Ekki allir sáttir um að þing eigi að starfa áfram

Formenn stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi gátu ekki sam­mælst um hvort þing ætti að starfa áfram fram að kosn­ingum eða ekki. Annar fundur verður hald­inn í vik­unni.

Unnur Brá Konráðsdóttir er forseti Alþingis.
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir er for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Engin eig­in­leg nið­ur­staða varð á fundi for­manna stjórn­mála­flokk­anna sem eiga sæti á Alþingi síð­degis í dag. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, boð­aði til fund­ar­ins til þess að ræða áfram­hald­andi þing­störf eftir að Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur sam­þykkt til­lögur um þing­rof.

[links]Á fund­inum ræddu for­menn­irnir um þau mál sem þingið ætti að taka til umfjöll­unar á þeim sex vikum sem eru til stefnu áður en nýtt þing verður kjörið. Úr varð að nokkur mál verða sett í ferli. For­menn­irnir ætla svo að hitt­ast á morgun og hinn og ræða saman frekar.

Ekki eru allir á eitt sáttir um að þing eigi að starfa þar til kosn­ingar fara fram, um það voru höfð orða­skipti á fund­inum. Skiln­ingur ríkir milli allra for­manna flokk­anna að fjár­lögin verði ekki til umfjöll­unar fyrir kosn­ingar. Þau verði að vinna eins og í fyrra, í nóv­em­ber og des­em­ber.

Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að nú sé málum þannig fyrir komið að það þarf að ríkja ein­hugur um þau mál­efni sem þarf að taka á dag­skrá.

Meðal þeirra mála sem ákveðið var að setja í ferli voru mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­manna, þe. útlend­inga­lögin. Meiri­hluti fund­ar­manna var, að sögn Loga, á þeirri skoðun að búa ætti til miklar end­ur­bætur á útlend­inga­lög­unum.

[adspot]

Þá var tekin ákvörðun um að þing­flokks­for­menn skoð­uðu frum­varp Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur um að komið verði í veg fyrir að menn sem framið hafa ákveðin lög­brot geti starfað sem lög­menn.

Forseta þings­ins var jafn­framt falið að lesa yfir frum­varp um not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð, NPA-úrræðið svo­kall­aða. Í sam­tali við mbl.is sagði Unnur Brá að þau mál sem for­menn­irnir hafi getað sam­mælst um að skoða frekar séu komin í far­veg. „[...]þegar þeirri athugun er lokið hitt­umst við að nýju á mið­viku­dag­inn og reynum að átta okkur á því hvernig við getum haldið áfram.“

Bjarni Bene­dikts­son til­kynnti um þing­rofið á stuttum þing­fundi í dag og þannig hefur verið form­lega boðað til kosn­inga og þing rofið 28. októ­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár