Leikskólakennarar mótmæla kynbundnum launamun og loka leikskólum

For­eldrar og þá helst feður, eru beðnir um að sækja börn sín snemma á mánu­dag­inn vegna kvenna­frí­dags­ins. Konur eru hvattar til að leggja niður störf kl. 14.38 og mæta á sam­stöðu­fund á Aust­ur­velli.

Kyn­bund­inn launa­munur er enn stað­reynd í íslensku sam­fé­lagi og á mánu­dag­inn á að grípa til aðgerða. Aðgerð­irnar geta haft víð­tæk áhrif á sam­fé­lagið, en nú þegar hafa sumir leik­skólar í Reykja­vík óskað eftir því að for­eldrar sæki börnin snemma á mánu­dag. Er þeirri ósk sér­stak­lega beint að feðrum barn­anna. 

Á mánu­dag eru 41 ár síðan 25 þús­und íslenskar konur lögðu niður störf og fylktu liði á Lækj­ar­torg með það að mark­miði að sýna fram á mik­il­vægi vinnu­fram­lags kvenna. Í ár stendur til að end­ur­taka leik­inn og hvetja sam­tök launa­fólks og sam­tök kvenna konur til að leggja niður vinnu kl. 14.38 á mánu­dag­inn og mæta á sam­stöðu­fund á Aust­ur­velli kl. 15.15. Á fund­inum verður kyn­bundnum launa­mun mót­mælt og van­mati á störfum kvenna. 

 „Við þurfum að minna á að við konur erum ekk­ert að þagna og sýna þann mátt sem býr í kvenna­sam­stöð­unni. Við viljum kjara­jafn­rétti strax og við hljótum að geta náð til tug­þús­unda kvenna. Þetta er mál­efni okkar allra, hvort sem er ungra, mið­aldra eða eldri kvenna. Að sjálf­sögðu hvetjum við líka alla karla til að mæta,“ sagði Maríanna Trausta­dóttir, sér­fræð­ingur í jafn­réttis- og umhverf­is­málum hjá ASÍ, og ein margra kvenna sem koma að skipu­lagn­ingu við­burð­ar­ins, í sam­tali við Stundina fyrr í mán­uð­inum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár