Nýr skilningur á stærstu eldgosum Íslandssögunnar

Um það bil 1,5 kílómetra löng gossprunga opnaðist norðaustan Bárðarbungu í Holuhrauni. Nýja hraunið þekur nær 85 ferkílómetra.
Um það bil 1,5 kíló­metra löng gossprunga opn­að­ist norð­austan Bárð­ar­bungu í Holu­hrauni. Nýja hraunið þekur nær 85 fer­kíló­metra. Mynd: NASA

Rann­sóknir á sigi öskj­unnar í Bárð­ar­bungu í aðdrag­anda og á meðan Holu­hrauns­gos stóð varpa nýju ljósi á orsakir stærstu hraun­gosa Íslands­sög­unnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein hóps vís­inda­manna í tíma­rit­inu Science sem kom út í gær.

Eldgosið í Holu­hrauni er að stærsta sem orðið hefur á Íslandi í tvær aldir og þarf, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Jarð­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands að leita aftur til Skaft­ár­elda til að finna stærra eld­gos. Öskju­sigið í Bárð­ar­bungu er það fyrsta sem hægt hefur verið að mæla nákvæm­lega á meðan því stóð vegna þess að vís­inda­menn höfðu komið fyrir fjölda mæli­tækja í og við öskj­una.

[adspot]

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sýna að hraunið sem kom upp í Holu­hrauni kom úr kviku­hólfi undir Bárð­ar­bungu. Jarð­skjálfta­hrina 16. ágúst 2014 bendir til þess að kvika hafi brot­ist úr kviku­hólf­inu og myndað kviku­gang ofar í jarð­skorp­unni til norð­aust­urs. Nokkrum dögum síðar hófst öskju­sigið í Bárð­ar­bungu þegar þrýst­ingur í kviku­hólf­inu hafði fallið veru­lega.

Í tvær vikur braut kvikan í kviku­gang­inum sér leið upp á yfir­borðið og kom upp í Holu­hrauni 31. ágúst. Leiðin var 48 kíló­metra löng úr kviku­hólf­inu undir Bárð­ar­bungu og réðst öskju­sigið aðal­lega af eig­in­leikum þessa kviku­gangs og þunga „þaks­ins“ ofan á kviku­hólf­inu. Hægt og rólega dró úr hraun­rennsli á yfir­borð­inu vegna þess að þrýsimun­ur­inn milli Bárð­ar­bungu og Holu­hrauns minnk­aði.

Þessi atburða­rás er, að mati vís­inda­mann­anna, talin varpa nýju ljósi á orsakir stærstu hraun­gosa í Íslands­sög­unni; Rekja megi stærstu eld­gosin til öskju­sigs í meg­in­eld­stöðvum á Íslandi sam­fara gliðn­un­ar­hrinum, þe. þegar jarð­skorpuflekar eru á hreyf­ingu.

Und­an­farna mán­uði hefur jarð­skjálfta­virkni auk­ist jafnt og þétt í Bárð­ar­bungu. Óvíst er hvort það sé und­an­fari frek­ari eldsum­brota í þess­ari víð­fem­ustu meg­in­eld­stöð á Íslandi en nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sem birt er í Science ætti að gefa vís­inda­mönnum betri skiln­ing á virkni eld­stöðv­ar­innar.

Við sigið í öskju Bárð­ar­bungu mynd­að­ist djúp lægð á ísbreið­unni yfir öskj­unni. Sú lægð hefur grynnkað um átta metra á ári síðan í umbrot­unum vet­ur­inn 2014-2015, vegna inn­flæðis íss og snjó­söfn­unar. Samkvæmt sam­an­tekt frá fundi vís­inda­manna­ráðs almanna­varna í lok júní eu lík­leg­ustu skýr­ingar á sjálfta­virkn­inni og aflögun öskj­unar inn­flæði kviku í kviku­hólfið undir öskj­unni, sama kviku­hólf og spýtti kviku í Holu­hrauns­gosi. Þetta sé eðli­leg hegðun eld­stöðva í kjöl­far eld­goss.

Skaft­ár­eldar árið 1783-1784 eru meðal stærstu eld­gosa í Íslands­sög­unni. Í því eld­gosi urðu Laka­gígar til, eftir fjall­inu Laka sem er í næsta nágrenni. Þá opn­að­ist gíga­röð vestan Vatna­jök­uls. Vís­inda­menn telja nú að þar hafi orðið svipuð atburða­rás og í eld­gos­inu í Holu­hrauni. Öskjusig hafi orðið í Grím­svötnum um leið og kvika úr kviku­hólf­inu undir Grím­svötnum hafi brotið sér leið á yfir­borðið vestan jök­uls­ins.

Skaft­ár­eldar eru taldir hafa verið orsök einna mestu þjóð­fé­lags­breyt­inga í Íslands­sög­unni. Sökum eld­goss­ins; ösku­falls og gosmóðu urðu miklar hörm­ungar á Íslandi sem einu nafni eru kölluð Móðu­harð­indin. Margir flúðu upp­skeru­brest og eymd á Íslandi hvort sem var erlendis eða inn­an­lands. Eldgosið hafði einnig áhrif á veð­ur­far ann­ar­staðar á norð­ur­hveli jarðar. Þess vegna er til dæmis talið að Skaft­ár­eldar hafi verið ein orsök þess að upp­skeru­brestur varð á meg­in­landi Evrópu í aðdrag­anda frönsku bylt­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár