Hátt í 50 manns verið orðaðir við forsetann

Um fimm­tíu manns hafa verið orð­aðir við for­seta­emb­ættið í kring um kom­andi kosn­ingar. Jafn margir eru nú í fram­boði og hafa íhugað, en ekki tekið slag­inn. Tveir liggja enn undir feldi.

Á bil­inu 40 til 50 manns hafa verið orð­aðir við for­seta­emb­ættið á einn eða annan síðan Ólafur Ragnar Grímsson sagð­ist á nýj­árs­dag ekki ætla að bjóða sig fram aftur. Fyrst um sinn var nafn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, hvað mest í umræð­unni en hún gaf það úr síðar eftir tölu­verða umhugsun að hún ætli ekki að bjóða sig fram. Jón Gnarr lét líka bíða svo­lítið eftir sér þar til hann sagði nei. Ólafur Jóhann Ólafsson mæld­ist lengi með yfir­burði í könn­unum. En nöfn þeirra eiga ekki lengur við. 

Nú eru það Guðni Th. Jóhann­es­son, Andri Snær Magnason og Ólafur Ragnar Grímsson sem lík­leg­ast eftir að berj­ast um fylgið í skoð­ana­könn­unum. Halla Tóm­as­dóttir er eina konan sem hefur mælst með yfir tveggja pró­senta fylgi í könn­unum. Guðni er að mæl­ast með meira fylgi heldur en Andri Snær, þó að hann hafi ein­ungis til­kynnt fram­boð sitt á fimmtu­dag. Mun fleiri hafa þó verið orð­aðir við emb­ættið án þess að hafa gefið það út að þeir hafi verið að hugsa málin á nokkurn hátt.

Tíminn er naumur

Enginn hefur enn skilað inn gildu fram­boði til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en frestur til þess rennur út á mið­nætti 20. maí. Fyrir þann tíma þarf að vera búið að skila inn umsóknum og 1.500 gildum und­ir­skriftum, skipt niður á milli lands­fjórð­unga.

Í dag eru þrettán manns í fram­boði til for­seta. Fimm hafa dregið fram­boð sitt til baka eftir að Ólafur Ragnar skipti um skoðun og enn fleiri hafa íhugað alvar­lega, en ákveðið að taka ekki slag­inn. Mikill fjöldi hefur legið undir feld­inum fræga og ekki eru allir enn komnir undan honum, en Sigrún Stef­áns­dóttir og Stefán Jón Hafstein hafa ekki gefið upp ákvörðun sína. Síðustu viku hellt­ust þrjár konur úr lest­inni: Guðrún Nordal, Ellen Calmon og Berglind Ásgeirs­dóttir. Skoð­ana­kann­anir og umræður í fjöl­miðlum hafa þó ekki dregið allan vind úr fram­bjóð­endum, sem eru hvergi af baki dottnir.

Bjartsýnir frambjóðendur

Guðrún Margrét Páls­dóttir segir það ekki líta út þannig núna að hún gæti unnið slag­inn. „En ég trúi því að allt geti gerst,” segir hún. Halla Tóm­as­dóttir hefur ekki verið í Reykja­vík í rúma viku og hefur ferð­ast um landið. „Ég fæ mjög góðar und­ir­tektir,” segir hún. „Það er of snemmt að dæma um hvernig fer. Baráttan byrjar ekki fyrr en frest­ur­inn rennur út.”

Hildur Þórð­ar­dóttir segir að allt sé á fullu og að hún sé að verða búin að safna und­ir­skriftum. „Ég á alveg séns. Um leið og fólk fær að kynn­ast mér þá segja allir sem ég hitti: Þú ert mitt val, minn kostur. Ég vil sjá þig á Bessa­stöðun. Ég finn mik­inn stuðn­ing,” segir Hildur.

Sturla Jónsson er að reyna að koma frá sér þeim und­ir­skriftum sem hann hefur safnað. Hann er bjart­sýnn á fram­haldið þó að hann hafi ekki verið að mæl­ast hátt í stærri skoð­ana­könn­unum. „Ég ætla að halda mig við könnun á Útvarpi Sögu, þá hafði ég 34 pró­sent. Ég er ekki hafður með í öllum skoð­ana­könn­unum, að mér skilst,” segir hann.

Benedikt Kristján Mewes gerir sér engar vonir um sigur. „Ég held alls ekki að ég geti unnið, en mig langar ekki að gef­ast upp. Sam­keppnin er mjög hörð en það þýðir ekki að draga fram­boð mitt til baka og valda fólk­inu sem hefur skrifað undir von­brigðum,” segir hann. Hann er kom­inn með um 100 und­ir­skriftir. 

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir er enn á fullu að safna und­ir­skriftum og gengur vel. „Ég held ótrauð áfram,” segir hún. „Þetta snýst um að kom­ast á næsta stig, inn í fram­boðið. Annars er fjög­urra mán­aða vinna fyrir bý.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár