Alþingi rofið 28. október

Þing­fundur stóð aðeins í nokkrar mín­útur þar sem Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra las upp bréf for­seta þess efnis að þing verði rofið í lok októ­ber.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þing verður rofið þann 28. októ­ber næst­kom­andi og munu þing­kosn­ingar fara fram sam­dæg­urs. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra las upp á Alþingi bréf for­seta þess efnis en hann gekk á fund Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta á Bessa­stöðum fyrir hádegi þar sem hann fékk und­ir­ritun hans við þing­rofs­beiðn­inni.

Þing­fundur byrj­aði kl. 15:30 og lauk nokkrum mín­útum síðar. „Við þekkjum öll aðdrag­anda þess að ég hef í dag lagt fyrir for­seta þetta bréf sem ég hef hér lesið upp. Það forms­at­riði er hér með upp­fyllt að bréfið sé til­kynnt á Alþingi til að það taki þar með gildi,“ sagði Bjarni eftir að hann las bréfið. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, sleit þing­fundi strax á eftir.

Í þing­rofi felst heim­ild hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds­ins (for­seta Íslands að til­lögu for­sæt­is­ráð­herra) til að stytta kjör­tíma­bil Alþingis en Alþingi er kjörið til fjög­urra ára í senn. Frá því að stjórn­ar­skránni var breytt 1991 er með þing­rofi í reynd verið að ákveða kjör­dag því að það tekur ekki gildi fyrr en á kjör­degi. Með breyt­ing­unni 1991 var einnig þeirri skipan komið á að landið verður aldrei þing­manns­laust þar sem þing­menn halda umboði sínu til kjör­dags.

Þrátt fyrir birt­ingu til­kynn­ingar um þing­rof lýkur störfum Alþingis ekki fyrr en þingið hefur sam­þykkt til­lögu um frestun á störfum sínum fram að kjör­degi. Eftir að birt hefur verið til­kynn­ing um þing­rof þarf að halda nýjar þing­kosn­ingar innan 45 daga frá útgáfu til­kynn­ing­ar­innar og nýtt Alþingi skal koma saman eigi síðar en tíu vikum eftir kjör­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár