Viðvörunarbjöllur hringt í þrjú ár

Flestir voru í fasta­svefni er hrikta tók í stoðum Champlain Towers South-bygg­ing­ar­innar. Svo tóku hæð­irnar þrettán að falla ein af annarri. Rétt eins og veik­byggð spila­borg. Sextán hafa fund­ist látin og 149 er enn leitað.

Í fyrstu virt­ist ekk­ert athuga­vert við Champlain Towers South-bygg­ing­una í bænum Surfside í Suður-Flórída er verk­taki, sem ætl­aði að gera til­boð í end­ur­bætur á sund­laug­ar­svæði hennar, lit­að­ist þar um á þriðju­dag í síð­ustu viku. Sund­laugin og nán­asta umhverfi hennar var hrein og leit út fyrir að vera vel við haldið.

En síðan fór hann ofan í kjall­ara þar sem m.a. er að finna stýri­búnað fyrir sund­laug­ina. Hann leit einnig inn í bíla­kjall­ar­ann við hlið­ina. Og þar lá vatn yfir öllu. Verk­tak­inn tók svo eftir sprungum í steyp­unni og tærðu steypu­styrkt­ar­járni – beint undir sund­laug­inni.

36 klukku­stundum síðar var bygg­ingin hrunin til grunna. Inni voru tugir íbúa og enn, fimm sól­ar­hringum eftir slysið, er enn 144 þeirra saknað.

Verk­tak­inn lýsir þessu í sam­tali við dag­blaðið Miami Herald. Hann hafði ætlað sér að bjóða í lít­inn hluta umfangs­mik­illa og dýrra fram­kvæmda sem voru fyrir höndum í hinu fjöru­tíu ár gamla húsi.

Er hann gekk um bíla­kjall­ar­ann tók hann eftir að vatnið var mest í kringum einn stað: Bíla­stæði nr. 78. Samkvæmt teikn­ingum af hús­inu var það stæði beint undir sund­laug­inni. Það er líka á sama stað og tekið var sér­stak­lega fyrir í eft­ir­lits­skýrslu verk­fræð­ings­ins Frank Morabito árið 2018. Morabito sagði hönn­un­ar­galla í bygg­ing­unni valda því að vatn kæm­ist um steypuna sem gæti valdið stór­skaða á styrkt­ar­stoðum.

Verk­tak­inn segir við Miami Herald að í stjórn­her­bergi laug­ar­innar, sem er við hlið bíla­kjallar­ans, hafi hann einnig komið auga á vanda­mál. Þar stóðu steypu­styrkt­ar­járn úr út steyp­unni í loft­inu og voru farin að tær­ast. Hann tók myndir af þessu og sendi á yfir­mann sinn og lýsti áhyggjum af umfangi verks­ins sem þeir ætl­uðu sér að gera til­boð í. Það yrði að öllum lík­indum flókn­ara og stærra í sniðum en þeim hafði upp­haf­lega verið sagt.

Einn turninn hrundi til grunna en annar hrundi að hluta.
Einn turn­inn hrundi til grunna en annar hrundi að hluta.

Innan við tveimur sól­ar­hringum síðar var bygg­ingin hrunin og þó enn sé ekki búið að rann­saka til fulls hvað olli því spyr verk­tak­inn hvort að skemmd­irnar undir sund­laug­inni geti að minnsta kosti hafa átt hlut að máli.

Umsjón­ar­maður bygg­ing­ar­innar á tíunda ára­tug síð­ustu aldar sagði í við­tali við CBS að sjór hefði stöðugt lekið inn í kjall­ar­ann og í það miklu magni að „dælur höfðu aldrei við“. Vatn, ýmist úr sjónum eða sund­laug­inni, hefur því lík­ast til verið óvinur Champlain Towers South í fleiri ár.

Félagið sem á húsið vildi ekki bregð­ast við orðum verk­tak­ans er Miami Herald leit­aði eftir því. Verk­fræð­ingar sem blaðið hafði sam­band við og skoð­uðu myndir verk­tak­ans segja að skemmd­irnar sem á þeim sjá­ist gætu án efa verið vís­bend­ingar um ástand steypunnar og styrkt­ar­járn­anna á öðrum stöðum í hús­inu, m.a. þeim sem síðar gaf sig undan þunga þess. Einn þeirra bendir þó á að algengt sé að járn og yfir­borðs­fletir verði fyrir áhrifum af kemískum efnum sem notuð eru í sund­laugar og líti verr út. Annar bendir á að þótt svæðið sem verk­tak­inn fór um og leit illa út hafi ekki hrunið geti það hafa valdið því að önnur svæði, minna skemmd, hafi snú­ist eða hallað og und­ir­stöð­urnar því orðið fyrir óeðli­legu álagi.

Fleiri kenn­ingar eru á kreiki um ástæður hruns bygg­ing­ar­innar. Sífellt fleiri fréttir um ábend­ingar og áhyggjur af stöðu húss­ins hafa verið að birt­ast vest­an­hafs. Maðkur virð­ist líka í mys­unni þegar kemur að þeim upp­lýs­ingum sem gefnar voru stjórn Champlain Tower fyrir þremur árum. Í kjöl­far frum­skýrslu verk­fræð­ings sem rann­sak­aði bygg­ing­una árið 2018 og komst m.a. að því að í henni mætti finna „meiri­háttar skemmdir“ fékk stjórn húss­ins hins vegar þær upp­lýs­ingar frá bygg­ing­ar­yf­ir­völdum í Surfside að það væri í „mjög góðu ástandi“. Skýrsla verk­fræð­ings­ins benti ekki til þess að bygg­ingin væri að hruni komin en í henni var engu að síður farið yfir til hvaða við­halds þyrfti nauð­syn­lega að grípa. Kostn­að­ur­inn við það hljóp á millj­ónum Banda­ríkja­dala.

Nýverið birti svo New York Times bréf frá for­manni sam­bands fjöl­býl­is­húsa á svæð­inu til félags­manna sinna þar sem hann lýsti „alvar­legum áhyggjum“ af bygg­ing­unni. Bréfið sendi hann þremur mán­uðum áður en húsið hrundi.

Rannsókn stendur yfir og þrýst­ingur er á yfir­völd að hún gangi hratt fyrir sig og sýni fram á óyggj­andi nið­ur­stöður. Skipa á sér­stakan kvið­dóm til að rann­saka málið líkt og for­dæmi eru fyrir í sam­bæri­legum slysum í Banda­ríkj­unum.

BJörgunarmenn vinna í kapphlaupi við tímann að færa til brak í leit að lífi í rústunum.
BJörg­un­ar­menn vinna í kapp­hlaupi við tím­ann að færa til brak í leit að lífi í rúst­unum.

Það eiga margir um sárt að binda. Sextán hafa fund­ist látnir og þeirra 149 sem er saknað er enn leitað í rúst­unum. Vonin dofnar. Hundruð björg­un­ar­manna, víðs­vegar að úr heim­inum, taka þátt. Síðustu daga hefur vinna þeirra m.a. falist í því að flytja til brak í rúst­unum. Þegar er búið að færa til hund­ruð þús­unda tonna. Það er ekki hættu­laus vinna og þarf að ger­ast af ítr­ustu varúð sam­kvæmt leið­bein­ingum fær­ustu verk­fræð­inga. Rúst­irnar eru hættu­legar. Brakið er í háum hraukum sem geta fallið við minnstu mis­tök.

„Mark­miðið er að sjálf­sögðu að kom­ast að því hvað gerð­ist og hvernig megi koma í veg fyrir að þetta end­ur­taki sig,“ sagði blaða­full­trúi Hvíta húss­ins, Jen Psaki, í við­tali í nótt. Stór­slysið, sem gæti orðið meðal þeirra mann­skæð­ustu af þessum toga í Banda­ríkj­unum, hefur enda vakið ugg í brjóstum fólks sem býr í fjöl­býl­is­húsum sem byggð voru á svip­uðum tíma, þ.e. á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Íbúar í Suður-Flórída, á svæð­inu þar sem bygg­ingin stóð, krefj­ast þess að gengið verði úr skugga um að þeirra hús séu örugg.

Hluti bygg­ing­ar­innar, turn­inn sem kenndur er við suður, tók að hrynja undir morgun fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. Þá voru flestir íbúar enn í fasta svefni. Svo virð­ist sem hver hæðin á fætur annarri, frá þeirri neðstu og til þeirrar efstu, hafi hrunið. Bygg­ingin taldi þrettán hæðir.

Í dag og í gær hafa ást­vinir þeirra sem grafnir eru í rúst­unum fengið að koma að þeim og fylgj­ast með björg­un­ar­störfum um stund. Og til að syrgja. „Ég elska þig!“ hrópa sumir að hús­inu til ást­vina sinna sem þeir vita ekki hvort eru lífs eða liðnir inni í haugum braks­ins. „Gerðu það, komdu út. Ég bíð eftir þér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár