Safna upplýsingum um allar ferðir notenda á prufutímabili

Þeir sem ákveða að prófa nýtt for­rit sem VÍS notar til að fylgj­ast með akst­urs­lagi við­skipta­vina sinna þurfa að sam­þykkja að veita trygg­inga­fé­lag­inu aðgang að snjall­síma­gögnum um ferðir sínar á meðan prufu­tíma­bili stendur.

Auglýsingar fyrir þessa nýjung frá VÍS hafa verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu.
Aug­lýs­ingar fyrir þessa nýj­ung frá VÍS hafa verið áber­andi í fjöl­miðlum að und­an­förnu. Mynd: VÍS

Snjall­símafor­ritið Ökuvísir, tengt nýrri lausn fyrir bíla­trygg­ingar sem VÍS hefur sett á markað og aug­lýsir nú ákaft, fær aðgang að flokki gagna í Apple-símum sem heitir Health & Fitness, sam­kvæmt því sem fram kemur þegar not­endur App Store skoða hvaða gögn for­ritið hag­nýtir.

Þetta var til umræðu í nýjasta þætti Tækni­varps­ins, en eng­inn þriggja þátt­ar­stjórn­enda hafði reyndar sótt Ökuvísi. Fyrstu svör um þessa gagna­söfnun, sem borist höfðu frá þjón­ustu­veri VÍS, þóttu þó eilítið óskýr.

Kjarninn skoð­aði málið og kann­aði hvort VÍS væri að safna ein­hverjum heilsu­fars­upp­lýs­ingum um not­endur sína í gegnum Ökuvísi. Það seg­ist fyr­ir­tækið ekki gera og svo er ekki að sjá heldur, eftir að for­ritið hefur verið sett upp.

Ökuvísir biður ekki um aðgang að þeim heilsu­gögnum sem safn­ast saman í snjall­sím­anum. Forritið biður hins vegar um aðgang að upp­lýs­ingum um hreyf­ingu og not­and­inn þarf að sam­þykkja að láta frá sér gögn sem falla undir Motion & Fitness þegar for­ritið er virkjað.

Þegar frið­helg­is­upp­lýs­ingar for­rits­ins eru skoð­aðar í App Store flokk­ast þessir tveir flokkar saman undir yfir­flokknum Health & Fitness en þegar for­ritið hefur verið sett upp er ljóst að það biður ein­ungis um aðgang að upp­lýs­ingum um hreyf­ingu, ekki heilsu­gögnin sem slík.

VÍS fær þannig ekki upp­lýs­ingar um hvíld­ar­púls eða mögu­legar hjart­slátt­ar­trufl­anir not­and­ans, en slík gögn safn­ast saman í heilsu­for­rit­inu í sím­anum ef fólk er með snjallúr um úln­lið­inn. Forritið fær þó aðgang að gögnum um hreyf­ingu; hversu mörg skref eru tekin, upp hversu margar tröppur er gengið og hversu marga kíló­metra á dag er ferð­ast, bæði í bíl, gang­andi eða hjólandi.

Gögnum um ferðir einungis safnað stöðugt á 14 daga prufutímabili

„Appið er ekki að fá neinar heilsu­fars­upp­lýs­ingar ─ heldur ein­göngu upp­lýs­ingar um hvort sím­inn sé á hreyf­ingu,“ segir í svari til Kjarnans frá Erlu Tryggva­dóttur, sam­skipta­stjóra trygg­inga­fé­lags­ins.

Hún sagði einnig að upp­lýs­ingum væri ein­ungis safnað beint úr símum not­enda á 14 daga prufu­tíma­bili for­rits­ins, en að þeim tíma liðnum fái þeir sem kjósa að nota þessa lausn að lítið mæli­tæki í bíl­inn. Í kjöl­farið séu bara bíl­ferð­irnar mældar, en sím­inn teng­ist mæli­tæk­inu með Bluetooth.

[adspot]

„Þetta er ein­göngu á prufu­tíma­bil­inu en eftir að við­kom­andi kaupir trygg­ing­una og fær kubb­inn byrjar appið ekki að mæla fyrr en það teng­ist kubbnum,“ sagði í svari Erlu.

Tryggingafélög erlendis fylgjast með heilsu og hreyfingu

Erlendis hefur sú þróun átt sér stað að trygg­inga­fé­lög bjóða upp á nýj­ungar þar sem upp­lýs­ingum um heilsu og hreyf­ingu úr snjall­tækjum er safnað með sam­þykki not­and­ans. Mark­miðið virð­ist vera að skapa hvata fyrir fólk til þess að hreyfa sig meira, sem er skilj­an­legt frá sjón­ar­hóli trygg­inga­fé­lag­anna, enda ódýr­ara að tryggja fólk sem er vel á sig komið lík­am­lega.

Breska trygg­inga­fé­lagið Vitality býður til dæmis við­skipta­vinum sínum upp að fá gef­ins Apple-úr, ef not­end­urnir leyfa trygg­inga­fé­lag­inu að fylgj­ast með hversu mikið þeir sjálfir hreyfa sig og standa við ákveðin við­mið um hreyf­ingu. Ef þeir stand­ast ekki við­mið um hreyf­ingu þurfa þeir að borga sjálfir fyrir úrið. Svipað hefur verið að ger­ast í Banda­ríkj­unum. Þar eru dæmi um að upp­hæðin sem fólk greiðir fyrir sjúkra­trygg­ingar sé að ein­hverju marki tengd við upp­lýs­ingar um bæði hreyf­ingu og heilsu­far sem safnað er með snjallúrum.

Á Íslandi er þessi þróun ekki komin af stað, en við­búið er að þetta gæti orðið veru­leik­inn í náinni fram­tíð. VÍS er með Öku­vís­inum sínum að kynna til leiks fyrstu lausn­ina þar sem tækn­inni er beitt til þess að ákvarða iðgjöld á íslenskum vátrygg­inga­mark­aði, en for­ritið mælir akst­urs­lag bíl­stjóra.

Yfirlýst markmið VÍS að auka umferðaröryggi

Kjarninn ræddi við Helga Bjarna­son for­stjóra VÍS um þessa nýj­ung í lok síð­asta sum­ars, í kjöl­far þess að trygg­inga­fé­lagið óskaði eftir ein­stak­lingum til að prófa vör­una áður en hún kæmi á markað. Í kjöl­farið spruttu upp umræður um það hvort fyr­ir­tækið sé ekki að ganga of langt í raf­rænu eft­ir­liti með við­skipta­vinum sínum.

Helgi sagði í því við­tali að VÍS myndi aldrei setja vöru í loftið sem væri ekki í sam­ræmi við gild­andi per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf. „Við leggjum mikla áherslu á að eiga náið og þétt sam­tal við Per­sónu­vernd um Öku­vís­inn,“ sagði hann.[links]

Hann sagði einnig að VÍS væri að horfa til þess að verð­leggja trygg­ingar eftir akst­urs­lagi fremur en tjóna­sögu.

„Ég held að þetta hjálpi okkur öllum að verða betri öku­menn, bæði góðum að verða betri og líka þeim sem eru ekki góðir að verða góð­ir. Þannig sjáum við þetta fyrir okkur og okkar sýn og okkar trú er að þetta muni fækka slysum í umferð­inni sem er gríð­ar­lega stórt sam­fé­lags­mál,“ sagði Helg­i.

Yfirgripsmikil persónuverndarstefna

Þegar not­endur setja upp for­ritið frá VÍS þurfa þeir að sam­þykkja skil­mála ítar­legrar per­sónu­vernd­ar­stefnu, þar sem útskýrt er hvernig VÍS vinnur með þær per­sónu­upp­lýs­ingar sem safn­ast í gegnum for­ritið.

Þar segir meðal ann­ars að aðgangur að þeim upp­lýs­ingum sem Ökuvísir safnar sé háður „ströngum aðgangs­stýr­ingum“ og starfs­menn VÍS og vinnslu­að­ilar fái ein­göngu aðgang sem er nauð­syn­legur til að hver og einn geti sinnt starfi sínu.

[adspot]

Einnig séu öll hrá­gögn dulkóðuð og varð­veitt undir gervi­auð­kennum í grunn­kerfum VÍS og vinnslu­að­ila, sem er banda­rískt fyr­ir­tæki sem heitir Cambridge Mobile Telematics, en það fyr­ir­tæki notar gögnin til að gefa not­endum end­ur­gjöf á akst­ur­inn og þjón­ustar sam­bæri­legar lausnir trygg­inga­fé­laga erlendis.

„Starfs­menn VÍS hafa ekki aðgang að per­sónu­grein­an­legum stað­setn­ing­ar­upp­lýs­ingum við­skipta­vina. Aðgangur starfs­manna er skráður og rekj­an­legur og allur aðgangur er yfir­far­inn reglu­lega,“ segir í per­sónu­vernd­ar­stefn­unni.

Safna bara bílferðum þegar búið er að kaupa tryggingarnar

Þar er einnig vakin sér­stök athygli á því að á 14 daga prufu­tíma­bil­inu mæli for­ritið allar ferðir not­and­ans. „Ástæðan fyrir því er sú að mæli­tækið er ekki sent til við­skipta­vina fyrr en búið er að ganga frá vátrygg­inga­samn­ingi. Um leið og þú hefur stað­fest við okkur ákvörðun þína um að kaupa trygg­ing­una færðu mæli­tækið sent og þá er hægt að tryggja að Ökuvísir safni ein­göngu upp­lýs­ingum um ferðir þínar í hinu vátryggða öku­tæki,“ segir í per­sónu­vernd­ar­stefn­unni.

Þar er því heitið að per­sónu­upp­lýs­ing­arnar sem safn­ist verði ekki nýttar í öðrum til­gangi en þeim að fylgj­ast með öku­ferðum.

„Við notum ekki per­sónu­upp­lýs­ingar þínar í neinum öðrum til­gangi en sam­kvæmt því sem fram hefur komið í þess­ari per­sónu­vernd­ar­stefnu. Per­sónu­upp­lýs­ingar þínar verða t.d. ekki nýttar við vinnslu tjóna­mála, við áhættu­mat eða verð­lagn­ingu á öðrum vátrygg­ingum, mark­aðstil­gangi og þær verða aldrei seldar til þriðja aðila,“ segir VÍS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár