Færðu sig úr fullkominni kannabisframleiðslu í fiskútflutning

Feðgar sem gripnir voru fyrir kannabis­framleiðslu árið 2016 settu ári seinna á fót fisk­útflutnings­fyrirtæki sem hefur undan­farin tvö ár velt nærri tveimur milljörðum króna. Dómur fyrir kannabis­framleiðslu og peninga­þvætti var kveðinn upp í sumar.

Feðgar sem stofnuðu og koma að rekstri fisk­útflutnings­fyrir­tækisins Arctic Ocean Seafood voru í sumar dæmdir fyrir aðild að umfangs­mikilli kannabis­framleiðslu og peninga­þvætti, sem lögregla komst á snoðir um árið 2016. Um er að ræða þá Hákon Elfar Guðmundsson, Fannar Örn Hákonarson og Ómar Hákonarson.

Dómur Héraðs­dóms Reykja­víkur í málinu er ónafn­greinanlegur, en Kjarninn hefur heimildir fyrir því að feðgarnir séu þeir sem á sínum tíma voru hnepptir í gæslu­varðhald vegna málsins og sömuleiðis þeir sem þyngsta dóma hlutu í málinu, eða þriggja ára og tveggja og hálfs árs skilorðs­bundið fangelsi. Tveir einstaklingar til viðbótar fengu vægari skilorðs­bundna dóma í málinu.

Eiginkona Hákonar, sem er eini hluthafi Arctic Ocean Seafood í dag samkvæmt síðasta ársreikningi, var hins vegar sýknuð í málinu, auk annarrar konu sem tengist fjöl­skyldunni. Eigin­konan var ákærð af embætti héraðs­saksóknara fyrir þátttöku í peninga­þvætti, þar sem hún var skráð fyrir fasteigna­kaupum með fé sem dómnum þótti sannað að væri afrakstur fíkni­efna­fram­leiðslunnar. Dómnum þótti hins vegar ósannað að eigin­konan hefði haft skýra vitneskju um að féð sem nýtt var til fasteigna­kaupa í hennar nafni væri afrakstur brota­starfseminnar.

Samkvæmt svörum sem Kjarninn fékk frá Héraðs­dómi Reykja­víkur var sýkna hennar og hinnar konunnar og fjölskyldu­tengsl flestra ákærðra í málinu ástæðan fyrir því að dómara í málinu þótti rétt að dómurinn yrði settur ónafn­greinanlegur í birtingu.

Stórfelld ræktun

Nokkuð var fjallað um málið í fjöl­miðlum á sínum tíma, enda kannabis­ræktunin sögð ein sú stærsta og fullkomnasta sem lögregla hafði náð til hér á landi. Alls voru gerðar upptækar á sjötta hundrað kannabis­plöntur, rúm níu kíló af tilbúnum kannabis­efnum og yfir 17 kíló af kannabis­laufum auk 110 gróðurhúsa­lampa og annars búnaðar sem nauðsyn­legur er til fram­leiðslu kannabis­efna.

Frétt um málið úr Fréttablaðinu frá árinu 2016.
Frétt um málið úr Frétta­blað­inu frá árinu 2016.

Fram­leiðslan fór fram í iðnaðar­bili við Smiðjuveg í Kópavogi. Frá lögreglu fengu fjöl­miðlar þau svör að þeir sem stóðu að baki fram­leiðslunni á kannabis­efnunum ættu ekki fyrri sögu hjá lögreglu. Ákæra í málinu var ekki lögð fram af hálfu héraðs­saksóknara fyrr en á síðari hluta árs 2021, eða um fimm árum eftir upp komst um ræktunina. Í dómi héraðs­dóms segir að lögreglu­stjórinn á höfuð­borgar­svæðinu hafi farið með rannsókn málsins í fyrstu, en að rann­sóknin hafi á síðari stigum færst yfir til embættis héraðs­saksóknara sem fór yfir peningaþvættisanga málsins.

Frétt Morgunblaðsins frá 2016 af plöntufundinum við Smiðjuveg.
Frétt Morg­un­blaðs­ins frá 2016 af plöntufund­inum við Smiðju­veg.

Velta nú hátt í tveimur milljörðum í fiskútflutningi

Árið 2017, eða árið eftir að feðgarnir þrír sættu gæslu­varðhaldi fyrir kannabis­fram­leiðsluna, stofnuðu þeir fyrir­tækið Arctic Ocean Seafood, sem samkvæmt vefsíðu fyrir­tækisins flytur nú út ýmsar fisk­tegundir frá Íslandi um allan heim.

Samkvæmt ársreikningi fyrir­tækisins árið 2017 átti hver þeirra þriggja um þriðjungs­hlut í félaginu, en í ársreikningnum ári seinna var eiginkona Hákonar orðinn eini hlut­hafinn í félaginu og hefur hún verið það síðan.

Í dómi héraðs­dóms frá því í sumar kom fram að það væri mat dómsins að ýmislegt í málinu benti til þess að konan væri í raun nokkuð upp á Hákon komin í fjárhags­legu tilliti og að hún stæði „höllum fæti, þar með talið varðandi ákvarðana­töku um fjárhagsleg málefni“.

Fyrir­tækinu hefur vaxið fiskur um hrygg síðan það var sett á fót árið 2017, en veltan á öðru starfsári félagsins nam 727 milljónum, fór svo upp í 1,74 milljarða árið 2019, 1,92 milljarða árið 2020 og nam svo 1,88 milljörðum króna í fyrra.

Hagnaður félagsins hefur verið myndar­legur síðustu tvö ár, eða um 35 milljónir króna eftir skatta. Hrein eign félagsins í lok árs 2021 nam 65,5 milljónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár