Þórólfur segir útlit fyrir að við séum að ná tökum á stöðunni

Sótt­varna­læknir segir að lít­ill fjöldi nýsmita allra síð­ustu daga bendi til þess að far­ald­ur­inn hér inn­an­lands sé að verða við­ráð­an­legur. Hann lagði til til­slak­anir inn­an­lands og reif­aði val­kosti um aðgerðir á landa­mærum í minn­is­blaði til ráð­herra.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

„Það er ánægju­legt að sjá að ekk­ert inn­an­lands­smit greind­ist í gær,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag, en þó með þeim fyr­ir­vara að enn ætti eftir að greina sýni sem Íslensk erfða­grein­ing tók í Vest­manna­eyjum. Hann sagði tölur síð­ustu daga líta út fyrir að það væri að takast að koma böndum yfir hóp­sýk­ing­una sem hér fór á flug fyrir mán­aða­mót.[links]

Sótt­varna­læknir sagði okkur nú hafa lært að ein­ungis þyrfti einn smit­aðan ein­stak­ling til þess að koma af stað hópsmiti inn­an­lands, en flest þau smit sem greinst hafa und­an­farnar vikur hafa verið með sama upp­runa sam­kvæmt rað­grein­ingu jákvæðra sýna, þó að afbrigðin hafi raunar verið tvö. Um 4.700 manns komu til lands­ins í gær og voru yfir 3.000 sýni tekin á landa­mær­unum.

Með þetta í huga sagði Þórólfur að hann hefði lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að skimun yrði áfram beitt á landa­mærum í sam­bland við sótt­kví, ef við vildum virki­lega lág­marka áhætt­una á því að smit bær­ist hingað til lands­ins, en í minn­is­blað­inu reif­aði hann þó nokkra val­mögu­leika, kosti þeirra og galla út frá sótt­varna­sjón­ar­miðum.

Í minn­is­blað­inu, sem Þórólfur skil­aði til heil­brigð­is­ráð­herra í morgun, var einnig að finna til­lögur um áfram­hald­andi sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands, með til­slök­unum þó. Þórólfur segir ekki þörf á að herða aðgerðir inn­an­lands.

„Ef að tölur næstu daga sýna áfram að við höfum náð utan um þennan far­aldur sem er að ganga held ég að við ættum að geta til­tölu­lega fljótt farið að slaka á tak­mörk­unum hér inn­an­lands,“ sagði sótt­varna­læknir.

Hann hvatti þá sem eru með ein­kenni sem gætu bent til COVID-19 til þess að halda sig heima, hafa sam­band við heilsu­gæslu og láta fag­fólkið ákvarða hvort þörf væri á sýna­töku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár