Engin tveggja ríkja lausn?

Allar til­raunir til að stilla til friðar fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs síð­ustu ára­tugi hafa gert ráð fyrir stofnun sjálf­stæðs ríkis Palest­ínu­manna á Vest­ur­bakk­anum og Gaza en þær til­raunir hafa líka allar mis­tek­ist hrapal­lega. Ísraelar hafa með skipu­lögðum hætti grafið undan öllum grund­velli fyrir slíku ríki en sumir fræði­menn telja víst að með því hafi þeir um leið gert út af við fram­tíð Ísraels sem ríki Gyðinga.

Götumarkaður í Austur-Jerúsalem
Götu­mark­aður í Austur-Jer­úsalem Meiri­hluti Austur-Jer­úsalem eru Palest­ínu­menn. Vaxandi hópur harð­línu­manna í ísra­elskum stjórn­málum vill gera til­kall til enn meira lands og losna við alla Palest­ínu­menn með einum eða öðrum hætti. Mynd: Shutterstock

Í höf­uð­stöðvum vatns­veit­unnar í Ramallah á Vest­ur­bakk­anum sátu verk­fræð­ingar og biðu eftir sím­tali frá Ísrael þegar und­ir­rit­aðan bar að garði einn dag­inn. Þeir urðu varir við bilun tveimur dögum áður en höfðu ekki fengið leyfi til að fara og athuga málið, enda sitja ísra­elskir her­menn um vatns­lind­irnar á þessu mikla þurrka­svæði. „Við þurfum nán­ast leyfi til að fara á kló­settið, það er dag­lega nið­ur­læg­ingin sem felst í her­nám­inu sem er erf­ið­ast að þola,“ segir einn þeirra. Palest­ínu­menn eru minntir á það oft á dag að þeir ráða ekki eigin örlögum.

Á einum veggnum var stórt kort af Vest­ur­bakk­anum sem líkt­ist helst nútíma­lista­verki. Það sýndi ótal land­töku­byggðir, girð­ingar og vegi sem skera land Palest­ínu­manna niður í búta. Síðan þá hafa bæst við háir múrar sem ná langt inn fyrir meira að segja þau landa­mæri sem Ísra­els­menn hafa teiknað og taka því enn meira land. Það gefur auga­leið að það er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár