Hugmyndir Happdrættis Háskóla Íslands um spilavíti „alveg út í hött“

Henry Alex­ander Henrys­son, doktor í heim­speki, segir hug­myndum starfs­hóps háskól­ans um álita­efni tengd tekju­öflun HHÍ ekki hafa verið fram­fylgt. Í stað­inn talar HHÍ fyrir hug­myndum um spila­víti.

„Þetta er bara alveg út í hött, þetta er bara einhver vitleysa,“ segir Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, um hugmyndir Happdrættis Háskóla Íslands að opna spilavíti.
„Þetta er bara alveg út í hött, þetta er bara ein­hver vit­leysa,“ segir Henry Alex­ander Henrys­son, doktor í heim­speki, um hug­myndir Happ­drættis Háskóla Íslands að opna spila­víti. Mynd: Aðsend

Hug­myndir Happ­drættis Háskóla Íslands (HHÍ) um rekstur spila­vítis eru þvert á nið­ur­stöðu starfs­hóps Háskóla Íslands um álita­efni tengd tekju­öflun HHÍ.

Þetta er mat Henrys Alex­and­ers Henrys­sonar, dokt­ors í heim­speki, sem átti frum­kvæði að stofnun starfs­hóps­ins í febr­úar 2021.

Rektor skip­aði starfs­hóp um álita­efni tengd tekju­öflun HHÍ í mars 2021 og skil­aði hann til­lögum í júní sama ár. Nið­ur­staða hóps­ins var að Háskóla Íslands beri að leggja áherslu á skaða­minnk­andi aðgerðir í tengslum við rekstur spila­kassa. Meðal til­lagna var að hvetja HHÍ til að taka sem fyrst nauð­syn­leg skref til inn­leið­ingar spila­korta í þeim til­gangi að tak­marka spila­getu ein­stakra spil­ara.

[links]„Það var mik­ill þrýst­ingur að það yrði fundin leið til að skrúfa þetta niður. Það var nið­ur­staða starfs­hóps­ins að það yrði að gera eitt­hvað fljótt. Það var pínu óánægja, ég held að það sé ekk­ert leynd­ar­mál, hvað gengur hægt að bregð­ast við nið­ur­stöðum starfs­hóps­ins,“ segir Henry í sam­tali við Kjarnann.

Skömmu eftir að starfs­hópur háskól­ans hóf störf skip­aði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, starfs­hóp um happ­drætti og fjár­hættu­spil. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði til­lögum til Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber, nærri einu og hálfu ári eftir að hóp­ur­inn átti fyrst að skila til­lög­um.

Tillögur HHÍ þvert á niðurstöður starfshóps háskólans

Í minn­is­blaði sem Bryndís Hrafn­kels­dóttir, for­stjóri HHÍ, sendi for­manni starfs­hóps­ins í maí síð­ast­liðnum er lögð fram til­laga um að núver­andi sér­leyf­is­höfum á happ­drætt­is­mark­aði verði heim­ilt að opna spila­víti.

„Þetta er þvert á nið­ur­stöðu starfs­hóps háskól­ans, þetta er bara alveg út í hött, þetta er bara ein­hver vit­leysa,“ segir Henry.

Tillögur starfs­hóps ráðu­neyt­is­ins hafa ekki verið gerðar opin­berar en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er ekk­ert þar að finna um til­lögur að sér­leyf­is­höfum verið veitt leyfi til að reka spila­víti.

Hugmyndir um spilavíti hafi ítrekað komið fram

Bryndís segir í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans að hug­myndin um spila­víti hafi aldrei verið til umfjöll­unar í starfs­hópnum en að „hug­myndir um að heim­ila rekstur spila­halla hér á landi hafa ítrekað komið fram“. Vísar hún til að mynda í frum­vörp sem lögð voru fram á Alþingi 2014-2016.

„Í umsögnum um þau þing­mál lagði HHÍ áherslu á að ef heim­ila ætti slíka starf­semi ætti að fylgja þeirri stefnu sem gildir um happ­drætti hér á landi, þ.e. að allur hagn­aður af slíkri starf­semi renni til þjóð­þrifa­mála,“ segir í skrif­legu svari Bryn­dísar.

Ekkert sem ætti að koma í veg fyrir skaðaminnkandi aðgerðir

Henry segir að hug­myndin með skipan starfs­hóps háskól­ans hafi verið að sam­ræma við­brögð háskól­ans við vax­andi gagn­rýn­is­röddum um að rekstur spila­kassa sé snar þáttur í tekju­öflun ýmissa stofn­ana og félaga­sam­taka sem þjóna sam­fé­lags­lega mik­il­vægu hlut­verki.

„Ef ein­hvers staðar er þekk­ing á þessum mála­flokki í íslensku sam­fé­lagi þá er það alltaf innan háskól­ans sjálfs,“ segir Henry. Tillögum starfs­hóps­ins hefur hins vegar ekki verið fylgt eftir.

„Afsök­unin hefur verið sú, sem ég er reyndar per­sónu­lega ósam­mála, að það þurfi að bíða eftir nið­ur­stöðum starfs­hópi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins,“ segir Henry, en að hans mati er ekk­ert sem ætti að koma í veg fyrir að háskól­inn ráð­ist í skaða­minnk­andi aðgerðir. Í stað­inn er Happ­drætti Háskóla Íslands að fara í allt aðra átt en starfs­hóp­ur­inn lagði til, til að mynda með hug­myndum um rekstur spila­vítis.

„Við vorum að reyna að berj­ast við að bjarga skól­anum og orð­spori hans. Við komumst að sam­hljóða nið­ur­stöðu að það væri ekk­ert eftir neinu að bíða fyrir háskól­ann. Allar skaða­minnk­andi aðgerðir sem eru mögu­legar, það er engin rétt­læt­ing á að fara ekki strax í þær. Það er bara þannig.“

Henry segir að happ­drættið sjálft, sem HHÍ stendur fyrir, muni líða fyrir áherslur HHÍ á spila­víti og fjár­hættu­spil á net­inu.

„Ég hef haldið því per­sónu­lega fram að það séu tæki­færi til að sækja fram á þeim mark­aði sem er allt ann­ars eðlis og ekki skaða­vald­andi mark­aður, að reka happ­drættið sjálft,“ segir Henry. Þannig væri hægt að loka spila­kössum en hvetja fólk til að kaupa happ­drætt­is­miða.

„En ef Happ­drætti háskól­ans ætlar að fara í þessa átt þá finnst mér, mark­aðs­lega, verið að missa af tæki­fær­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

happdrætti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár