Stúdentagarðar stækka við sig í Skuggahverfi

Félags­stofnun stúd­enta hefur fengið lóð við Vatns­stíg til að fjölga íbúðum við Skugga­garða. FS mun þurfa að flytja friðað hús af lóð­inni yfir á þá næstu áður en fram­kvæmdir geta haf­ist.

Félagsstofnun stúdenta starfrækir Skuggagarða í miðbæ Reykjavíkur. Nú er stækkun í kortunum.
Félags­stofnun stúd­enta starf­rækir Skugga­garða í miðbæ Reykja­víkur. Nú er stækkun í kort­unum. Mynd: Samsett/Kjarninn

Borg­ar­ráð hefur sam­þykkt að úthluta Félags­stofnun stúd­enta (FS) íbúð­ar­húsa­lóðum við Vatns­stíg 12 og 12a í miðbæ Reykja­víkur. Heimilað bygg­ing­ar­magn á hvorri lóð fyrir sig er allt að 180 fer­metrar og á hvorri þeirra má byggja allt að sjö ein­stak­lings­í­búðir.

Hjá Félags­stofnun feng­ust þær upp­lýs­ingar að vinna við upp­bygg­ingu geti haf­ist í fyrsta lagi um mitt næsta ár. Fyrst þurfi að klára bygg­ing­ar­fram­kvæmdir á Lind­ar­götu 44 en FS vinnur nú að því að rífa hús á lóð­inni og reisa annað sem hentar starf­sem­inni betur. FS hefur átt hús­bygg­ing­una á Lind­ar­götu 44 í nokkur ár og í henni hafa verið þrjár stúd­enta­í­búðir. Í nýju húsi við Lind­ar­götu verða tíu íbúðir fyrir stúd­enta.

Á meðan sú vinna stendur yfir er unnið að hönn­un­ar­vinnu fyrir fyr­ir­huguð hús á Vatns­stíg. Til stendur að hafa í þeim litlar ein­stak­lings­í­búðir með bað­her­bergi og sam­eig­in­legri eld­hús­að­stöðu. Gert er ráð fyrir fram­kvæmdir við Vatns­stíg muni taka í það minnsta 12 til 14 mán­uði eftir að þær hefj­ast á næsta ári.

Þurfa að flytja friðað hús nokkra metra

Í bréfi frá skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara sem lagt var fyrir fund borg­ar­ráðs í síð­ustu viku kemur fram að FS muni greiða 45 þús­und krónur á hvern fer­metra fyrir bygg­ing­ar­rétt við Vatns­stíg, alls 16,2 millj­ónir, en það er verð bygg­ing­ar­réttar fyrir hús­næð­is­fé­lög sem rekin eru án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. Til við­bótar greiðir FS rúma 5,1 milljón í gatna­gerð­ar­gjöld. „Á móti bygg­ing­ar­rétti verður skulda­jafnað stofn­styrk sem nemur 16.200.000 kr.,“ segir í bréf­inu.

Á lóð­unum sem FS hefur fengið úthlutað, nánar til­tekið við Vatns­stíg 12, stendur friðað hús. Sam­starfs­samn­ingur milli Reykja­víkur og FS sem und­ir­rit­aður var í lok síð­asta mán­aðar kveður á um að FS muni sjá um flutn­ing húss­ins á Vatns­stíg 12 yfir á Vatns­stíg 10. Þar mun Félags­stofnun byggja nýjan kjall­ara sem gamla húsið verður flutt á. FS mun svo sjá um end­ur­gerð húss­ins og bygg­ingu við­bygg­ingar. Áður en að öllu þessu verður mun Reykja­vík­ur­borg rífa núver­andi hús á Vatns­stíg 10.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár