Mynd: Davíð Þór

Börn hælisleitenda utanveltu í íslensku skólakerfi

Paul Ramses Odour segir að sérstök deild fyrir börn hælis­leitenda, flótta­manna og innflytjenda gæti verið til bóta fyrir börn í þessari viðkvæmu stöðu, enda hafi hann þá reynslu að börnin verði utanveltu í íslensku skóla­kerfi og standi ekki jafnfætis íslenskum samnemendum sínum. Sérfræðingar telja þetta þó brot á lögum um skóla án aðgreiningar. Það ætti frekar að styrkja skólana til að taka betur á móti börnum í þessari stöðu.

Nú á dögunum birtust fréttir þess efnis að stofna ætti nýja stoðdeild við Vogaskóla í Reykjavík, fyrir börn hælis­leitenda, flótta­fólks og í einhverjum tilvikum innflytjenda. Deildin á að vera tíma­bundin lausn að hámarki níu mánaða og á að sinna móttöku og aðlögun barna í þessari stöðu ásamt því að veita sérstakan stuðning. Helga Helga­dóttir, deildar­stjóri sérkennslu í Vogaskóla, sagði í samtali við frétta­stofu RÚV á dögunum að hún telji stofnun deildarinnar brjóta í bága við lög um grunn­skóla og Barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Lögin segja til um að á grunn­skólastigi eiga allir nemendur rétt á að stunda skyldunám í almennum grunn­skólum án aðgreiningar.“

Paul Ramses Odour, sem var veitt hæli á Íslandi 2010 og á nú börn í íslenska skóla­kerfinu, segir þó að slík sérdeild gæti verið til bóta fyrir börn í þessari stöðu. Það byggir hann á reynslu sinni af íslenska skóla­kerfinu. 

Streitan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár