Utanríkisráðherrar stórveldanna verða í vinnusóttkví á Íslandi

Það verða strangar sótt­varna­reglur á ráð­herra­fundi Norð­ur­skauts­ráðs­ins sem fram fer hér á landi í maí. Allur fund­ur­inn fer fram í vinnu­sótt­kví. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir ekki hafa komið til greina að halda bara fjar­fund. Per­sónu­legir fundir skipti máli.

Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er væntanlegur til landsins í maí ásamt öðrum utanríkisráðherrum Norðurskautaráðsins .
Anthony Blinken utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna er vænt­an­legur til lands­ins í maí ásamt öðrum utan­rík­is­ráð­herrum Norð­ur­skauta­ráðs­ins . Mynd: EPA

Þann 20. maí fer ráð­herra­fundur Norð­ur­skauts­ráðs­ins fram hér á landi, en fund­ur­inn markar enda­lok tveggja ára for­mennsku Íslands í ráð­inu. Vegna heims­far­ald­urs­ins verður fund­ur­inn með nokkuð óvenju­legu sniði, en ein­ungis hluta fund­ar­gesta er boðið að sækja fund­inn í eigin per­sónu á meðan aðrir taka þátt í gegnum fjar­fund­ar­búnað.

Erlendir fund­ar­gestir verða í vinnu­sótt­kví með ströngum sótt­varn­ar­reglum, sem unnið er að þessa dag­ana hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í sam­ráði við emb­ætti land­læknis og sótt­varna­lækni.

Á meðal þátt­tak­enda á fund­inum verða Anthony Blinken utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna og Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands og búist er við að þeir muni eiga hér sinn fyrsta tví­hliða fund frá því að stjórn Joe Bidens tók við völdum í Banda­ríkj­unum í upp­hafi árs.

Auk Íslands, Banda­ríkj­anna og Rúss­lands eiga Danmörk, Finnland, Kanada, Noregur og Svíþjóð aðild að Norð­ur­skauts­ráð­inu og verða utan­rík­is­ráð­herrar þess­ara ríkja sömu­leiðis við­staddir, ásamt leið­togum sex frum­byggja­sam­taka á norð­ur­slóðum.

Var ekki bara hægt að halda fjarfund?

Kjarninn beindi ýmsum spurn­ingum til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um fram­kvæmd svona við­burðar á tímum heims­far­ald­urs og spurði meðal ann­ars hvort það hefði verið brýn nauð­syn að fund­ur­inn færi fram í raun­heimum, en ekki bara á net­inu eins og fjöl­margar ráð­stefnur og fundir hafa gert und­an­farið ár.

Af svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins má merkja að nauð­syn­legt hafi þótt að halda fund­inn, þó hann verði með minna sniði nú en oft áður. Ráðu­neytið segir að per­sónu­legir fundir utan­rík­is­ráð­herra ríkj­anna séu taldir skipta höf­uð­máli fyrir starf­semi Norð­ur­skauts­ráðs­ins.

„Per­sónu­legt umboð þeirra gefur starf­inu aukið vægi auk þess sem það hefur legið til grund­vallar marg­vís­legu sam­starfi í stefnu­mótun milli ríkj­anna átta og í sam­starfi þeirra á vett­vangi alþjóða­stofn­ana. Þá hafa fund­irnir einnig alþjóða­póli­tíska þýð­ingu og veita jafn­framt mik­il­væg tæki­færi til tví­hliða funda utan­rík­is­ráð­herr­anna,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Þar er einnig nefnt að utan­rík­is­ráð­herrar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins hafi komið saman til fundar í Brussel á dög­unum þrátt fyrir far­ald­ur­inn (utan­rík­is­ráð­herra Íslands komst reyndar ekki vegna veik­inda) og að utan­rík­is­ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ins hitt­ist mán­að­ar­lega í eigin per­sónu.

Sendinefndirnar minni en venjulega

Kjarninn reyndi að fá mynd af því hversu margir erlendir gestir væru vænt­an­legir til lands­ins í tengslum við fund­inn. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að með full­skip­uðum sendi­nefndum væru fund­ar­gestir undir venju­legum kring­um­stæðum á bil­inu 200-300 tals­ins og að annað eins af fylgd­ar­liði, örygg­is­vörðum og fjöl­miðla­fólki myndi fylgja með.

„Sem fyrr segir hefur minnsta mögu­lega hópi hefur verið boðið til fund­ar­ins og er því reiknað með því að þátt­tak­endur sem komi til Íslands erlendis frá verði um fjórð­ungur af því sem venju­lega ger­ist,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Það má því skjóta á að fjöldi fund­ar­gesta verði á bil­inu 50-75 – en svo bæt­ist við ein­hver fjöldi fylgd­ar­fólks, örygg­is­varða og fjöl­miðla­fólks.

Allir sóttir út á flugvöll og í fylgd fulltrúa stjórnvalda

Sem áður segir fer fund­ur­inn alfarið fram í vinnu­sótt­kví og unnið er að útfærslu hennar í náinni sam­vinnu við heil­brigð­is­yf­ir­völd. Í svari ráðu­neyt­is­ins er því lýst að þáttak­endur á ráð­herra­fundum sem þessum staldri ein­ungis stutt við, eða í einn til tvo sól­ar­hringa.

„Þeir verða allir sóttir á flug­völl og verða í fylgd full­trúa íslenskra stjórn­valda allan dval­ar­tím­ann. Þannig verður skil­virk útfærsla og fram­kvæmd vinnu­sótt­kvíar tryggð. Íslenskir þátt­tak­endur og starfs­lið fund­ar­ins munu að sjálf­sögðu sæta nauð­syn­legum sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum eftir lok fund­ar­ins og brott­för gest­anna,“ segir enn fremur í svari ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]

Þrátt fyrir að fund­ur­inn fari fram í vinnu­sótt­kví hefur öllum erlendum þátt­tak­endum fund­ar­ins verið gerð grein fyrir að þeir verði að upp­fylla að minnsta kosti eitt þriggja skil­yrða fyrir komu til Íslands, þ.e. að hafa í fórum sínum nýtt PCR-próf við komu, gilt bólu­setn­ing­ar­vott­orð eða gilt vott­orð um afstaðna COVID19-sýk­ingu.

„Auk þess hefur verið til­kynnt að vænta megi frek­ari reglna og við­miða um próf­anir, grímunotkun, sam­skipta­fjar­lægð, sam­skipti milli sendi­nefnda og bann við sam­skiptum við fólk utan vinnu­sótt­kvíar,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Alþjóðapressunni bent á gildandi reglur

Á upp­lýs­inga­síðu sem sett hefur verið upp fyrir erlenda fjöl­miðla sem vilja koma til lands­ins og fylgj­ast með fund­inum má lesa að eng­inn afsláttur verði gef­inn af gild­andi sótt­varna­ráð­stöf­unum. Þar segir að þeir far­þegar sem ekki hafi verið bólu­settir eða geti sýnt fram á fyrri sýk­ingu COVID-19 með gildu vott­orði þurfi að fara í fimm daga sótt­kví og und­ir­gang­ast tvær skimanir við kom­una til lands­ins.

Þó er bent á að fjöl­miðla­fólk geti sótt um að fá að starfa hér í vinnu­sótt­kví vegna ráð­herra­fund­ar­ins, en þá þurfi að lúta reglum og skil­yrðum sótt­varna­læknis til þess að fá að taka við­töl og sinna öðrum störfum í tengslum við ráð­herra­fund­inn.

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir ekki tíma­bært að gefa upp hvar ráð­herra­fund­ur­inn sjálfur verður hald­inn þann 20. maí og svarar því heldur ekki hvar þátt­tak­endur á fund­inum komi til með að gista á meðan dvöl þeirra hér á landi stendur.

Ekki liggur heldur fyrir, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu, hversu margar einka­þotur munu koma hingað til lands í tengslum við fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár