Tíu staðreyndir um titringinn innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

1. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, réð Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur í emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júlí 2015. Stefán Eiríks­son hafði áður sinnt emb­ætt­inu, en hann miklar hrær­ingar urðu innan lög­regl­unnar í kjöl­far Leka­máls­ins, sem end­aði með því að Hanna Birna lét af störfum sem ráð­herra í nóv­em­ber sama ár.

2. Sigríður Björk var líka inn­vinkluð í Leka­málið og kom það ekki í ljós fyrr en hún var tekin við emb­ætt­inu í Reykja­vík. Hún hafði sent grein­ar­gerð lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu. Sú grein­ar­gerð varð meðal ann­ars kveikjan að minn­is­blað­inu sem Gísli Freyr lak í fjöl­miðla og mark­aði upp­haf Leka­máls­ins.

3. Sigríður Björk hafði náð miklum árangri við upp­ræt­ingu heim­il­is­of­beldis og kyn­ferð­is­brota í gamla umdæmi sínu, en hún var áður lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum. Verk­efnið „Haldið glugg­anum opnum“ vakti mikla athygli og sneri að eft­ir­fylgni og árvekni lög­regl­unnar þegar kemur að heim­il­is­of­beld­is­málum. Hún lét það strax í ljós að hún mundi halda þessum áherslum áfram innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það hefur skilað góðum árangri.

4. Eitt af fyrstu verkum Sigríðar Bjarkar í emb­ætti var að breyta skipu­riti og verk­lagi innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Meðal ann­ars voru þeir Jón H. B. Snorra­son, sak­sókn­ari lög­reglu, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri, og stað­geng­ill Stefáns, og Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri fluttir til innan emb­ætt­is­ins.

5. Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, aðal­lög­fræð­ingur lög­regl­unnar, fékk fyrir slysni afrit af tölvu­póstum á milli Ara Matth­í­as­sonar Þjóð­leik­hús­stjóra og Jóns H.B. Snorra­sonar aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra í jan­úar. Um var að ræða einka­sam­skipti, en Ari og Jón eru vinir. Jón ætl­aði að áfram­senda póst­inn til Aldísar Hilm­ars­dóttur, en sendi óvart á Öldu Hrönn. Alda kvart­aði til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna póst­anna, þar sem henni þóttu þeir niðr­andi. Málið end­aði á for­síðu DV þar sem því var slegið upp að Ari hefði talað um „kvendi“ í pósti sínum, en það var rangt. Fréttin var leið­rétt. Stundin greinir frá.

6. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra lét vinnu­sál­fræð­ing meta sam­skipta­vand­ann innan lög­regl­unnar. Skýrsla sál­fræð­ings­ins hefur ekki verið gerð opin­ber, en henni var skilað í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Stundin greindi frá því að sál­fræð­ing­ur­inn, Leifur Geir Haf­steins­son, hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skýrar vís­bend­ingar væru um sam­starfs- og sam­skipta­vanda innan lög­regl­unnar og að brýnt væri að ráð­ast taf­ar­laust í aðgerðir með aðstoð utan­að­kom­andi fag­að­ila. Tveimur öðrum sál­fræð­ingum far síðan falið að fylgja ráð­legg­ingum Leifs eftir með frek­ari við­tölum.

7. Sautján lög­reglu­menn höfðu í jan­úar síð­ast­liðnum kvartað til Lands­sam­bands lög­reglu­manna vegna sam­skipta­vanda þeirra við Sigríði Björk.

8. Aldís Hilm­ars­dóttir, fyrr­ver­andi yfir­maður fíkni­efna­deildar, hefur stefnt rík­inu vegna lög­reglu­stjór­ans. Sigríður Björk færði Aldísi til í starfi fyrr á árinu og í stefn­unni segir að til­færslan hafi verið ólög­mæt og sak­næm. Þá er Sigríður Björk einnig sökuð um í ítrekað ein­elti og ófag­lega starfs­hætti. Aldís krefst þess að til­færsla hennar í starfi verði dæmd ólög­mæt og ógild og vill fá 2,3 millj­ónir króna í skaða­bætur. Til­færsla Aldísar í starfi kom í kjöl­far máls innan fíkni­efna­deildar lög­regl­unnar, þar sem starfs­maður þar var sak­aður um brot í starfi. Hann var síðar hreins­aður af öllum sökum, sem fólu meðal ann­ars í sér ásak­anir um spill­inu og óeðli­leg sam­skipti við þekktan brota­mann. Hér­aðs­sak­sókn­ari komst að þeirri nið­ur­stöðu að skýra mætti málið að ein­hverju leyti með per­sónu­legum ágrein­ingi og sam­skipta­örð­ug­leikum innan emb­ætt­is­ins. Sigríður Björk hefur ekki viljað tjá sig um málið.

9. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Björk hafði brotið með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu­laga með því að víkja mann­inum úr starfi. Ekki hafi legið nægi­lega sterk rök fyrir því og hún hafi byggt ákvörðun sína á orðrómi frekar en gögnum.

10. Þessi sami starfs­maður fíkni­efna­deildar hefur nú lagt fram kæru á hendur öðrum fyrr­ver­andi starfs­manni fíkni­efna­deildar, lög­fræð­ingi, fyrir rangar sak­ar­giftir. RÚV greinir frá því að kæran hafi verið send lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir um mán­uði síðan. Þá ætlar hann einnig að stefna Sigríði Björk fyrir að víkja sér úr starfi og krefja hana um miska­bætur, er fram kemur á vef RÚV. Þá kemur fram að lög­mað­ur­inn sem hefur verið kærður hefur verið ráð­inn sem afleys­inga­maður hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi og starfar þar þrátt fyrir að sæta rann­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár