Sérleyfishafar á happdrættismarkaði neituðu að skrifa undir skýrslu starfshóps

Starfs­hópur um happ­drætti og fjár­hættu­spil sem dóms­mála­ráð­herra skip­aði í apríl í fyrra hefur skilað inn til­lögum, tæpu einu og hálfu ári á eftir áætlun. Sér­leyf­is­hafar á happ­drætt­is­mark­aði reyndu að gera sér­á­lit sitt að aðal­skýrslu hóps­ins.

Íslandsspil, Happdrætti Háskóla Íslands, Happdrætti SÍBS, Happdrætti DAS, Getspá og Getraunir áttu fulltrúa í starfshópi um happdrætti og fjárhættuspil og mynduðu þannig meirihluta í hópnum. Fulltrúarnir reyndu að gera sérálit sitt að aðalskýrslu hópsins.
Íslands­spil, Happ­drætti Háskóla Íslands, Happ­drætti SÍBS, Happ­drætti DAS, Getspá og Get­raunir áttu full­trúa í starfs­hópi um happ­drætti og fjár­hættu­spil og mynd­uðu þannig meiri­hluta í hópnum. Full­trú­arnir reyndu að gera sér­á­lit sitt að aðal­skýrslu hóps­ins. Mynd: Pexels

Starfs­hópur um happ­drætti og fjár­hættu­spil sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, skip­aði í apríl 2021, hefur skilað til­lögum til Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, nærri einu og hálfu ári eftir að hóp­ur­inn átti fyrst að skila til­lögum.

[links]Hópurinn var skip­aður eftir að umræða um fjár­hættu­spil sem tekju­öfl­un­ar­leið Happ­drættis Háskóla Íslands og þar með háskól­ans varð áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni, og ekki í fyrsta sinn. Hópurinn átti upp­haf­lega að skila til­lögum í júní 2021 en var veittur ótil­greindur frestur þegar ljóst var að það myndi ekki nást. Klofn­ingur var í starfs­hópnum og neit­uðu sér­leyf­is­hafar á happ­drætt­is­mark­aði að skrifa undir skýrslu hóps­ins og skil­uðu inn sér­á­liti.

Hlutverk starfs­hóps­ins var að kanna mögu­legar rétt­ar­bætur á sviði happ­drætt­is­mála og var hópnum ætlað að gera til­lögur til ráð­herra um breyt­ingar á lögum og reglu­gerðum um happ­drætti, telj­ist þær nauð­syn­legar, og eftir atvikum að greina fjár­þörf til þess að tryggja að mögu­legar breyt­ingar geti átt sér stað.

Ellefu skip­uðu hóp­inn. Þau eru:

  • Sigurður Kári Krist­jáns­son, lög­maður og jafn­framt for­maður, án til­nefn­ingar,
  • Fanney Ósk­ars­dóttir, lög­fræð­ingur á skrif­stofu rétt­inda ein­stak­linga, án til­nefn­ingar,
  • Sveinn M. Bragason, sér­fræð­ingur á skrif­stofu fjár­mála og rekstrar, án til­nefn­ingar,
  • Auður Cela Sig­rún­ar­dóttir, starfs­maður Íslands­spila, til­nefnd af Íslands­spilum,
  • Lárus Blöndal, lög­maður og for­seti Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands Íslands, til­nefndur af Getspá/Get­raunum,
  • Guðni Bergsson, lög­maður og for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, til­nefndur af Getspá/Get­raunum,
  • Anna Lilja Ragn­ars­dóttir, lög­lærður full­trúi hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu á Höfn, til­nefnd af sýslu­mann­inum á Suð­ur­landi,
  • Guð­mundur Löve, fram­kvæmda­stjóri, til­nefndur af happ­drætti SÍBS,
  • Bryndís Hrafn­kels­dóttir, for­stjóri, til­nefnd af happ­drætti HHÍ,
  • Sigurður Ágúst Sig­urðs­son, for­stjóri, til­nefndur af happ­drætti DAS.
  • Alma Björk Haf­steins­dóttir, fíkni- og fjöl­skyldu­mark­þjálfi, til­nefnd af Samtökum áhuga­fólks um spilafíkn.

Sérleyfishafar á happdrættismarkaði reyndu að taka yfir vinnu hópsins

Sex þeirra sem skipa starfs­hóp­inn starfa hjá happ­drætt­is­fyr­ir­tækjum sem eru sér­leyf­is­hafar á happ­drætt­is­mark­aði og hafa því ákveð­inna hags­muna að gæta. Þessir hags­muna­að­ilar eru Íslands­spil, Happ­drætti Háskóla Íslands, Happ­drætti SÍBS, Happ­drætti DAS, Getspá og Get­raunir.

Við vinnu hóps­ins mynd­að­ist klofn­ingur milli hags­muna­að­il­anna og ann­arra í starfs­hópnum og neit­uðu hags­muna­að­il­arnir að standa að skýrslu starfs­hóps­ins og skil­uðu sér­á­liti. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans reyndu aðil­arnir að nýta meiri­hluta sinn í nefnd­inni til að gera sér­á­litið að aðal­skýrslu starfs­hóps­ins en það gekk ekki eftir.

Samtök áhuga­fólks um spilafíkn (SÁS) skil­uðu einnig inn sér­á­liti. Alma Björk Haf­steins­dóttir, for­maður sam­tak­anna, gagn­rýndi strax í upp­hafi vinnu starfs­hóps­ins að honum hafi ekki verið ætlað að fjalla um þá kröfu sam­tak­anna að spila­kössum verði lokað til fram­búðar.

Alma segir í sam­tali við Kjarnann að sér­á­lit­inu hafi meðal ann­ars verið skilað inn þar sem hug­myndir og óskir hennar um gesti og álits­gjafa hafi fengið dræmar und­ir­tektir. „Enginn af þeim gestum sem við óskuðum eftir voru kall­aðir til. Enginn,“ segir Alma. Meðal þeirra sem SÁS lagði til að kæmu fyrir hóp­inn eru Natasha Schüll, dós­ent við New York háskóla, sem hefur sér­hæft sig í rann­sóknum á sviði spila­víta og spila­kassa. SÁS óskaði einnig eftir að fá Ögmund Jónasson, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, á fund starfs­hóps­ins en hann tal­aði fyrir end­ur­skoðun á lögum og reglu­gerðum sem gilda um starf­semi sem stuðlar að spilafíkn í ráð­herra­tíð sinni. Auk þess óskaði SÁS eftir að fá full­trúa frá land­lækn­is­emb­ætt­inu og Neyt­enda­sam­tök­unum en ekki var orðið við þeirri beiðni.

Alma gagn­rýnir einnig að heil­brigð­is­ráðu­enytið hafi ekki átt full­trúa í starfs­hópnum. „Það þarf að kort­leggja mark­að­inn en það er ekki hægt án þess að taka til­lit til lýð­heilsu­sjón­ar­miða. Það sem ég átta mig ekki á og við reynum að koma til skila í okkar áliti er að það er engin eft­ir­spurn eftir erlendri veð­mála­starf­semi á Íslandi. Það er eng­inn að kalla eftir því opin­ber­lega. Einu aðil­arnir sem eru stöðugt að tönnlast á þess­ari starf­semi eru rekstr­ar­að­ilar á happ­drætt­is­mark­aði á Íslandi í dag, eng­inn annar,“ segir Alma.

Engin áform um spilavíti í tillögum eða sérálitum

Skýrsla starfs­hóps­ins, auk sér­á­lit­anna er nú komin til dóms­mála­ráð­herra, sem honum verður falið að meta.

Tillögur hóps­ins hafa ekki verið gerðar opin­berar en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er ekk­ert þar að finna um til­lögur að sér­leyf­is­höfum verði veitt leyfi til að reka spila­víti líkt og Bryndís Hrafn­kels­dóttir, for­stjóri HHÍ, lagði til í minn­is­blaði sem hún sendi for­manni starfs­hóps­ins í maí, þegar drög að til­lögum starfs­hóps­ins höfðu verið kynntar.

Breski mið­ill­inn Times Hig­her Education, sem fjallar sér­stak­lega um mál­efni háskóla, greindi frá inni­haldi minn­is­blaðs­ins í síð­ustu viku, þar sem kemur meðal ann­ars fram að HHÍ leggur fram til­lögu um að núver­andi sér­leyf­is­höfum skjá­v­éla og söfn­un­ar­kassa verði heim­ilt að opna spila­víti. Í minn­is­blað­inu er þó not­ast við annað orða­lag en spila­víti og lagt til að leyfi verði veitt til að opna „spila­höll (Casínó)“.

Um til­lögu er að ræða og rétt er að taka fram að form­leg beiðni um leyfi til að opna spila­víti hefur ekki borist dóms­mála­ráðu­neyt­inu og ljóst er að beiðnin er ekki hluti af til­lögum starfs­hóps­ins sem nú hefur skilað til­lögum til ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

happdrætti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár