NATO muni bregðast við virði Rússar ekki sáttmála um kjarnorkuflaugar

Fram­kvæmda­stjóri NATO segir alvar­legt verði sátt­mál­inn að engu. Spennan jókst í síð­ustu viku í kjöl­far sölu rúss­neskra yfir­valda á hern­að­ar­gögnum til Tyrk­lands.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, segir banda­lagið munu bregð­ast ákveðið við og vera í varn­ar­stöðu ef Rússar virði ekki tíma­mörkin til að fara eftir sátt­mála um kjarn­orkuflaugar. Sagði hann heim­inn þurfa að vera til­bú­inn undir fleiri rúss­neskar kjarn­orkuflaugar. Þetta kemur fram í við­tali Stol­ten­berg við BBC.

Trump dró Banda­ríkin úr sátt­mál­anum sem hafði verið í gildi frá árinu 1987 og bann­aði með­al­drægar kjarn­orkuflaugar. Trump sak­aði Rússland um að fara ekki eftir sátt­mál­anum en Rússland hefur neitað ásök­unum. Rússnesk stjórn­völd til­kynntu í kjöl­farið að þau muni þróa nýtt vopna­kerfi.

[adspot]Stol­ten­berg segir Rússland vissu­lega hafa brotið gegn sátt­mál­anum sem sé mikil ógn við evr­ópskar borgir. Hann leggur jafn­framt áherslu á að þró­unin sé alvar­leg. Hann segir Rússland ekki sýna nein merki um að það muni fara eftir sátt­mál­anum.

Segir NATO mikilvægt fyrir smáríki

[links]Á fundi í Norræna hús­inu í Reykja­vík sem fór fram í júní sagði Stol­ten­berg að það sem ógni tak­mörkun vopna nú til dags væri að Rúss­land fari ekki lengur eftir sátt­mál­anum sem banni með­al­drægar flaug­ar. Hann lagði ríka áherslu á að við­halda banda­lag­inu sé sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir smá­þjóðir líkt og Ísland.

Á fund­inum sagði hann NATO nú þegar hafa aukið við­veru sína á Íslandi og í kringum Ísland. NATO ríki hafi til að mynda aukið fjölda her­æf­inga í Norð­ur­-Atl­ants­hafi. Við sumar æfing­arnar sé not­ast við íslenska inn­viði og sam­skipta­tækni.

Rússar selja Tyrkjum hernaðargögn

Rússar seldu Tyrkjum S-400 varn­ar­kerfi í síð­ustu viku, en Tyrkir eru með­limir í NATO. Í kjöl­farið hafa Banda­ríkin lýst því yfir að þau muni taka Tyrkland úr F-35 her­þotu áætlun sinni. Stol­ten­berg segir í við­tali við BBC málið vera alvar­legt því það skapi óein­ingu á milli tveggja mik­il­vægra með­lima banda­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár