Alþingi skoðar að afnema leynd yfir kjörum og greiðslum til þingmanna

Fyrir liggja drög að reglum um að auka upp­lýs­inga­gjöf um kjör og starfs­kostn­að­ar­greiðslur þing­manna. Markmið þeirra er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þing­manna.

Steingrímur J. Sigfússon er forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son er for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, segir að til skoð­unar hafi verið á und­an­förnum mán­uðum, og meðal ann­ars rætt í for­sætis­nefnd Alþingis, að auka upp­lýs­inga­gjöf um kjör og starfs­kostn­að­ar­greiðslur alþing­is­manna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auð­veldur og þær birtar á vef þings­ins. „Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyr­ir­komu­lagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upp­lýs­ingum um þessi mál. Mark­miðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þing­manna og full­komið gagn­sæi ríki. – Þing­mönnum er að auð­vitað í sjálfs­vald sett hvaða upp­lýs­ingum þeir koma sjálfir á fram­færi um sín kjör, eins og verið hefur.“

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Stein­grímur sendi frá sér í dag.

Þar segir að Alþing­is­mönnum hafi síð­ustu daga borist marg­vís­legar fyr­ir­spurnir um greiðslur tengdar starfi þeirra á Alþingi. Til­kynn­ingin er send út af því til­efni. Stein­grímur segir að Alþingi hafi með mark­vissum hætti „reynt að skapa góða umgjörð störf og kjör þing­manna, þar á meðal með siða­reglum og reglum um hags­muna­skrán­ingu þing­manna sem eru á vef þings­ins. Sú aukna upp­lýs­inga­gjöf sem í vændum er mun bæt­ast þar við.“

Akstursgreiðslur til þingmanna ekki persónugreinanlegar

Ástæða þess að fjöldi fyr­ir­spurna hefur borist frá fjöl­miðlum er sú að síð­ast­lið­inn fimmtu­dag svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírat­ar, um akst­urs­kostn­að. Í svari for­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­ur­greiðsl­urnar þáðu á síð­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra.

[adspot]Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gekkst hins vegar við því í sam­tali við RÚV á föstu­dags­morgun að vera sá sem trónir á toppi list­ans. Hann fékk sam­tals 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar í fyrra, eða 385 þús­und krónur á mán­uði skatt­frjálst. Greiðsl­urnar til Ásmundar voru um 16 pró­sent af heild­ar­end­ur­greiðslum til þing­manna vegna akst­ur­s.

Ekki liggur fyrir á þess­ari stundu hvaða aðrir þing­menn eru á topp tíu list­an­um.

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fái end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­menn hefðu fengið end­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn var að ræða. Þær upp­lýs­ingar þóttu þá sem nú of per­sónu­leg­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár