Smitrakningunni „sjálfhætt“ ef fjöldi smita vex gríðarlega úr þessu

Miklar annir eru nú hjá smitrakn­ing­arteymi almanna­varna. Á bil­inu 180-200 þús­und not­endur eru með smitrakn­ing­ar­for­rit yfir­valda í símum sínum og það gæti reynst vel ef álagið verður svo mikið að rakn­ing­arteymið hafi ekki undan. Sem gæti gerst.

Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Jóhann Björn Skúlason, yfir­maður smitrakn­ingateymis almanna­varna. Mynd: Almannavarnir

Smitrakn­ing­arteymi almanna­varna hefur í nógu að snú­ast þessa dag­ana, enda fleiri kór­ónu­veirusmit að grein­ast en nokkru sinni síðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gerði inn­reið til Íslands í upp­hafi mars í fyrra.

„Við erum ekk­ert rosa­lega mörg. Eins og er höfum við undan, en það er alveg fyr­ir­séð að smitrakn­ing­arteymið geti ekk­ert höndlað þetta enda­laust. Ef töl­urnar aukast gríð­ar­lega, þá er þessu sjálf­hætt. En þá kannski getum við nýtt tækn­ina,“ segir Jóhann B. Skúlason, yfir­maður smitrakn­ing­arteymis almanna­varna í sam­tali við Kjarnann.[links]

Blaða­maður heyrði í Jóhanni til að fá svör við því hversu útbreidd notkun rakn­ing­ar­for­rits­ins Rakning C-19 er og því hvernig smitrakn­ingin gangi á þessum nýju tímum í far­aldr­inum, þegar níu af hverjum tíu full­orð­inna eru bólu­sett gegn COVID-19 og upp­lifa því ef til vill minni per­sónu­lega áhættu af hvoru tveggja því að smit­ast af veirunni og smita aðra í kringum sig.

Jóhann segir að not­endur rakn­ing­ar­for­rits­ins séu á bil­inu 180 til 200 þús­und tals­ins og meiri­hluti hafi upp­fært for­ritið í nýj­ustu útgáfu, sem er nauð­syn­legt til þess Bluetooth-teng­ing for­rits­ins við nær­stadda síma sem einnig eru með rakn­ingu í gangi virki sem skyldi.

Samfélagslega ábyrgt að vera með forritið uppsett

Hann hefur ekki áhyggjur af því að margir séu búnir að taka ákvörðun um að eyða hrein­lega for­rit­inu úr sím­anum sínum til þess að draga úr líkum á því að vera skikk­aðir í sótt­kví, en blaða­maður hefur heyrt úr all­nokkrum áttum að dæmi séu um að ungt fólk kjósi að vera ekki með rakn­ing­ar­for­ritið upp­sett af þeim sökum.

[adspot]

Jóhann seg­ist telja það sam­fé­lags­lega ábyrgt að vera með smitrakn­ing­ar­for­ritið í gangi. „Það eru sveiflur í öllu. Það tekur bara nokkrar sek­úndur að setja þetta app upp og ég geri ráð fyrir að það sé gríð­ar­leg aukn­ing í notkun á því núna. Ef þér sýn­ist svo, þá máttu nátt­úr­lega eyða því, en mér finnst lík­legt að þú setjir það upp aftur. Þarna færðu tæki­færi til að aðvara aðra og fá aðvar­anir, sem þú fengir ann­ars ekki,“ segir Jóhann.

„Þú svindlar ekki á veirunni“

Smitrakn­ing­arteymið hefur verið á þönum und­an­farna rúma viku og gær voru 2.243 manns komin í sótt­kví, sam­kvæmt opin­berum tölum. Allangt er síðan að veiru­far­ald­ur­inn hefur risið með þeim hætti sem hann gerir nú. Jóhann játar því að ein­hver dæmi séu um að fólk sé búið að gleyma því hvernig skuli bera sig að, ef fólk er skikkað í sótt­kví vegna útsetn­ingar gagn­vart smiti.

Á sama tíma séu þó fleiri sem viti nákvæm­lega um hvað þetta snýst.

„Ungt fólk um tví­tugt sem er í partíi þar sem smit kemur upp veit nákvæm­lega hvernig þetta virkar,“ segir Jóhann, en ein­hver dæmi eru um und­an­brögð, til dæmis að fólk vilji ekki að nöfn sín séu gefin upp til smitrakn­ing­arteym­is­ins og ætli að reyna að sleppa undan sótt­kvínni.

„Þá eru líkur á að þeir muni smit­ast og þá munu þeir bara smita ein­hverja aðra. Þú svindlar ekk­ert á þessu. Þú svindlar ekki á veirunni sko. Ef þú umgengst smit­aðan ein­stak­ling þá verður þú að halda þig til hlés og hitta engan í nokkra daga,“ segir Jóhann, sem reiknar með því að hafa í nógu að snú­ast næstu daga eins og þá síð­ustu.

„Við erum ekki að sjá nein merki um að það sé að hægj­ast á þessu. Þannig að ég hef veru­legar áhyggjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár