Baráttan um Vorstjörnuna

Deil­urnar í Sós­í­alista­flokknum halda áfram þrátt fyrir hall­ar­bylt­ingu. Vett­vangur þeirra er nú Vor­stjarnan, styrkt­ar­sjóður tengdur flokknum, sem á leigu­samn­ing­inn um hús­næði flokks­ins og fær helm­ing þeirra fjár­muna sem rík­is­sjóður greiðir flokknum. „Vor­stjarnan er ekki í stríði við einn né neinn,“ segir for­maður.

Deilur í Sósíalistaflokknum
Deilur í Sós­í­alista­flokknum Ný fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins var kjörin á aðal­fund í maí og í henni sitja meðal ann­ars Sæþór Benjamín Randals­son, for­maður, Sigrún E. Unn­steins­dóttir, Karl Héðinn Krist­jáns­son og Þor­valdur Þor­valds­son. Sæti sitt misstu Gunnar Smári Egilsson, frá­far­andi for­maður, og María Pét­urs­dóttir, sem hætt er í flokknum. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir sagði af sér sem póli­tískur leið­togi flokks­ins og Davíð Þór Jónsson, sem leiddi flokk­inn í suð­vest­ur­kjör­dæmi, íhugar stöðu sína.

Skrif­stofu­hús­næði Sós­í­alista­flokks­ins og millj­ónir í opin­berum fram­lögum til flokks­ins eru undir í deilum tveggja blokka í flokknum um styrkt­ar­sjóð­inn Vor­stjörn­una.

Félagið Vor­stjarnan hefur aldrei haldið aðal­fund og félaga­talið er á huldu eftir að vefur þess var yfir­tek­inn í síð­ustu viku. Gjald­keri félags­ins var í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins sem felld var á aðal­fundi í maí en hefur aldrei verið form­lega kosin í stjórn Vor­stjörn­unnar.

„Málið er að þetta félag hefur aldrei slitið nafla­streng­inn við fram­kvæmda­stjórn­ina,“ segir Sigrún E. Unn­steins­dóttir, stjórn­ar­maður í Vor­stjörn­unni og vara­for­maður nýju fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins. „Ég hef aldrei setið fund í Vor­stjörn­unni og aldrei verið boðuð á fund af for­manni.“

Vor­stjarnan er sjálf­stætt félag með eigin kenni­tölu sem hefur fengið helm­ing þeirra fram­laga sem rík­is­sjóður hefur greitt Sós­í­alista­flokknum und­an­farin ár og öll fram­lög Reykja­vík­ur­borgar til flokks­ins. Félagið er leigu­taki á hús­næði flokks­ins við Bolholt 6, en fjöl­mið­ill­inn Sam­stöðin, sem Gunnar Smári Egilsson, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­stjórnar, stýrir, deilir …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár