Fáðu veitingastaðinn heim

Safnað fyrir gerð bókar sem inni­heldur upp­skriftir frá vin­sæl­ustu veit­inga­stöðum lands­ins.

Cooking with Fire & Ice er upp­skrifta­bók með upp­skriftum frá vin­sæl­ustu veit­inga­stöðum Reykja­víkur.

Bókin mun kynna veit­inga­staði og upp­skrift frá hverjum og einum sem hægt er að gera heima og verður gefin út á íslensku og ensku. Þrír ein­stak­lingar standa að gerð bók­ar­innar: Rob Tasker, Söndru Björk Sig­urð­ar­dóttur og Tansu Iliyaz. Þau safna nú fyrir gerð hennar á Karolina fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin vakn­aði vegna þess að við höfum mik­inn áhuga á veit­inga­stöðum og elda­mennsku, en árið hefur verið sér­lega slæmt fyrir veit­inga­rekstur á Íslandi. Rót­grónir veit­inga­staðir eins og Osta­búðin og Dill, eini veit­inga­staður á Íslandi til þess að vinna sér inn Michelin Stjörnu, þurftu að leggja niður rekstur.

[adspot]Við vildum finna til þess að auka umræð­una um að fara út að borða, til þess að fagna þeirri mat­ar­menn­ingu sem er í Reykja­vík og upp kom þessi hug­mynd að gefa út bók.

Það eru fullt af mis­mun­andi upp­skrifta­bókum á mark­að­inum, hvað myndi láta þessa standa upp úr rest­inni?

Upp­skrift­irnar.

Hug­myndin er að sýna veit­inga­staði sem Íslend­ingar, sem og ferða­menn, sækja í.

Það besta við þessa bók er það að þú þarft ekki að vera lista­kokkur til þess að geta fylgt henni eftir, við erum með upp­skriftir frá fjöl­breyttum veit­inga­stöðum á mis­mun­andi erf­ið­leika­stigum.

Viltu upp­skrift af upp­á­halds borg­ar­anum þínu? Við erum með hana.

Viltu upp­skrift frá veit­inga­staðnum sem þú ferð bara á við sér­stök til­efni, sem þarf að panta borð með dágóðum fyr­ir­vara? Við erum líka með hana.

Veit­inga­stað­irnir sem við höfum haft sam­band við hafa verið yfir sig hrifin af þess­ari hug­mynd. Þessi bók er sam­starf og fögn­uður þeirrar miklu mat­ar­menn­ingar sem er í borg­inni.

Við erum að von­ast eftir að koma þessum skemmti­lega hluta af íslenskri menn­ingu í öll eld­hús heims­ins, en það er erfitt og stórt verk­efni, og þess vegna viljum við reyna á mátt hóp­fjár­öfl­unar.“

Segið okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Aðalþema bók­ar­innar er mat­ar­menn­ing Reykja­víkur og fjöl­breyti­leik­ann sem þar er að finna. Þetta er ekki bara hákarl og svið eins og túrist­inn heldur. Við vildum taka saman það sem gerir mat­ar­menn­ing­una svona sér­staka. Bókin inni­heldur eitt­hvað fyrir alla, sama hverjir hæfi­leik­arnir í eld­hús­inu eru.

Við höfðum miklar áhyggjur af því að við myndum fá mikið af eins upp­skriftum, en fjöl­breyti­leik­inn sem við höfum fengið er framar okkar björt­ustu vonum. Þetta er ekki eins og margar upp­skrifta­bækur sem sýna eina teg­und af mat, heldur hefur hún gamlar góðar klass­ískar íslenskar upp­skriftir yfir í diska með japönsku yfir­bragði. Full­komin blanda af upp­skriftum fyrir hvert til­efni.“

Þeir veitingastaðir sem eru staðfestir eru:

  • Bike Cave
  • Bryggjan Brugghús
  • Burro Tapas + Steaks
  • Café Loki
  • The Coocoo's Nest
  • Grillið
  • Íslenski bar­inn
  • Kola­brautin
  • LAMB Street Food
  • La Prima­vera
  • Mat­ar­kjall­ar­inn
  • Messinn
  • Public House Gastropub
  • Slipp­bar­inn
  • Snaps Bistro
  • Sæmundur í Spari­föt­unum in Kex Hostel
  • Tapas Barinn
  • Valdís

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár