Niðurstaða um stækkun Laugardalsvallar fyrir 1. apríl

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar, Reykja­vík­ur­borg og KSÍ hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu um skipun starfs­hóps um upp­bygg­ingu Laug­ar­dalsvallar.

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar, Reykja­vík­ur­borg og KSÍ hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu um skipun starfs­hóps um upp­bygg­ingu Laug­ar­dalsvallar.

[links]Hópurinn skal gera til­lögu um hvers konar leik­vangur yrði hag­stæð­astur í Laug­ar­dal af þeim kostum sem skoð­aðir hafa verið, fjár­mögnun og kostn­að­ar­skipt­ingu út frá þeirri hug­mynd sem verður fyrir val­inu, eign­ar­hald, mögu­lega aðkomu ríkis, borgar og KSÍ að verk­inu sem og til­högun frma­kvæmda og tíma­á­ætlun. Skal hóp­ur­inn skila til­lögum sínum fyrir 1. apríl á þessu ári.

Starfs­hóp­inn skipa Benedikt Árnason, skrif­stofu­stjóri, for­sæt­is­ráðu­neyti, for­maður, Anna Sigríður Arn­ar­dóttir, lög­fræð­ingur, fyrir hönd fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis, Óskar Þór Ármanns­son, sér­fræð­ingur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti, Hrólfur Jónsson, skrif­stofu­stjóri Eigna- og atvinnu­þró­unar, Reykja­vík­ur­borg, Ólöf Örv­ars­dóttir, sviðs­stjóri Umhverfis- og skipu­lags­sviðs, Reykja­vík­ur­borg, Ómar Ein­ars­son, sviðs­stjóri Íþrótta- og tóm­stunda­sviðs, Reykja­vík­ur­borg, Guðni Bergsson, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, Guðrún Inga Sívert­sen, vara­for­maður Knatt­pyrnu­sam­bands Íslands, Borg­hildur Sig­urð­ar­dóttir, stjórn­ar­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands. Ráðgjafi starfs­hóps­ins er Pétur Mart­eins­sonar, fram­kvæmda­stjóri Borg­ar­brags.

[adspot]Í frétta­til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að KSÍ hafi haft til skoð­unar um nokk­urt skeið mögu­lega upp­bygg­ingu Laug­ar­dalsvallar sem þjóð­ar­leik­vang fyrir knatt­spyrnu. „Í kjöl­far góðs árang­urs karla- og kvenna­lands­liða í knatt­spyrnu hefur farið fram umræða um stöðu Laug­ar­dalsvallar í alþjóð­legu sam­hengi en völl­ur­inn og mann­virki umhverfis hann stand­ast ekki alþjóð­legar kröfur. Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hefur und­an­farin miss­eri skoðað ýmsa mögu­leika til úrbóta og fyrir liggur hag­kvæmni­at­hugun þar sem sviðs­myndir vegna mögu­legrar upp­bygg­ingar eru kynntar. Ríki og Reykja­vík­ur­borg hafa stutt verk­efnið með fjár­fram­lögum, m.a. vegna kostn­að­ar­grein­ingar,“ segir í til­kynn­ing­unni. Nú þegar liggi fyrir hag­kvæmni­at­hugun, rekstr­ar­á­ætlun, for­hönnun og kostn­að­ar­mat mann­virkja liggi fyrir að leggja mat á und­ir­bún­ings­gögnin og taka ákvörðun um fram­hald máls­ins.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og Guðni Bergsson, for­maður KSÍ, und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár