Helga Vala gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita börnum á flótta ekki vernd

Drengur á flótta þurfti að leita á bráða­mót­töku­deild barna vegna kvíða. Hans bíður nú brott­vísun á næstu dögum að sögn No Borders Iceland.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýnir stefnu stjórn­valda í mál­efnum hæl­is­leit­enda. Deildi hún stöðu­færslu No Borders Iceland um tvo unga drengi, 9 og 10 ára, sem staddir eru á bráða­mót­töku barna­spít­ala Hrings­ins. Segja þau annan dreng­inn vera í ann­ar­legu ástandi og að brotna niður vegna aðstæðna.

„Þetta er ákvörðun stjórn­valda. Það er ákvörðun stjórn­valda að veita ungum börnum à flótta ekki vernd. Ég skamm­ast mín djúpt og inni­lega,“ skrifar Helga Vala.[adspot]

Í upp­færðri stöðu­færslu No Borders Iceland kemur fram að brott­vísun drengj­anna hafi verið frestað tíma­bundið eftir að geð­læknir á bráða­mót­töku barna sagði stoð­deild­ar­lög­reglu­manni að ekki væri mögu­legt að brott­vísa barni sem sé svo alvar­lega þjakað af kvíða. Ekki er þó vitað hvenær brott­vísun barn­anna mun fara fram en No Borders Iceland telja það munu ger­ast seinna í vik­unni.

Einungis þrjú sveitarfélög gert þjónustusamning við Útlendingastofnun

[links]Nú þiggja um 590 umsækj­endur um vernd þjón­ustu hér á landi, þar af eru sam­an­lagt um 330 hjá sveit­ar­fé­lög­unum þremur og um 260 hjá Útlend­inga­stofnun. Útlend­inga­stofnun hefur leitað á náðir sveit­ar­fé­lag­anna og biðlað til þeirra að gerður verði þjón­ustu­samn­ingur við þessa ein­stak­linga en ein­ungis þrjú sveit­ar­fé­lög á land­inu hafa gert slíka samn­inga. Markmið stofn­un­ar­innar er að búsetu­úr­ræði séu að jafn­aði rekin á vegum sveit­ar­fé­laga en stofn­unin sinni fyrstu mót­töku í einni komu­gátt.

Í júní síð­ast­liðnum var þings­á­lykt­un­ar­til­laga sam­þykkt þess efnis að komið verði á fót ráð­gjaf­ar­stofu inn­flytj­enda. Ráð­gjafa­stofan er ætluð öllum inn­flytj­endum, flótt­ta­mönnum og hæl­is­leit­endum. Hlutverk stofn­un­ar­innar verður að bjóða inn­flytj­endum upp á aðgengi­lega ráð­gjöf um þjón­ustu rétt­indi og skyldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár