Vegagerðin leggst gegn friðlýsingu Minjastofnunar á vegstæði Sundabrautar

Átök um legu Sunda­brautar hafa tekið á sig harð­ari mynd. Vega­gerðin hefur nú lagst gegn frið­lýs­ingu Minja­stofn­unar og segir ljóst að allir val­kostir Sunda­brautar muni setja forn­minjar í hættu. Mót­væg­is­að­gerðir gætu náð fram sömu mark­miðum.

Uppdráttur sem sýnir afstöðu Sundabrautar og friðlýsingarsvæðisins.
Upp­dráttur sem sýnir afstöðu Sunda­brautar og frið­lýs­ing­ar­svæð­is­ins. Mynd: Skjáskot úr bréfi Vegagerðarinnar dagsett 25. september 2020.

Vega­gerðin leggst gegn frið­lýs­ingu Minja­stofn­unar Íslands við Þerney og Álfsnes, en gert er ráð fyrir því að síð­­­­­ari áfangi Sunda­brautar liggi frá Gufu­­­nesi, um Geld­ing­ar­nes, yfir Leiru­vog, Gunn­u­­­nes, Álfs­­­nes og Kolla­­­fjörð.

[links]Í bréfi sem Vega­gerðin sendi Minja­stofnun, og er dag­sett 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, segir að ljóst sé að veg­línur Sunda­brautar um Gunnunes og Álfsnes muni hafa áhrif á forn­leifar. „Vega­gerðin hefur leit­ast við að draga sem mest úr þeim áhrifum með breyt­ingum á veg­línum ein­stakra val­kosta. Allir val­kostir Sunda­brautar fara að ein­hverjum leyti um minja­svæði Glóru, þær forn­minjar eru því í hættu. Gera má ráð fyrir að gerð verði krafa um mót­væg­is­að­gerðir við frek­ari und­ir­bún­ing fram­kvæmda sem geta m.a. falist í ítar­legum forn­leifa­rann­sóknum áður en til fram­kvæmda kemur eins og hefð­bundið er.“

Vega­gerðin segir í bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, að ljóst sé að ekki verði miklir mögu­leikar á breyt­ingum á veg­línu Sunda­brautar um Gunnunes og Álfsnes en að hún muni, í sam­ráði við Reykja­vík­ur­borg, skoða mögu­leika á að minnka áhrif á minja­svæðið við Glóru enn frekar. „Vega­gerðin leggst því gegn frið­lýs­ing­unni eins og svæðið er afmarkað og skil­greint i erindi Minja­stofn­unar. Vega­gerðin telur að með við­eig­andi mót­væg­is­að­gerðum ásamt breyt­ingum á afmörkun svæð­is­ins sé hægt að ná fram mark­miðum frið­lýs­ing­ar­innar varð­andi menn­ingar- og búsetu­lands­lag við Þern­eyj­ar­sund. Þannig sé hægt að kom­ast hjá því að raska áformum um lagn­ingu Sunda­brautar í sam­ræmi við áætl­anir stjórn­valda og skipu­lags­á­ætl­anir Reykja­vík­ur­borgar.“

Borgin og Vegagerðin sama sinnis

Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber að að Vega­­gerðin hefði sent bréf til Minja­­stofn­unar vegna máls­ins í byrjun þess mán­aðar. Þar var áformum Minja­­­stofn­unar um frið­­­lýs­ingu við Þerney og Álfs­­­nes mót­­mælt, en gert er ráð fyrir að síð­­­­­ari áfangi Sunda­brautar liggi frá Gufu­­­nesi, um Geld­ing­ar­nes, yfir Leiru­vog, Gunn­u­­­nes, Álfs­­­nes og Kolla­­­fjörð. Orð­rétt sagði í bréf­inu að frið­lýs­ingin geti „haft veru­­leg áhrif á lagn­ingu Sunda­braut­­ar“.

[adspot]Ebba Schram borg­­ar­lög­­maður Reykja­vík­­­ur­­borgar sendi í kjöl­farið Minja­­stofnun bréf með athuga­­semdum borg­­ar­innar á ætl­­aðri frið­­lýs­ingu.

Í bréf­inu, sem er dag­­sett 9. sept­­em­ber, var kallað eftir mati stofn­un­­ar­innar á því hvort hægt sé að tryggja vernd minja á svæð­inu með öðrum hætti en frið­­lýs­ingu.

Ef áform Minja­­stofn­unar um frið­­lýs­ingu yrðu að veru­­leika þá myndi sú frið­­lýs­ing, að mati borg­ar­inn­ar, ná yfir ætlað vegstæði Sunda­brautar og setja þá fram­­kvæmd, miðað við þá val­­kosti sem nú eru til skoð­unar um legu henn­­ar, í upp­­­nám.

Minja­stofnun Íslands svar­aði því til að áform hennar um frið­lýs­ingu ætti ekki að hindra lagn­ingu Sunda­braut­ar. Við gerð frið­lýs­inga­til­lög­un­ar, fyrr á árinu, hefði verið tekið til­lit til þeirra val­kosta sem lágu fyrir varð­andi lagn­ingu braut­ar­innar á þann hátt að frið­lýs­ingin úti­lok­aði ekki gerð henn­ar.

Nú er ljóst að Vega­gerðin er að öllu leyti ósam­mála þeirri afstöðu og hefur form­lega lagst gegn frið­lýs­ing­unni.

Sunda­braut verið á dag­­­skrá í ára­tugi

Ára­tugir eru síðan að Reykja­vík­­­­­ur­­­borg og íslenska ríkið settu fyrst fram áform um að leggja Sunda­braut. Veg­­­ur­inn hefur raunar verið hluti af aðal­­­­­skipu­lagi Reykja­vík­­­­­ur­­­borgar frá árinu 1985 og inni á vega­­­skrá sem fyr­ir­hug­aður þjóð­­­vegur frá 1995.

Í sam­­­göng­u­á­ætlun fyrir árin 2020-2034, sem sam­­­þykkt var á Alþingi í lok júní síð­­­ast­lið­ins, er lagn­ing Sunda­brautar inni. Sam­hliða voru sam­­­þykkt lög sem heimil að Vega­­­gerðin geti gert samn­ing við einka­að­ila um fjár­­­­­mögn­un, fram­­­kvæmd, við­hald og rekstur Sunda­braut­­­ar, enda er fram­­­kvæmdin ekki fjár­­­­­mögnuð á sam­­­göng­u­á­ætl­­­un.

Sam­­­þykkt ofan­­­greindra laga og sam­­­göng­u­á­ætl­­­unar var hluti af stærra sam­komu­lagi um að flýta sam­­­göng­u­fram­­­kvæmd­um, meðal ann­­­ars á for­­­sendum svo­­­kall­aðs sam­­­göngusátt­­­mála höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­is­ins sem fjallar um hvernig kostn­að­­­ar­­­skipt­ing við stór­fram­­­kvæmdir þar verður á milli ríkis og sveit­­­ar­­­fé­lag­anna sem mynda svæð­ið. Í þeim sátt­­­mála er þó ekki talað ákveðið um Sunda­braut þurfi að verða að veru­­­leika held­ur að við end­an­­­lega útfærslu fram­­­kvæmda verði „sér­­­stak­­­lega hugað að greiðri teng­ingu aðliggj­andi stofn­brauta svo sem Sunda­brautar inn á stofn­brautir höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minjar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár