Fréttastofa RÚV hefur gögnin ekki undir höndum

Hvorki frétta­menn RÚV, vakt­stjórar né frétta­stjórar hafa aðgang að þeim gögnum sem þáttur Kast­ljóss er byggður á. Alþjóð­legt birt­ing­ar­bann ríkir um gögnin til klukkan 18 í kvöld. For­sæt­is­ráð­herra skrifar pistil um afstöðu hans til RÚV.

Starfsfólk fréttastofu RÚV hefur ekki aðgang að lekagögnunum sem verða gerð opinber í kvöld.
Starfs­fólk frétta­stofu RÚV hefur ekki aðgang að leka­gögn­unum sem verða gerð opin­ber í kvöld. Mynd: Samsett mynd

Hvorki frétta­menn RÚV, vakt­stjórar á frétta­stofu né frétta­stjórar hafa haft aðgang að þeim gögnum sem þáttur Kast­ljóss, sem sýndur verður klukkan 18 í sjón­varp­inu, er byggður á. Alþjóð­legt birt­inga­bann er á gögn­unum til klukkan 18 að íslenskum tíma í kvöld, en þá birta fjöl­miðlar víða í Evrópu fréttir sínar sam­tímis. Aðeins Alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna hefur heim­ild til að gera gögnin opin­ber.

Þetta er haft eftir Rakel Þor­bergs­dóttur, frétta­stjóra frétta­stofu RÚV, á vef þeirra. Þar segir Rakel að þar sem þátt­ur­inn hafi verið umfangs­meiri fram­leiðsla en hefð­bund­inn Kast­ljós­þáttur hafi hann orðið sam­vinnu­verk­efni frétta­stof­unnar og inn­lendrar dag­skrár­deildar.

„RÚV greiðir Jóhannes Kr. Krist­jáns­syni sem sam­svarar 2-3 mán­aða launum fyrir und­ir­bún­ings­vinnu, myndefni og vinnu Reykja­vík Media við þátt­inn eða 1,5 millj­ónir króna. Upphæðin er sam­bæri­leg greiðslu á sýn­ing­ar­rétti heim­ild­ar­mynda,“ segir Rakel í sam­tali við ruv.is.

Útskýrir þögn sína gagnvart RÚV í nýjum pistli

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur neitað RÚV um við­tal und­an­farnar vikur, eða síðan Wintris málið svo­kall­aða kom upp. Á sama tíma hefur Sig­mundur verið í löngu for­síðu­við­tali við Frétta­blaðið, spjallað við Arnþrúði Karls­dóttur á Útvarpi Sögu og mætt oftar en einu sinni í við­töl á Bylgj­unni. Hann hefur ekki viljað gefa neinar útskýr­ingar á þessu, fyrr en seinni­part­inn í dag, þegar hann skrifar pistil á heima­síðu sína sem ber heitið Stóra myndin.

Þar segir Sig­mundur:

„Það þykir frétt að konan mín sé kröfu­hafi af þeirri gerð sem hefur verið lát­inn taka á sig tap á meðan eng­inn spyr um alla hina kröfu­haf­ana, stjórn­mála­menn og maka þeirra sem fengu allar sínar kröfur greiddar. Því er meira að segja ruglað saman vilj­andi að hafa átt inni pen­inga hjá bönk­unum fyrir hrun (rétt eins og inni­stæðu­eig­endur) og tapað á því og svo vog­un­ar­sjóð­unum sem keyptu kröfur eftir fall bank­anna til að græða á þeim."

Þá útlistar Sig­mundur Davíð þrjú atriði:

1. Það hefur komið í ljós að konan mín, sem allir máttu vita að ætti mikla pen­inga eftir reglu­bundana fjöl­miðlaum­fjöllun í mörg ár, hefur greitt af þeim fullan skatt til íslensks sam­fé­lags fremur en að nýta tæki­færi til að greiða skatta erlendis. Jú, bank­inn stofn­aði fyrir hana félag og skráði það eins og títt var á sínum tíma í landi sem gerir út á að halda utan um fyr­ir­tæki fyrir fólk. Hins vegar hefur hún aldrei átt pen­inga í skatta­skjóli né verið með aflands­fé­lag til að greiða skatta erlendis því félagið og eignir þess eru skatt­aðar á Íslandi.

2. Það hefur líka komið í ljós að stefnan sem ég setti á dag­skrá og var sögð óraun­hæf eigna­upp­taka hefur orðið til þess að konan mín hefur þurft að taka á sig enn meira tap (umfram kröfu­hafa sem áttu inni­stæður osfrv).

3. Loks hefur komið í ljós að konan mín hefur forð­ast að skapa árekstra við stjórn­mála­störf mín með því að nýta með­vitað ekki mögu­leika á að kaupa krónur á afslætti og fjár­festa hér í verð­tryggðum hávaxtakrónum eða íslenskum fyr­ir­tækjum. Hún hefði getað hagn­ast á því en kaus að nýta sér ekki þá mögu­leika.

Varðandi þögn hans gagn­vart RÚV, gerir Sig­mundur pistil Sigrúnar Dav­íðs­dóttur um eignir eig­in­konu hans að umtals­efni. Hann segir:

„Konan mín sem hefur alltaf viljað leggja sitt af mörkum til íslensks sam­fé­lags, konan sem tap­aði á falli bank­anna, taldi sjálf­sagt að tapa meiru til að tryggja eignir ann­arra kröfu­hafa, þ.e. spari­fjár­eig­enda. Hún tap­aði líka á þeirri leið sem ég boð­aði til að koma til móts við skuld­sett heim­ili og verja efna­hags­stöð­ug­leika og var öfl­ug­asti hvata­maður minn í þeim efnum og tap­aði svo loks á því að vilja ekki skapa árekstra með því að kaupa krónur á afslætti og fjár­festa í íslenskum fyr­ir­tækjum eða verð­tryggðum íslenskum hávaxtakrónum.

Laun hennar eru þau að RÚV með Sigrúnu Dav­íðs­dóttur í broddi fylk­ingar, eftir skrif um banka­út­rás­ina, Icesave og vog­un­ar­sjóð­ina, birtir frétt með mynd af henni undir fyr­ir­sögn­inni: „Wintris-málið: „Íslands sjálftöku­menn“

Svo er ég spurður af hverju ég sé ekki búinn að fara í við­tal á RÚV." 

Þá ber að taka fram að Kjarninn hefur ekki fengið svör við fyr­ir­spurnum sínum sem beinst hafa til Jóhann­esar Þórs Skúla­sonar und­an­farið vegna sömu mála, meðal ann­ars um skatta­mál for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna. 

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár