Íslendingar keyptu sumarhús fyrir næstum 10 milljarða árið 2020

Metár var á mark­aði með sum­ar­hús í fyrra. Við­skipti hafa aldrei verið fleiri og aldrei hefur jafn miklu fé verið varið til kaupanna, sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá. Svipað var uppi á ten­ingnum í Noregi, á þessu ári veiru og vaxta­lækk­ana.

Sumarhús gengu kaupum og sölum fyrir tæpa 10 milljarða á Íslandi í fyrra.
Sumarhús gengu kaupum og sölum fyrir tæpa 10 millj­arða á Íslandi í fyrra.

Sumarhús hafa aldrei gengið kaupum og sölum fyrir hærri fjár­hæðir en þau gerðu á Íslandi í fyrra, en þá vörðu lands­menn tæpum 9,8 millj­örðum króna í sum­ar­hús, sam­kvæmt nýjum tölum um fast­eigna­við­skipti frá Þjóðskrá.

Árið 2019 keyptu Íslend­ingar sum­ar­hús fyrir tæpa 6,5 millj­arða og því er um rösk­lega 50 pró­sent aukn­ingu að á milli ára ára. Fjöldi við­skipta jókst mikið, en alls var 485 kaup­samn­ingum um sum­ar­hús þing­lýst árið 2020, sam­an­borið við 338 árið 2019.

Með­al­verð sum­ar­húsa sem keypt voru árið 2020 nam tæpum 20,2 millj­ónum króna, tæp­lega milljón krónum meira en árið 2019.

Fyrra metár hvað fjölda sum­ar­húsa­kaupa og upp­hæðir sem varið var til kaupanna var árið 2017, en þá voru 402 sum­ar­hús keypt fyrir tæpa 7,4 millj­arða króna. Þá nam með­al­verðið um 18,4 millj­ónum króna.

Vaxtalækkanir og breyttar ferðavenjur

Ísland er ekki eyland þegar kemur að aukn­ingu í við­skiptum með sum­ar­hús. Á haust­mán­uðum var tölu­vert fjallað um það í Noregi að sum­ar­bú­staða­mark­að­ur­inn, eða „hyttu“-mark­að­ur­inn þar í landi, væri í hæstu hæðum. Fast­eigna­miðl­arar höfðu ekki upp­lifað annað eins.

[adspot]

Í umfjöllun Fin­ansa­visen frá því í sept­em­ber var þetta skýrt með lágu vaxta­stigi og breyttum ferða­venjum – sem hvoru tveggja eru beinar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Peningar sem áður voru not­aðir í utan­lands­ferðir eru nú not­aðir í hyttur,“ var haft eftir fast­eigna­sala.

Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum seld­ust 85 pró­sent fleiri hyttur heldur en á sama tíma­bili árið 2019 og heilt yfir árið voru við­skipti með sum­ar­húsin norsku um það bil fjórð­ungi fleiri en verið hafði fram að þeim tíma árið. Samkvæmt umfjöllun Dagens Nær­ingsliv var búist við áfram­hald­andi sterkum hyttu-mark­aði inn í árið 2021.[links]

Metvelta á fasteignamarkaði almennt

Þjóðskrá birti í gær upp­lýs­ingar um veltu á fast­eigna­mark­aði eftir lands­hlutum fyrir árið 2020. Fjöldi fast­eigna sem gekk kaupum og sölum á land­inu öllu var 13.887 tals­ins og var upp­hæð við­skipt­anna í heild um 667 millj­arðar króna þegar miðað er við útgáfu­dag­setn­ingu.

Þegar árið 2020 er borið saman við árið 2019 fjölgar kaup­samn­ingum um 15,3 pró­sent og velta hækkar um 22,6 pró­sent. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgar samn­ingum um 15,3 pró­sent á milli ára og velta hækk­aði um 21,9 pró­sent.

Hlut­falls­leg veltu­aukn­ing á sum­ar­húsa­mark­aði skákar því veltu­aukn­ing­unni sem almennt varð á fast­eigna­mark­aðnum hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár