Hópur sálfræðinga og geðlækna segir Trump óhæfan í embætti

Í opnu bréfi lýsir hópur sér­fræð­inga þungum áhyggjum af and­legu ástandi Donald Trumps. Geð hans sé svo óstöðugt að hann ætti hrein­lega ekki að gegna valda­mesta emb­ætti heims.

Í opnu bréfi sem 33 banda­rískir geð­læknar, sál­fræð­ingar og félags­ráð­gjafar skrif­uðu er varað við því að and­legt ástand Donalds Trump, for­seta lands­ins, sé þannig að hann sé „ófær að gegna emb­ætti for­seta á öruggan máta“. Sögðu sér­fræð­ing­arnir að hegðun Trumps og orða­notkun „bendi til þess að hann sé ófær um að finna til sam­kenndar með fólki.“

Í bréf­inu, sem séfræð­ing­arnir sendu til New York Times, kemur einnig fram að sú hegðun for­set­ans að „bjaga raun­veru­leik­ann“ til þess að hann komi heim og saman við „goð­sagna­kenndar hug­myndir hans um eigin mik­il­feng­leik“, auk til­hneig­ingar til þess að ráð­ast á þá sem and­mæla honum með stað­reyndum, sé lík­leg til þess að magn­ast upp eftir að hann tekur við völdum.

Ástæðan fyrir því að sér­fræð­ing­arnir hafa ekki tjáð sig fyrr er sögð vera hluti af siða­reglum sam­taka geð­lækna í Banda­ríkj­unum, hin svo­kall­aða Goldwater-regla. Þar er hvatt til þess að geð­læknar gefi ekki fag­legt álit sitt á opin­berum ein­stak­lingi sem þeir hafa ekki rann­sakað per­sónu­lega.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár