Heimilið hættulegasti staðurinn fyrir konur

Árið 2017 bár­ust lög­regl­unni á Íslandi 870 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi. Sama ár voru 50.000 konur myrtar í heim­inum af maka sínum eða fjöl­skyldu­með­lim. Á síð­ustu 15 árum var helm­ingur þeirra mann­drápa sem framin voru á Íslandi tengd heim­il­is­of­beldi.

Á síð­ustu árum hefur umræða um heim­il­is­of­beldi opn­ast að mörgu leyti hér á land og efnt hefur verið til vit­und­ar­vakn­ingar um málið á mörgum sviðum sam­fé­lags­ins. Áður þótti heim­il­is­of­beldi vera einka­mál, ekki eitt­hvað sem yfir­völd skiptu sér að heldur aðeins trún­að­ar­mál heim­il­anna. Á þessu ári hefur fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna skil­greint kyn­bundið ofbeldi sem heims­far­ald, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins full­yrt að heim­il­is­of­beldi sé ekki einka­mál heldur sam­fé­lags­legur harm­leikur og núver­andi rík­is­stjórn sett heim­il­is­of­beldi sem eitt af áherslu­málum sínum í stjórn­ar­sátt­mála sinn.

Á Íslandi hafa verið framin 22 morð á síð­ustu 15 árum en helm­ingur þeirra morða teng­ist heim­il­is­of­beldi. Árið 2017 bár­ust lög­reglu 890 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi, 251 ein­stak­lingar dvöldu í kvenna­at­hvarf­inu og um helm­ingur þeirra sem dvelja í kvenna­at­hvarf­inu eru af erlendum upp­runa.

Í heim­inum eru að með­al­tali 136 konur myrtar á dag af maki sínum eða fjöl­skyldu­með­lim. Alls voru 87.000 konur myrtar í heim­inum árið 2017, tæp­lega sex­tíu pró­sent þeirra voru myrtar af maka sínum eða fjöl­skyldu­með­lim. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá UNODC skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Meiri en helmingur þeirra kvenna sem hafa verið myrtar, voru myrtar af maka eða fjölskyldumeðlim

Í skýrsl­unni segir að þessar tölur sýni að heim­ili séu í raun hættu­leg­asti stað­ur­inn fyrir konur þar sem meiri­hluti þeirra morða sem framin eru á konum tengj­ast heim­il­is­of­beldi. Fimmtíu þús­und konur voru myrtar af hendi maka eða ætt­ingja, eða 58 pró­sent af öllum þeim konum sem myrtar voru árið 2017. Af þeim voru u.þ.b. 30.000 konur myrtar af maka sínum og 20.000 af náskyldum ætt­ingja. Það þýðir að á hverjum klukku­tíma eru konur myrtar af ein­hverjum sem þær þekkja.

Skýrslan „Global study on homicide: Gender related kill­ings of women and girls“ er heild­stæð rann­sókn á morðum í heim­inum og þá sér­stak­lega kyn­bundnum morðum á konum og stúlkum. Hún var birt fyrir rúmri viku á degi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem helg­aður er bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi.

Í heild­ina hafa mun fleiri karlar en konur fallið fyrir hendi ann­arra í heim­inum en karlar voru um 80 pró­sent þeirra sem voru myrtir árið 2017. Á hinn bóg­inn eru konur 82 pró­sent þeirra fórn­ar­lamba sem myrt eru af maka, sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unnar. Ef ætt­ingjar eru taldir með þá eru konur 64 pró­sent þeirra sem myrtir eru af mökum eða fjöl­skyldu­með­limum sam­an­borið við 36 pró­sent karla.

[adspot]

Í skýrsl­unni segir að þessar nið­ur­stöður sýna að jafn­vel þó menn séu frekar fórn­ar­lömb mann­drápa í heim­inum, þá tengj­ast morð á konum í mun meira mæli kynja­mis­rétti og staðalí­myndum kynj­anna. Samkvæmt skýrsl­unni eru slík morð oft­ast ekki ein­staka atvik heldur oft á tíðum „hæsta stig“ heim­il­is­of­beldis eða kyn­bund­ins ofbeldis.

Ljóst er að stjórn­völd um heim allan þurfi að grípa til mun víð­tæk­ari aðgerða ef taka skal á þessu vanda­máli, ef koma á í veg fyrir fleiri morð segir í skýrsl­unni. Nauð­syn­legt sé að stjórn­völd bjóði upp á fjöl­breytt­ari og sam­ræmd­ari þjón­ustu, þar sem lög­reglan, dóms­kerfið, heil­brigðis- og félags­þjón­usta vinna saman gegn kyn­bundnu ofbeldi. Í skýrsl­unni segir að auk þess þurfi karlar að taka meiri þátt í að berj­ast gegn kyn­bundnu ofbeldi, heim­il­is­of­beldi og leggja sitt af mörkum í að breyta þeim menn­ing­ar­legu við­miðum sem enn virð­ast ríkja um staðalí­myndir kynj­anna.

Kynbundið ofbeldi er heimsfaraldur

António Guterres, aðal­fram­kvæmd­ar­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, segir kyn­bundið ofbeldi vera heims­far­ald. Hann segir þetta vanda­mál svartan blett á öllum sam­fé­lögum heims­ins og helstu hindr­un­ina í öllum öðrum þró­un­ar­verk­efnum Sam­ein­uðu þjóð­anna í

til­kynn­ingu

sem hann birti í kjöl­far nið­ur­stöðu skýrsl­unnar.

Guterres segir að kyn­bundið ofbeldi taki á sig marg­vís­legar myndir, allt frá kyn­ferð­is­legri áreitni, heim­il­is­of­beldi, lim­lest­ingum á kyn­færum kvenna, man­sali til lífs­hættu­legra áverka sem leiða til dauða. Yfir­lýs­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um afnám ofbeldis gegn konum skil­greinir ofbeldi gegn konum sem ,,ofbeldi á grund­velli kyn­ferðis sem leiðir til, eða gæti leitt til, lík­am­legs, kyn­ferð­is­legs eða sál­ræns skaða eða þján­inga kvenna, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handa­hófs­kennda svipt­ingu frelsis, bæði í einka­lífi og á opin­berum vett­vangi.”

Guterres segir jafn­framt að ofbeldi gegn konum skaði ekki aðeins þolendur heldur hafi það einnig víð­tækar afleið­ingar á fjöl­skyldu og sam­fé­lög. Hann segir kyn­bundið ofbeldið vera póli­tískt mál­efni og segir það tengj­ast valdi og stjórnun í sam­fé­lag­inu okkur. „Í grunn­inn er ofbeldi gegn konum og stúlkum djúp­stæður skortur á virð­ingu. Að menn geti ekki við­ur­kennt jafn­rétti og borið virð­ingu fyrir konum, það er brot á grunn­mann­rétt­indum.“ segir í Gutteres að lokum.

Helmingur manndrápa á Íslandi tengjast heimilisofbeldi

Í Kynlegum tölum, árlegum bæk­ling mann­rétt­inda­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar, sem kom út í mars 2016 kemur fram að af þeim 16 konum sem myrtar voru á Íslandi á árunum 1980 til og með 2015 voru 11 þeirra myrtar af skyldum eða tengdum ein­stak­lingum sem þýðir að 69 pró­sent þeirra morða voru heim­il­is­of­beld­is­mál. Á síð­asta ári bár­ust lög­regl­unni 890 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi og 251 ein­stak­lingar dvöldu í Kvenna­at­hvarf­inu. Samkvæmt Kvenna­at­hvarf­inu var helm­ingur þeirra kvenna af erlendum upp­runa.

Brota­þolar heim­il­is­of­beldis eru 74,4 pró­sent konur, sam­kvæmt nið­ur­stöðum til­rauna­verk­efnis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Meiri­hluti þeirra kvenna voru á aldr­inum 21 til 40 ára eða um 55 pró­sent þeirra. Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að um 23 pró­sent þolenda heim­il­is­of­beldis séu konur af erlendum upp­runa frá tæp­lega 40 þjóð­löndum, lang­flestar frá Póllandi en þarnæst Víetnam og Tælandi.

„Hafi ofbeldi einu sinni verið beitt gegn maka ger­ist það nær örugg­lega aftur og stig­magn­ast nema gripið sé inn í með mark­vissum aðgerðum,“ segir á vef Jafn­rétt­is­stofu. Samkvæmt Jafn­rétt­is­stofu hefur ein af hverjum fimm þung­uðum konum á Íslandi upp­lifað heim­il­is­of­beldi. Það gera um 900 konur á ári. 

Heimilisofbeldi ekki einkamál

Lög­reglan á Íslandi skil­greinir ofbeldi sem heim­il­is­of­beldi ef það full­nægir tveimur skil­yrðum. Fyrri for­sendan er sú að ger­andi og brota­þoli teng­ist nánum böndum, séu t.d. skyld eða tengd. Til dæmis getur verið um að ræða núver­andi eða fyrr­ver­andi maka, fólk í hjóna­bandi eða sam­býl­is­fólk, börn, systk­ini, for­eldra eða for­ráða­menn. Seinni for­sendan er sú að það verður að vera um að ræða brot á hegn­ing­ar­lögum eða barna­vernd­ar­lögum s.s. lík­ams­árás, kyn­ferð­is­brot, hót­anir, eigna­spjöll, kúgun, vændi, man­sal eða hlið­stæð brot. Vett­vangur brots getur verið hvar sem er og ein­skorð­ast ekki við heim­ilið.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri segir í grein sinni á Jafn­rétt­is­stofu að miklir van­kantar hafi verið á kerfi lög­regl­unnar varð­andi heim­il­is­of­beld­is­mál áður en þeim var breytt nýlega. Samkvæmt Sigríði náði lög­reglan sjaldn­ast að ljúka rann­sókn þess­ara mála á full­nægj­andi hátt og ekki hafi náðst fram sak­fell­ingar þó svo að um mjög alvar­leg brot væri að ræða.

Samkvæmt grein Sigríðar er verk­lag­inu þannig háttað í dag að lög­reglan og félags­þjón­ustan eru í sam­starfi sem felst meðal ann­ars í því að lög­reglan óskar ávallt eftir aðstoð félags­þjón­ustu þegar um er að ræða útköll þar sem grunur leikur á að um heim­il­is­of­beldi sé að ræða. Til­gang­ur­inn sé að styrkja þolendur. Sigríður leggur áherslu á að kerfið verði að koma í veg fyrir end­ur­tekin brot og tryggja að þau mál sem komi upp fái greiða leið í gegnum kerfið. Hún segir að einn mik­il­væg­asti þátt­ur­inn í verk­lag­inu sé að tryggja að brota­þolar og ger­endur fái við­eig­andi og full­nægj­andi félags-, sál­ræna og lög­fræði­lega aðstoð.

Sigríður full­yrðir jafn­framt að heim­il­is­of­beldi sé ekki einka­mál sem rúm­ast innan frið­helgi heim­il­is­ins, heldur sam­fé­lags­legur harm­leikur. Hún segir að traust til lög­regl­unnar og kerf­is­ins verður að vera til staðar í þessum mála­flokki og að aðstoð, eft­ir­fylgni og stuðn­ingur mun leiða til þess að fleiri leiti sér hjálpar. 
„Skila­boðin eru skýr. Ofbeldi á ekki að líð­ast og ofbeldi gegn konum og börnum þarf aðra nálgun en hina hefð­bundnu kerf­isnálgun sem hefur verið allt of ríkj­andi hingað til,“ segir Sigríður að lokum.

Þetta er þjóðfélagslegt mein

Í júní á þessu ári var tekið upp nýtt verk­lag við mót­töku þolenda heim­il­is­of­beldis á bráða­deild Land­spít­al­ans. Hrönn Stef­áns­dóttir, verk­efn­is­stjóri á Neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis, sagði í við­tali við Vísi að verk­lagið myndi sam­ræma ferli sem fer af stað þegar kemur að mót­töku þolenda heim­il­is­of­beldis á bráða­deild. Markmið verk­lags­ins er að allir starfs­menn vinni saman í að taka vel á móti öllum og að þolendum líði ekki eins og þeir þurfi að taka „mjög þung skref“ til þess að leita til spít­al­ans. Meðal breyt­inga sem gerðar voru á verk­lag­inu er að nú þurfa þolendur ekki að bíða á bið­stof­unni eftir skoðun.

Á hverju ári leita að með­al­tali 130 til 150 konur á bráða­deild sem láta vita að þær sé að koma vegna áverka eftir heim­il­is­of­beldi en Hrönn telur að fjöldi þeirra sem koma þangað eftir heim­il­is­of­beldi sé hærri en töl­fræðin gefur til kynna. Þekkt er að ein­stak­lingar segi ekki frá því að ofbeldið hafi verið af hendi maka, fyrr­ver­andi maka eða ein­hvers sem þær eru í nánu sam­bandi við.

Hrönn segir þennan mála­flokk mjög mik­il­vægan og bendir á að fólk þurfi að kljást við afleið­ingar sem geta meðal ann­ars verið lík­am­legar, and­legar og fjár­hags­legar vegna ofbeld­is­ins allt sitt líf. „Það er sem betur fer verið að opna á þennan mála­flokk sem hefur alltaf verið til, en áður fyrr var talið að þetta væri einka­líf og trún­aður heim­il­anna. En þetta er það ekki. Þetta er þjóð­fé­lags­legt mein og hefur alvar­legar afleið­ingar fyrir þolendur og börn,“ segir Hrönn. 

Aðgerðir stjórnvalda

Á

heima­síðu

mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands segir: „Kyn­bundið ofbeldi brýtur gegn mann­rétt­indum og grund­vall­ar­frelsi kvenna. Yfir­völdum ber skylda til að leita allra leiða til að upp­ræta þann smán­ar­blett sem ofbeldi gegn konum er á íslensku sam­fé­lagi og tryggja stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi þeirra til mann­helgi og jafn­réttis.“

Heim­il­is­of­beldi er eitt af áherslu­mál­unum í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar. Ýmsar breyt­ingar hafa átt sér stað á síð­asta ári, nýtt verk­lag hefur verið komið á lagg­irnar hjá lög­regl­unni og ný mót­töku­stöð fyrir þolendur ofbeldis, Bjark­ar­hlíð, var opnuð en þar geta full­orðnir þolendur ofbeldis fengið sam­hæfða þjón­ustu og ráð­gjöf undir sama þaki.


Rík­is­stjórnin hefur einnig full­gilt Istanbúl-samn­ing­inn, sem er samn­ingur Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir og bar­áttu gegn heim­il­is­of­beldi og alls ofbeldi gegn konum. Ásamt því hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skipað stýri­hóp um heild­stæðar úrbætur er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Katrín sagði á ráð­stefnu um heim­il­is­of­beld­is­mál í októ­ber síð­ast­liðnum að of­beldi gegn kon­um sé or­sök eða af­leið­ing kynjam­is­rétt­is. Sam­fé­lagið þurfi að tak­ast á við þetta mis­rétti í öll­um sín­um birt­ing­ar­mynd­um.„Ég er ánægð með að jafn­rétt­is­mál eru ein af for­gangs­mál­um þess­ar­ar rík­is­stjórn­ar,“ sagði Katrín.

Ásmundur Einar Daðason félags og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra lagði einnig nýlega fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um áætlun fyrir árin 2019 til 2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleið­ingum þess. Áætlunin er víð­tæk og aðgerð­irnar snúa að mis­mun­andi birt­ingu ofbeldis í íslensku sam­fé­lagi. Í grein­ar­gerð­inni segir: „Alþingi álykti að ofbeldi sé alvar­legt þjóð­fé­lags­mein sem vinna þurfi gegn með öllum til­tækum ráðum. Meg­in­mark­mið stjórn­valda með aðgerða­á­ætl­un­inni verði að stuðla að vakn­ingu um mál­efnið með for­vörnum og fræðslu, bæta verk­lag og máls­með­ferð innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins og efla stuðn­ing við þolendur.“

Þú átt VON

Jafn­rétt­is­stofa hlaut styrk úr áætlun Evr­ópu­sam­bands­ins um rétt­indi, jafn­rétti og borg­ara­rétt til að standa straum að verk­efn­inu Byggjum brýr Brjótum múra – Samvinna í heim­il­is­of­beld­is­málum. Meg­in­mark­mið verk­efn­is­ins er að upp­ræta ofbeldi í nánum sam­böndum á Íslandi og er lagt upp með að til­kynn­ingum til lög­reglu muni fjölga um 20 pró­sent á þeim 30 mán­uðum sem verk­efnið stendur yfir.

Vit­und­ar­vakn­ingin ber tit­il­inn „Þú átt VON“ og er lögð áhersla á að sýna þolendum ofbeldis að það er von á betra lífi. Í vit­und­ar­vakn­ing­unni er lögð áhersla á að draga fram reynslu þolenda og ger­enda á að kom­ast út úr aðstæð­unum með stuðn­ingi fag­fólks og sýnd sú fjöl­breytta þjón­usta sem stendur fólki til­boða. Einnig er lögð áhersla á að gera úrræðin sýni­leg í sam­fé­lag­inu. Sérstök áhersla er lögð á við­kvæma hópa en sam­kvæmt rann­sóknum eru þeir einkum konur af erlendum upp­runa, konur með fötlun og konur sem eiga von á barni. Hluti af vit­und­ar­vakn­ing­unni eru mynd­bönd sem greina frá reynslu þolenda heim­il­is­of­beldis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár