Lýsir Klíníkinni sem verksmiðju: „Ekki verið að hugsa um manneskjuna heldur peninginn“

Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir, 48 ára gömul kona sem greind­ist með krabba­mein árið 2021, fór í maga­ermis­að­gerð á Klíník­inni. Hún seg­ist ekki hafa hitt neinn starfs­mann Klíník­ur­innar fyrir aðgerð­ina og ekki fengið neina eft­ir­með­ferð. Geir­þrúður þurfti að nýta þjón­ustu rík­is­rekna Sjúkra­hót­els­ins og leita til Land­spít­al­ans eftir aðgerð­ina af því hún var svo veik.

Ætlar að leita til Landlæknis
Ætlar að leita til Land­læknis Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir ætlar að leita til emb­ættis Land­læknis út af með­ferð­inni sem hún fékk á Klíník­inni þegar hún fór í maga­ermi þar í árs­byrjun 2021. Mynd: Aníta Eldjárn Kristjánsdóttir

Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir, 48 ára gömul fjög­urra barna móðir sem býr á Akureyri, fór í maga­ermis­að­gerð hjá Aðal­steini Arn­ar­syni, skurð­lækni á Klíník­inni, í árs­byrjun 2021, þremur dögum eftir að hafa fengið að vita að hún væri með 3. stigs brjóstakrabba­mein. Hún fór svo í skurð­að­gerð á Land­spít­al­anum vegna krabba­meins­ins rúmum mán­uði eftir að hafa farið í maga­erm­ina. Þá hafði hún verið hund­veik og þurft að fá heil­brigð­is­þjón­ustu á Sjúkra­hót­eli Land­spít­al­ans og á sjúkra­hús­inu sjálfu eftir aðgerð­ina. „Ég fór í brjóst­nám vegna krabba­meins­ins þann 10. mars. Ég var enn þá að jafna mig eftir maga­ermis­að­gerð­ina þarna og í kjöl­farið á krabba­meins­að­gerð­inni gat ég ekki borðað í meira en fjóra mán­uði og þurfti að nota sondu til að nær­ast,“ segir Geir­þrúður í við­tali við Heim­ild­ina. 

„Mér leið bara eins og ég væri í ein­hverri verk­smiðju“
Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir,
48 ára krabba­meins­sjúk kona um aðgerð­ina sem …
Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið undanfarið ár