Mynd: EPA

Heimsfaraldur í eitt ár

Ár er liðið frá því að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin lýsti því yfir að heims­far­aldur væri brost­inn á. Þessu ári hefur verið lýst með ýmsum orðum; það er for­dæma­laust, ár hörm­unga, ár sorgar, ár fórna. Ár vís­ind­anna.

11. mars 2020: 118 þús­und stað­fest smit í 114 löndum. 4.291 hefur lát­ist.

„Við getum ekki sagt þetta nógu hátt, nógu skýrt, nógu oft: Öll lönd geta enn breytt gangi þessa heims­far­ald­urs.“

11. mars 2021: 118 milljón stað­fest smit. Yfir 2,6 millj­ónir hafa lát­ist.

„Ef það er eitt­hvað eitt sem heims­far­aldur COVID-19 hefur kennt okkur á und­an­förnu ári þá er það að við erum öll eitt, mann­kynið, og eina leiðin til að takast á við sam­eig­in­lega ógn er að vinna saman að því að finna sam­eig­in­legar lausnir.“

Í dag er liðið ár síðan að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin lýsti því yfir að COVID-19 væri heims­far­aldur. Það kom í hlut fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­innar, Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, að greina heims­byggð­inni frá því. Í ávarpi sínu lagði hann áherslu á sam­ræm­ingu aðgerða – að enn væri hægt að stöðva útbreiðsl­una. Hann er enn á þeirri línu og minnir okkur á að við erum mann­kynið. Við öll.

„Árang­urs­rík­asta leiðin til að hefta útbreiðslu og bjarga manns­lífum er að bólu­setja við­kvæm­ustu hópa fólks í öllum löndum, frekar en allt fólk í sumum löndum,“ sagði hann í dag í til­efni af tíma­mót­unum. Árinu sem liðið er frá til­kynn­ing­unni sem allir vissu að væri orðin tíma­bær: Þetta er heims­far­aldur.

Þetta hefur verið ár mik­illa þján­inga fyrir svo marga. Þriðji hver Breti þekkir ein­hvern sem hefur dáið úr COVID-19. Enginn efast um að smit í heim­inum séu mun fleiri en 118 millj­ónir. Aldrei í sögu Banda­ríkj­anna hafa fleiri dáið á einu ári eins og í fyrra.

Að minnsta kosti þriðj­ungur dauðs­fall­anna er rak­inn til COVID-19. Hvergi í heim­inum en einmitt þar hafa dauðs­föll af völdum sjúk­dóms­ins verið fleiri. Í fimm öðrum löndum til við­bótar hafa að minnsta kosti 100 þús­und lát­ist vegna far­sótt­ar­innar. Þessi lönd eru Brasilía, Mexíkó, Indland, Bretland og Ítalía.

Í hverri ein­ustu heims­álfu er víst að smit- og dán­ar­tölur af hans völdum eru van­metnar. Og þó að síð­asta bylgja far­ald­urs­ins sé í rénun á flestum vest­ur­löndum, vegna bólu­setn­inga­her­ferða sem þar eru hafnar, er veiran að láta finna fyrir sér sem aldrei fyrr í öðrum löndum. Í Brasilíu hafa nú yfir 2.200 manns dáið dag­lega vegna COVID-19 nokkra daga í röð. Dagleg dauðs­föll hafa aldrei verið fleiri í land­inu.

Þetta hefur líka verið ár mik­illa fórna. Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNICEF, segir að menntun um 1,6 millj­arðs barna hafi farið úr skorðum vegna far­ald­urs­ins. Skólar 168 millj­óna barna hafa alfarið verið lok­aðir í heilt ár. Afleið­ingar þessa eiga enn eftir að koma í ljós.

Sömu sögu er að segja um afleið­ingar þess á fólk að þurfa að búa við úti­vist­ar­bann og ferða- og sam­komu­tak­mark­anir í lengri tíma með þeirri ein­angrun sem því hefur fylgt fyrir marga. Að missa vinn­una. Að búa við óvissu og ótta mán­uðum saman.

En þetta hefur einnig verið ár stór­kost­legra vís­inda­legra sigra. Innan við ári eftir að heims­far­aldri var lýst yfir voru komin á markað bólu­efni gegn sjúk­dómnum. Við þróun og fram­leiðslu sumra þeirra er beitt aðferðum sem aldrei áður hafa verið reyndar.

Það er farið að rofa til. Að minnsta kosti sums staðar. En eins og Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og fleiri hafa sagt: Heims­far­aldri lýkur hvergi fyrr en honum lýkur alls staðar.

Einn á ferð

Maður með grímu fyrir vitum gengur í almenn­ings­garði með­fram bökkum Yangtze-árinnar í Wuhan í Kína í apríl á síð­asta ári. Þetta er í borg­inni þar sem veiran er talin hafa átt upp­tök sín.

Undir álagi

Gjör­gæslu­hjúkr­un­ar­fræð­ingur tekur sér pásu á milli tarna á sjúkra­húsi í Brussel. Á veggnum stendur: Ég er ham­ingju­samur hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

Gríð­ar­legt álag var á heil­brigð­is­starfs­fólki víða um heim og sér­stak­lega í Kína í upp­hafi far­ald­urs­ins. Ný veira – nýr sjúk­dómur.

Unnið af kappi

Loftmynd af fram­kvæmda­svæði nýs sjúkra­hús í Wuhan í Kína sem ákveðið var að reisa þegar ljóst var orðið að pestin sem geis­aði væri allt annað en venju­leg. Á rúm­lega tveimur vikum var reist sjúkra­hús með 1.000 rúmum. Þegar myndin er tekin, 24. jan­úar í fyrra, höfðu 25 lát­ist úr hinni þá ný upp­götv­uðu kór­ónu­veiru.

Verið heima

Samtímis því að sam­komu­tak­mark­anir voru settar á víða um heim fóru að sjást vegg­lista­verk með boð­skap aðgerð­anna á húsum í hverri borg. Verið heima. Verið örugg. Gætið að ykkur.

Hér ganga konur fram­hjá einu slíku verki í Los Angeles í byrjun apríl í fyrra.

Við bryggju

Síkin í Feneyjum voru mann­laus í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Gondólar voru bundnir í röðum við bryggju. Það voru engir ferða­menn. Far­ald­ur­inn lék Ítali sér­lega grátt í upp­hafi. Til harðra aðgerða var gripið enda fyllt­ust sjúkra­hús af alvar­lega veiku fólki.

Snerting

Maria Paula Moraes faðmar 82 ára gamlan föður sinn í gegnum sér­stakt tjald. Þau búa í borg­inni Sao Paulo í Brasilíu. Slík faðm­tjöld nutu vin­sælda sums staðar þar sem fólk gat ekki notið nándar við ást­vini sína vegna smit­hættu.

Þegar myndin var tekin, 2. júlí, hafði Maria ekki faðmað föður sinn í meira en 100 daga.

Fjöldagrafir

Loftmynd af gröfum í Vila Formosa-kirkju­garð­inum í Sao Paulo í Brasilíu í byrjun apríl í fyrra. Kirkju­garð­ur­inn er í aust­ur­hluta borg­ar­innar og er sá stærsti í allri Suður-Ameríku.

Heima

Tvær stúlkur fylgj­ast með komu flutn­inga­skips út um glugg­ann heima hjá sér í spænsku borg­inni Sant­ander í lok mars. Vikum saman voru mjög harðar sam­komu­tak­mark­anir á Spáni og mátti fólk ekki fara út af heim­ilum sínum að nauð­synja­lausu. Algjört útgöngu­bann var sett á.

Verndarhjúpur

Taí­lenskur hjúkr­un­ar­fræð­ingur setur and­lits­skjöld á höfuð nýfæddra barna til að verja þau fyrir smiti af kór­ónu­veirunni á sjúkra­húsi í Samut Prakan-hér­aði á Taílandi í byrjun apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár