greiddum atkvæðum. Lögin öðl­ast þegar gildi. Um er að ræða langstærsta skref Íslands út úr því haftaum­hverfi sem slegið var utan um efna­hag lands­ins sem stigið hefur verið frá hruni. Rík­is­stjórnin hafði lagt mikla áherslu á að málið yrði sam­þykkt fyrir kosn­ingar. Íslend­ingar hafa búið við þær tak­mark­anir á fjár­magns­hreyf­ingum sem fylgja höftum í tæp átta ár.

Frum­varpið var lagt fram á Alþingi 17. ágúst síð­ast­lið­inn. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar og seðla­banka­stjóri kynntu aðgerð­irnar sem það felur í sér á blaða­manna­fundi dag­inn áður.

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið áætl­aði við fram­lagn­ingu frum­varps­ins að beiðnum um und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál muni fækka um 50-65 pró­sent verði frum­varpið að lög­um. Almenn­ingur mun fá að fjár­festa fyrir allt að 100 millj­ónir króna erlendis í kjöl­far þess.

Alls voru sendar úr 52 umsagna­beiðnir og bár­ust tólf umsagnir. Efnahags- og við­skipta­nefnd gerði breyt­ingar á frum­varp­inu áður en það var afgreitt sem byggði m.a. á hluta þeirra umsagna.

Tól til inngrips enn til staðar

Þótt að í breyt­ingum á höft­unum felist aukið frelsi til fjár­magns­hreyf­ingu til og frá land­inu þá verða höft ekki afnum­in. Enn verða tak­mark­anir og Seðla­banki Íslands mun áfram hafa ýmis tól til inn­grips telji hann þess þurfa.

Strax við gild­is­töku lag­anna mun bein erlend fjár­fest­ing inn­lendra aðila verða ótak­mörkuð en áfram háð stað­fest­ingu Seðla­banka Íslands. Fjár­fest­ing í fjár­mála­gern­ingum upp að ákveð­inni upp­hæð verður að mestu frjáls og ein­stak­lingar mega kaupa sér eina fast­eign á ári erlendis sem má kosta hvað sem er. Þá verður dregið úr skila­skyldu inn­lendra aðila á erlendum gjald­eyri og hún afnumin vegna lán­töku ein­stak­linga hjá erlendum aðilum vegna kaupa á fast­eign, fara­tæki eða fjár­fest­inga erlend­is. Þá munu Íslend­ingar sem hyggja á ferða­lög erlendis ekki lengur þurfa að fram­vísa flug­miða til að geta keypt gjald­eyri í banka. 

Á sama tíma verða heim­ildir Seðla­banka Íslands til upp­lýs­inga­öfl­unar aukn­ar. Starfs­fólk hans mun því mega safna umfangs­meiri upp­lýs­ingum um gjald­eyr­is­notkun Íslend­inga en áður. Þetta er sagt vera til að hjálpa bank­anum við að stuðla að verð­lags- og fjár­mála­stöð­ug­leika.

Í byrjun næsta árs verður fjár­hæð­ar­mörk til fjár­fest­inga í erlendum fjár­mála­gern­ingum hækkuð og inn­stæðu­flutn­ingur heim­il­að­ur. Það þýðir að hægt verður að leggja inn á banka­reikn­inga á milli landa að nýju án þess flækju­stigs sem nú er á slíkri aðgerð. Auk þess stendur til að rýmka heim­ildir ein­stak­linga til að kaupa gjald­eyri veru­lega.

Áætlun kynnt í fyrra­sumar

Stjórn­­völd kynntu áætlun sína um losun hafta í fyrra­sum­­­ar. Aðal­­at­riði þeirrar áætl­­unar snér­ust um að ljúka slitum þrota­­búa föllnu bank­anna og aðgerðir til að taka á hinni svoköll­uðu aflandskrón­u­snjó­­hengju í eigu erlendra aðila sem var föst innan íslenskra hafta. Samið var við kröf­u­hafa föllnu bank­anna um að þeir gæfu eftir hluta eigna sinna gegn því að fá að fara með aðrar eignir út úr höftum og var gengið frá því sam­komu­lagi á síð­­asta ári.

Næsta stóra skref var svo aflandskrón­u­út­­­boð Seðla­­banka Íslands, þar sem eig­endum slíkra voru boðnir tveir kost­­ir. Annar fólst í því að eig­end­­­­­urnir sam­­­­­þykki að selja krón­­­­­urnar sínar á geng­inu 190-220 krónur á hverja evru í útboði sem fór fram 16. júní síð­­­­ast­lið­inn. Þeir sem myndu ekki sam­­­­­þykkja að taka þátt í þessu útboð­i myndi bjóð­­­­ast að fjár­­­­­­­­­festa í sér­­­­­­­­­stök­um inn­­­­­­­­­stæð­u­bréfum útgefnum af Seðla­­­­­banka Íslands sem bera 0,5 pró­­­­­sent vexti en vextir á þeim eru end­­­­­ur­­­­­skoð­aðir árlega.

Tvo útboð voru haldin í jún­­í. Fjár­­­hæð sam­­­þykktra til­­­­­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­­­arðar króna. Alls voru 188 millj­­­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­­­ar­um­­­fang aflandskrón­u­vand­ans var fyrir það um 319 millj­­­arðar króna. Því liggur fyrir að stórir aflandskrón­u­eig­endur tóku ekki þátt í útboð­un­­um. Þar er aðal­­­lega um að ræða banda­ríska fjár­­­fest­inga­­sjóði sem hafa boðað máls­höfðun gegn íslenska rík­­inu vegna máls­ins.

Þá voru einnig fram­­kvæmdar laga­breyt­ingar sem færðu Seðla­­banka Íslands nýtt stjórn­­tæki í tengslum við und­ir­­bún­­ing los­unar hafta. Um er að ræða reglu um bind­ingu reið­u­fjár vegna nýs inn­­­streymis erlends gjald­eyris sem á að draga úr svoköll­uðum vaxta­muna­við­­skipt­u­m.

Allir ofan­­greindir þættir áttu að marka leið­ina að losun hafta á ein­stak­l­inga og fyr­ir­tæki á Íslandi. Og nú hefur verið sam­þykkt frum­varp sem losar um fjár­magns­höftin á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár