92 prósent þeirra sem horfðu á sjónvarp sáu Kastljósþáttinn

Samkvæmt bráða­birgða­tölum frá Gallup var með­al­á­horf á Kast­ljós­þátt gær­dags­ins 49 pró­sent og upp­safnað áhorf á þátt­inn var 58 pró­sent. Þá var þátt­ur­inn með 92 pró­sent hlut­deild á meðal þeirra sem voru að horfa á sjón­varp á meðan að hann stóð yfir. Inni í þessum tölum eru ekki upp­lýs­ingar um þá sem horfðu á Kast­ljós­þátt­inn á net­inu.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var aðal­um­fjöll­un­ar­efni sér­staks Kast­ljós­þáttar um aflands­fé­laga­eign íslenskra stjórn­mála­manna sem sýndur var í gær. Þar gekk hann meðal ann­ars út úr við­tali við sænska sjón­varps­mann sænska rík­is­sjón­varps­ins og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóra Reykja­vík Media, þegar hann var spurður út í aflands­fé­lagið Wintris. Fjórum dögum eftir að við­talið var tekið opin­ber­aði eig­in­kona Sig­mundar Davíð að hún ætti erlent félag í stöðu­upp­færslu á Facebook. Síðar kom í ljós að Wintris var einnig stór kröfu­hafi í bú allra föllnu bank­anna og að Sig­mundur Davíð var sjálfur eig­andi helm­ings­hlutar í félag­inu þegar þeir kröfum var lýst. Fjallar var um málið í tugum fjöl­miðla út um allan heim í gær. Þeirra á meðal voru BBC, DR, NRK,SVT, The Guardian, Aften­posten, Le Monde og þýska stór­blaðið Sueddeutsche Zeitung, sem leiddi umfjöll­un­ina alþjóð­lega.

[adspot]

Fleiri voru til umfjöll­unar í Kast­ljós­þætt­inum heldur en Sig­mundur Davíð.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, átti 40 millj­óna hlut í félagi sem skráð var á Seychelles-eyjum. Farið var yfir skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins Falson og Co. sem Bjarni átti hlut í. Hann hafði áður neitað því að eiga, eða hafa átt, pen­inga í skatta­skjólum. Bjarni sagði félagið hafa verið stofnað í kring um félag sitt og félaga sinna til að kaupa fast­eign í Dubai, sem varð þó aldrei af. Hann svar­aði fyrir þetta í síð­ustu viku svo að hann hafi haldið að félagið hafi verið skráð í Lux­em­borg, en ekki á skatta­skjóls­eyj­unum. Félagið var sett í afskrán­ing­ar­ferli 2009.

Fjallað var um mál­efni Ólafar Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns hennar, Tómasar Sig­urðs­sonar, þáver­andi for­stjóra Alcoa á Íslandi. Hún er þriðji ráð­herr­ann í gögn­unum. Tveimur dögum eftir að hún sigr­aði í próf­kjöri voru Ólöf og Tómas skráðir próf­kúru­hafar Dooly Securities á Tortólu. Félagið var sett á lagg­irnar fyrir þau hjón og heim­ildir þeirra voru til staðar. Hluta­bréfin voru hand­veð­sett með sam­komu­lagi í ágúst 2007. Félagið var afskráð 2012 á Tortólu. Ólöf skráði aðild sína að félag­inu aldrei í hags­muna­skrá.

Þá var Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til umfjöll­unar vegna vörslu­sjóðs sem hann á í Panama. Júlíus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í vik­unni þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofnun. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Foundation.

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­valla­vina, var einnig til umfjöll­unar. Svein­björg átti hlut­deild í aflands­fé­lagi sem var í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Panama. Á heima­síðu Reykja­vik Media kemur fram að Svein­björg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lög­fræði­stof­unar Mossack Fonseca; 7Callinvest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borg­ar­stjórn ítrekað lýst sig and­víga því að Reykja­vík­ur­borg eða fyr­ir­tæki á hennar vegum eigi aðild að fyr­ir­tækjum á aflandseyjum.

Þá var fjallað um mál­efni Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns hennar, Hall­bjarnar Karls­sonar verk­fræð­ings. Þorbjörg og Hall­björn eru skráð fyrir félag­inu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eigna­laust. Þorbjörg Helga var kjörin í borg­ar­stjórn 2006 og sat sem borg­ar­full­trúi til árs­ins 2014.

Enginn þess­ara kjörnu full­trúa skráðu félögin sín í hags­muna­skrán­ingu, hvorki á Alþingi né hjá Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár