Húsnæðismarkaður að þorna upp en met slegin í útlánum

Nóvember var enn einn met­mán­uð­ur­inn í útlánum líf­eyr­is­sjóða til íbúð­ar­kaupa. Á sama tíma er fram­boð á íbúða­mark­aði að þorna upp og eignir selj­ast oft á sýn­ing­ar­degi. Nánast öll ný lán eru verð­tryggð.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu heim­ilum þess 80 millj­arða króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2016. Það er fjórum sinnum meira en þeir lán­uðu þeim allt árið 2015. Í nóv­em­ber einum saman, sem var met­mán­uður í útlánum líf­eyr­is­sjóða til heim­ila, lán­uðu þeir 9,6 millj­arða króna. Til sam­an­burðar þá er sú upp­hæð 82 pró­sent af því sem líf­eyr­is­sjóðir lán­uðu heim­ilum lands­ins allt árið 2014. Þetta kemur fram í hag­tölum Seðla­banka Íslands. Lánin sem sjóð­irnir veita eru fyrst og fremst lán til íbúð­ar­kaupa.

Á sama tíma er fram­boð hús­næðis að þorna upp, eignir selj­ast oft á sýn­ing­ar­degi og verðið hækkar bara og hækkar. Það þýðir að lánin sem þarf að taka hækka bara og hækka. Og lánin sem Íslend­ingar eru að taka eru nán­ast ein­vörð­ungu verð­tryggð lán, sem sveifl­ast með verð­bólgu­þróun.

Framboðið að þorna upp

Fast­eigna­verð á Íslandi hefur hækkað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Frá miðju ári 2010, þegar það náði lág­marki eftir hrunið, hefur verðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 68 pró­sent. Leigu­verð hefur hækkað um 60,1 pró­sent frá byrjun árs 2011. Mikill skortur er á fram­boði íbúð­ar­hús­næðis, meðal ann­ars vegna þess að síauk­inn fjöldi íbúða eru not­aðar til að hýsa þann mikla fjölda ferða­manna sem sækir Íslands heim á hverju ári, þar sem hefð­bundin gisti­rými eins og hótel anna ekki eft­ir­spurn. Á fundi sem hag­deild Íbúða­lána­sjóðs hélt í síð­ustu viku var meðal ann­ars fjallað um þörf­ina fyrir nýtt hús­næði. Þar sagði Sigurður Jón Björns­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar Íbúða­lána­sjóðs, að það væru skýr meri um að fram­boð eigna á hús­næð­is­mark­aði væru við það að þorna upp. Eignir selj­ist nú oft á sýn­ing­ar­degi sem sé óeðli­legt ástand. Sigurður sagði enn fremur að miðað við fjölda íbúða í land­inu, og að níu til tíu pró­sent þeirra skipti um hendur á ári og fjög­urra mán­aða veltu­hraða, þá ættu þrjú þús­und íbúðir að vera til sölu í dag. Talan sé hins vegar nær eitt þús­und. Þetta geti verið merki um ofhitun og Sigurður sagði að almenn­ingur ætti að stíga var­lega til jarðar.

Í þessu ástandi hafa líf­eyr­is­sjóðir sótt hratt inn á íbúða­lána­mark­að­inn. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á þeim mark­aði hefur auk­ist veru­lega eftir að nokkrir stórir sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arnir, óverð­tryggð lán og lægri lán­töku­gjöld á síð­ari hluta árs­ins 2015. Hlut­deild banka í slíkum lánum hefur að sama skapi dreg­ist saman. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2016 lán­uðu þeir sam­tals 67,8 millj­arða króna til heim­ila, að frá­dregnum upp­greiðslum og bíla­lánum.

Nánast allt verðtryggt

Nánast öllu lán sem veitt eru til íbúð­ar­kaupa hér­lendis á síð­asta ári voru verð­tryggð. Innan banka­kerf­is­ins voru 96 pró­sent lána, að frá­dregnum upp­greiðslum og bíla­lánum, verð­tryggð. Öll lán Íbúða­lána­sjóðs í almenn lán, sam­tals um 2,4 millj­arðar króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins, voru það líka.

Hjá líf­eyr­is­sjóð­unum er þró­unin svipuð og hjá bönk­unum. Af þeim 80 millj­örðum króna sem þeir lán­uðu til íbúð­ar­kaupa á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins voru 61,9 millj­arðar króna verð­tryggð lán, eða 77,4 pró­sent. Það þýðir að ein­ungis 22,6 pró­sent íbúða­lána sjóð­anna voru óverð­tryggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár