Það felst uppreisn í því að lesa bók

Arndís Þórarins­dóttir segir barnabóka­höfunda óhjá­kvæmilega alltaf einni kynslóð á eftir sér, að skrifa um sína barnæsku fyrir börn dagsins í dag og eru þannig í eltingar­leik við samtímann, að reyna að ná utan um hann og skilja hann. Hún segir freistandi að smætta vandamál barna í dag og kenna snjall­símum einum um þau. Vanda­málið sé hins vegar ekki svo einfalt.

Ekki sanngjarnt
Ekki sann­gjarnt Arndís segir freist­andi að finna ein­föld svör við erf­iðum spurn­ingum hvað varðar börn. Það sé því ekki sann­gjarnt að áfell­ast börn þó orða­forði þeirra hafi tekið breyt­ingum. Mynd: Hörður Sveinsson

Arndís Þórarins­dóttir er ein okkar fremstu barnabóka­höfunda, en hún hefur unnið Íslensku bókmennta­verðlaunin í flokki barna- og ungmenna­bóka, og bók hennar Kollhnís er tilnefnd til barna- og unglinga­bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs. Arndís hefur skrifað um blokkir á heimsenda, nærbuxna­verksmiðjur og fimleika­drengi, en á dögunum kom út nýjasta bók hennar og Huldu Sigrúnar Bjarna­dóttur, Mömmu­skipti.

Heimildin ræddi við hana um áhyggjur full­orðinna af lestri barna, rétt barna til einkalífs, og ósk hennar um frekari átök í barna­bókum. Allt saman yfir heitu tei í múmínbolla.

Barnabóka­skrif eru svolítið áhugaverður gjörn­ingur vegna lesenda­hópsins. Börn eru jú þjóð­félagshópur sem við tilheyrðum öll einu sinni en fæstir barnabóka­höfundar tilheyra enn þá.

A: „Já, þetta er innbyggð þverstæða. Barnabóka­höfundar eru óhjá­kvæmilega einni kynslóð á eftir sér, við erum alltaf að skrifa um okkar barnæsku, en frá því að ég var barn seint á síðustu öld hefur mikið breyst. Þar er maður alltaf í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár