Tíu staðreyndir um rafbílavæðingu á Íslandi

1. Fjöldi raf­bíla á Íslandi fimm­fald­að­ist á tæpum tveimur árum, frá jan­úar 2014 til sept­em­ber í fyrra. Þeir voru þá orðnir yfir 500 tals­ins en eru nú orðnir meira en 800. Tvinn­bíl­arnir svoköll­uðu, þeir bílar sem ganga bæði fyrir raf­magni og bens­íni, eru vin­sælli og voru síð­asta haust um 1.500 tals­ins.

2. Orka nátt­úr­unnar, dótt­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur, á og rekur þrettán hrað­hleðslu­stöðvar á land­inu. Flestar eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en einnig eru stöðvar á Akureyri, Borg­ar­nesi, Selfossi, Fitjum, Akranesi og sú nýjasta er við Hell­is­heið­ar­virkjun. Hér er hægt að sjá hvort þær séu í lagi eða ekki.

3. Noregur er með hæsta hlut­fall raf­bíla í heimi, en 22,4 pró­sent bíla­flota Norð­manna eru raf­bílar. Það er engin til­viljun, því norsk stjórn­völd ákváðu að auka hvatann fyrir not­endur raf­bíla, til dæmis með lækkun tolla á raf­bílum, veita gjald­frjáls bíla­stæði, búa til sér­stakar akreinar fyrir umhverf­is­væna bíla og veita ókeypis aðgang í gegn um tolla­hlið.

4. Það tekur um það bil hálf­tíma að hlaða raf­bíl um 80 pró­sent með hrað­hleðslu­stöð. Alla raf­bíla er hins vegar hægt að hlaða í venju­legri inns­tungu (220 til 240 volt) og tekur þá að jafn­aði um fjóra til átta tíma að full­hlaða bíl­inn ef raf­hlaðan er alveg tóm.

5. Mann­virkja­stofnun mælir með því að eig­endur raf­bíla komi fyrir sér­stakri inns­tungu heima fyrir sem henti sér­stak­lega fyrir raf­bíla. Leið­bein­ingar um það má nálg­ast hér.

6. Það er tölu­vert ódýr­ara að keyra raf­bíl heldur en bens­ín­bíl. Samkvæmt raf­bíla­reikni Orku­set­urs kostar 3,18 krónur að keyra Nissan Leaf raf­bíl. Til sam­an­burðar kostar 12,06 krónur á kíló­meter að keyra Toyota Yaris, sem eru mjög eyðslu­grannir bílar.

7. Vin­sæl­ustu raf­bíl­arnir á íslenskum mark­aði eru meðal ann­ars raf­bílar Nissan, Golf, Tesla.

8. Einn eft­ir­sótt­asti, og dýr­asti, raf­magns­bíll­inn á mark­aðnum er Teslan. Þegar nýjasta mód­elið var kynnt opin­ber­lega í Los Angeles í Banda­ríkj­unum í apríl síð­ast­liðnum var búið að leggja inn um 250 þús­und pant­anir á tveimur sól­ar­hringum. Hver bíll kost­aði um 35 þús­und doll­ara, eða um 4,3 millj­ónir króna. Þetta var langódýrasta Teslan til þessa. Model 3 Tesla verður til­búin til afhend­ingar í lok árs 2017.

9. Það eru um 50 Teslur á göt­unni á Íslandi. Fyr­ir­tækið Even sér­hæfir sig í sölu á raf­bílum á Íslandi. Á heima­síðu þeirra er verð­skrá yfir Tesla Model S og kostar sá ódýr­asti 11,7 millj­ónir króna. Dýrasta týpan kostar 17,55 millj­ónir. Fyrstu 5 Model X, sem eru rafjeppar, koma til lands­ins í ágúst og sept­em­ber. Til sam­an­burðar má taka fram að ein­ungis tíu Teslur keyra um götur Indlands.

10. Í raf­bílum eru mun færri hlutir sem geta bilað heldur en í venju­legum bens­ín­bíl. Í raf­bílum eru oft­ast ein­ungis þrír til fjórir hreyf­an­legir hlutir í mótor, en oft meira en þús­und í bensín- eða dísel­vél og gír­kassa, er fram kemur á vef­síðu Even.

Uppfært 25. júlí klukkan 14.45: Sjöundi liður var upp­færður og við bætt á list­ann raf­bílum Volkswagen Golf. Tesla og Zoe voru tekin út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár