Vilja að ríkið borgi niður 500 milljarða lífeyrisskuld

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill að íslenska ríkið stór­auki greiðslur vegna ófjár­magn­aðra líf­eyr­is­skulda á næstu árum. B-deild LSR tæm­ist 2030 og greiðslur út úr henni falla þá á ríkið. Búið var að lofa að hefja greiðslur aftur í ár, en af því varð ekki.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill að greiðslur vegna ófjár­magn­aðra líf­eyr­is­skuld­bind­inga hins opin­bera verði stór­auknar á næstu árum. Hann vill að inn­borg­arnir til B-deildar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóðs hjúkr­un­ar­fræð­inga (LH) verði að minnsta kosti tíu millj­arðar króna á ári til að draga úr því höggi sem verður á rík­is­sjóð þegar sjóður deild­ar­innar tæm­ist árið 2030. Þá vill meiri­hlut­inn að fram­vegis verði líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hluti af ramma hvers mál­efna­sviðs við samn­ingu fjár­laga­frum­varps.

Hann vill líka flýta því veru­lega að hækka eft­ir­launa­aldur úr 67 árum í 70, en sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi til­lögum á að taka 24 ár fyrir hækk­un­ina að taka gildi að fullu. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem á að gilda frá 2017-2021.

Greiðslum hætt eftir hrunið

Ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hins opin­bera hafa verið risa­stórt vanda­mál í lengri tíma. Árið 1997 var A-deild LSR stofn­uð. Hún byggir á stiga­kerfi þar sem sjóðs­fé­lagi ávinnur sér rétt­indi miðað við greidd iðgjöld. Kerfið byggir á sjóðs­söfn­un. Þ.e. LSR safnar iðgjöld­um, ávaxtar þau og greiðir út í sam­ræmi við áunnin rétt­indi. Ef sjóð­ur­inn á ekki fyrir þeim hleypur ríkið undir bagga.

Á sama tíma var eldra kerfi sjóðs­ins, hin svo­kall­aða B-deild, LSR sér tvö pró­sent rétt­indi á ári miðað við fullt starf. Reglur LH eru áþekkar B-deild­inn­i. Þetta kerfi byggir að mestu á gegn­um­streymi fjár­magns, og ein­ungis að hLHenni blæðir enn mik­ið. Það var alltaf morg­un­ljóst að ríkið myndi þurfa að greiða háar fjár­hæðir með þessu gamla kerfi.

Þess vegna ákvað Geir H. Haar­de, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, árið 1999 að rík­is­sjóður skyldi hefja greiðslur til B-deildar LSR og LH umfram laga­skyldu. Mark­miðið var að milda höggið sem fram­tíð­ar­kyn­slóðir skatt­greið­enda myndu þurfa að þola vegna þess og koma í veg fyrir að sjóð­irnir tæmd­ust.

Árið 2008, eftir hrun­ið, var þessum við­bót­ar­greiðslum hins vegar hætt. Þá hafði rík­is­sjóð­ur, frá árinu 1999, alls greitt 90,5 millj­arða króna inn á úti­stand­andi skuld sína við B-deild LSR og LH. Í lok árs 2014 var sú fjár­hæð, upp­færð með ávöxtun sjóð­anna, orðin 231,8 millj­arðar króna. Því er ljóst að greiðsl­urnar skiptu veru­legu máli. Ef ekki hefði komið til þess­ara greiðslna væru sjóð­irnir tómir og allar greiðslur féllu nú þegar á rík­is­sjóð.

509 milljarða hít

Sam­tals voru skuld­bind­ingar umfram eignir hjá B-deild LSR og LH 509 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Allir fjár­munir sjóð­anna munu verða upp­urnir árið 2030 og eftir það falla greiðslur til sjóð­fé­laga beint á rík­is­sjóð. Til við­bótar er heild­ar­staða A-deildar LSR einnig nei­kvæð þótt staða hennar hafi ekki versnað á síð­ustu árum. Greiðslur vegna þeirra ófjár­mögn­uðu skuld­bind­inga falla líka að óbreyttu á rík­is­sjóð.

Í áliti meiri­hlut­ans, sem sam­anstendur af stjórn­ar­þing­mönnum fjár­laga­nefndar, segir að lítil umfjöllun sé um líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs í fjár­mála­á­ætl­un­inni. Getið sé um áform um að hefja að nýju inn­borg­anir til LSR, sem hefur ekki verið gert frá því fyrir banka­hrun. Það sé bráð­nauð­syn­legt enda hafi skuld­bind­ingar umfram eignir B-deildar sjóðs­ins auk­ist um 166 millj­arða króna frá árinu 2008 og standi nú í 509 millj­örðum króna. „Það er nálægt 50% hækkun á sama tíma og vísi­tala neyslu­verðs hefur hækkað um 40%. [...]Meiri hlut­inn leggur til að í næsta fjár­laga­frum­varpi verði að finna grein­ar­gott yfir­lit um stöðu þess­ara mála og að fram­vegis verði líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hluti af ramma hvers mál­efna­sviðs. Áætl­ana­gerð verði bætt þannig að auð­veld­ara verði að bregð­ast við aðstæðum og nýta þarf jákvæða stöðu rík­is­fjár­mála til þess að auka inn­borg­anir vegna B-deild­ar­innar þannig að þær verði a.m.k. 10 millj­arðar kr. árlega. Það er nauð­syn­legt til þess að draga úr því höggi sem rík­is­sjóður verður fyrir árið 2030 þegar sjóður deild­ar­innar tæm­ist og rík­is­sjóður þarf þá að fjár­magna sjóð­inn með 13 millj­arða kr. árlegum greiðslum vegna bak- ábyrgðar til að byrja með, til við­bótar öðrum 13 millj­örðum kr. vegna líf­eyr­is­hækk­ana eft­ir­launa­þega.“

Ríkið sleppur við greiðslur og fær skatt­tekjur á móti

Þegar verið er að meta skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs vegna opin­berra starfs­manna verður að hafa í huga að ríkið „slepp­ur“ við að greiða líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur úr almanna­trygg­inga­kerf­inu með því að borga þessar skuldir og hefur auk þess nokkuð háar skatt­tekjur af líf­eyr­is­greiðsl­um.

Stjórn LSR fékk í fyrra­vor Bene­dikt Jóhann­es­son trygg­inga­stærð­fræð­ing til að meta þetta sam­spil. Nið­ur­staða hans er sú að ríkið spari sér umtals­verðar fjár­hæðir, á annað hund­rað millj­arða króna, í líf­eyr­is­greiðslur og fái auk þess á þriðja hund­rað millj­arða króna í skatt­tekjur þegar það er búið að greiða upp skuld­ina.

Þá stendur samt sem áður eftir baká­byrgð rík­is­sjóðs. Þ.e. bein­harðir pen­ingar sem þarf að greiða í skulda­hít­ina og fást ekki aftur með sparn­aði í almanna­trygg­inga­kerf­inu eða með skatt­greiðsl­um. Á rík­is­stjórn­ar­fund­i í ágúst 2015 kom fram að þessi upp­hæð er áætl­uð, fyrir B-deild LSR og LH sam­an, 104,8 millj­arðar króna. Hún hefur hækkað síðan. Inn á þessa skuld þarf að hefja greiðsl­ur, ann­ars sitja fram­tíð­ar­kyn­slóðir uppi með tug millj­arða króna kostnað á ári frá 2030.

Bjarni sagðist ætla að byrja að borga en hætti við

Ljóst er að málið hefur verið á borði rík­is­stjórn­ar­innar í nokkuð langan tíma. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var mjög afdrátt­ar­laus í við­tali við Morg­un­blaðið þann 11. mars 2015. Fyr­ir­sögn for­síðu­fréttar blaðs­ins, sem vís­aði í við­talið, var „Fyr­ir­fram­greiða líf­eyr­inn“.

Í við­tal­inu sagði Bjarni að rík­is­sjóður myndi árið 2016 byrja að greiða inn á upp­safn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar opin­berra starfs­manna í fyrsta sinn frá efna­hags­hruni. Jafn­framt væri áformað að gera það árlega á næstu árum og að bætt staða rík­is­sjóðs gerði þetta mögu­legt. „Verði þetta ekki gert mun falla á rík­is­sjóð árleg gjald­færsla upp á um 20 millj­arða eftir tíu ár. Með þess­ari greiðslu og frek­ari greiðslum á næstu árum er ætl­unin að forða þessu og ýta því lengra inn í fram­tíð­ina,“ sagði Bjarni.

Það vakti því athygli þegar þessi greiðsla inn á baká­byrgð­ina var ekki sýni­leg í síð­ustu fjár­lögum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og spurði hvort það væri réttur skiln­ingur að ekki væri gert ráð fyrir greiðslum inn á skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs vegna B-deildar LSR og LH í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016. Í svari ráðu­neyt­is­ins sagði að svo væri.

Vantar 57 milljarða í A-deildina

Þetta er ekki eina málið sem snýr að opin­bera líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu sem þarf að taka á í nán­ustu fram­tíð. Það þarf einnig að grípa til aðgerða gagn­vart A-deild LSR. Heild­ar­staða hans, að teknu til­liti til fram­tíð­ar­ið­gjalda og skuld­bind­inga vegna þeirra, var nei­kvæð um 57,2 millj­arða króna, eða um 8,8 pró­sent af heild­ar­eign hans, um síð­ustu ára­mót. Í gildi er bráða­birgð­ar­á­kvæði sem heim­ilar sjóðnum að virði eigna hans megi vera allt að 15 pró­sent minna virði en fram­tíð­ar­skuld­bind­ingar hans.

Þetta bráða­birgða­á­kvæði, sem sett var í kjöl­far hruns­ins, fellur úr gildi á þessu ári, nánar til­tekið fyrir 1. októ­ber næst­kom­andi. Þá verður mun­ur­inn að vera innan fimm pró­senta. Í árs­skýrslu LSR segir: „Stjórn sjóðs­ins hefur tekið til skoð­unar mögu­legar leiðir til að bregð­ast við nei­kvæðri trygg­inga­fræði­legri stöðu A-deildar.“

Til að ná þessu marki er stjórn LSR skylt, sam­kvæmt lög­um, að hækka iðgjald launa­greið­enda, sem er íslenska ríkið. Auk þess hefur verið unnið að til­lögum um að hækka almennan eft­ir­launa­aldur úr 67 árum í 70 ár til að laga stöðu líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins í ljósi þess að Íslend­ingar eru að eld­ast hratt og lifa nú mun lengur en áður. Samkvæmt þeim til­lögum er gert ráð fyrir að hækk­unin standi yfir í 24 ár áður en að hún taki að fullu gildi.

Þetta telur meiri­hluti fjár­laga­nefndar vera allt of langan tíma og vill flýta hækk­un­ar­ferl­inu. Í áliti hans segir að „þetta sé allt of langur tími og full ástæða sé til að ná þess­ari óhjá­kvæmi­legu og nauð­syn­legu breyt­ingu á mun skemmri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár