Píratar tapa mest á Panamaskjölunum

Píratar mæl­ast með 27 pró­senta fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi og hafa ekki mælst eins lágt í heilt ár. Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur bæta við sig fylgi síðan í byrjun apríl. Fylgið hagg­ast ekki hjá Sam­fylk­ingu.

Flug Pírata virðist vera að lækka eftir afhjúpun Panamaskjalanna - þó að flokksmenn hafi hvergi verið nefndir í því samhengi.
Flug Pírata virð­ist vera að lækka eftir afhjúpun Panama­skjal­anna - þó að flokks­menn hafi hvergi verið nefndir í því sam­hengi. Mynd: Birgir Þór

Fylgi Pírata hefur fallið um níu pró­sentu­stig síðan fyrsti Kast­ljóss­þátt­ur­inn um Panama­skjölin var birtur. Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn, Björt fram­tíð og Viðreisn hafa bætt við sig fylgi, Vinstri græn mest, þó að fylgi þeirra hafi dreg­ist saman um tvö pró­sentu­stig milli síð­ustu tveggja kann­anna. Þetta sýnir nýjasti Þjóð­ar­púls Gallup.

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig

Fram kemur í Þjóð­ar­púls­inum að helstu breyt­ingar frá síð­ustu könnun sem gerð var um miðjan apríl séu að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bæti aftur við sig eftir tölu­vert fall og mælist fylgi flokks­ins nú svipað og í könn­unum frá júní 2015 til byrj­unar apríl 2016. Breyting á fylgi ann­arra flokka sé til­tölu­lega ómark­tæk á milli síð­ustu tveggja kann­anna.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins féll úr tólf pró­sentum í sjö pró­sent á milli fyrstu kann­anna, en síð­asta könnun sem Gallup gerði dag­ana 14. til 28. apríl sýna að flokk­ur­inn bætir við sig á ný og er kom­inn upp í ell­efu pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig fjórum pró­sentu­stigum síðan í mars og er nú orð­inn stærsti flokk­ur­inn, með 27 pró­senta fylgi.

Ríflega 37 pró­sent segj­ast myndu styðja rík­is­stjórn­ina í könnun Gallup, en það er aukn­ing um þrjú pró­sentu­stig frá fyrri könnun.

Rösklega átta pró­sent svar­enda segj­ast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og næstum átta pró­sent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Píratar súpa Panamaseyðið

Síðan Panama­skjölin komust í umræð­una hefur fylgi Pírata dreg­ist mest saman, þrátt fyrir að þeir þrír sitj­andi þing­menn flokks­ins hafi verið full­kom­lega ósnertir af Panama­skjöl­unum. Fylgi flokks­ins hefur verið í hæstu hæðum und­an­farna mán­uði og mest hefur hann mælst með yfir 40 pró­sent, þó ekki hjá Gallup. Í mars var fylgið 36,1 pró­sent hjá Gallup, og hefur aldrei mælst hærra, en það hefur farið hríð­lækk­andi síðan fyrstu fréttir úr Panama­skjöl­unum voru birtar og er nú komið niður í 27 pró­sent. Fylgið hefur farið yfir til Vinstri grænna, sem hefur auk­ist á sama tíma um sjö pró­setu­stig, Sjálf­stæð­is­flokks, sem hefur auk­ist um fjögur, og Bjartrar fram­tíðar, sem hefur aukið fylgi sitt um tvö pró­sentu­stig.

Vinstriflokkarnir lækka flugið á ný

Fylgi Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar dróst saman á milli síð­ustu tveggja kann­anna sem gerðar voru í apríl. Dagana 7. til 12. apríl mæld­ust Vinstri græn með 20 pró­sent og Sam­fylk­ing með níu pró­sent. Í nýj­ustu könn­un­inni mæld­ust VG með 18 pró­sent og Sam­fylk­ing með átta pró­sent. Þó að fylgi VG hafi minnkað um tvö pró­sentu­stig hefur flokk­ur­inn samt tekið stökk eftir Panama­skjölin og leiða má líkur að því að það fylgi komi hvað mest frá Pírötum. VG var með 12 pró­senta fylgi í mars og hefur því bætt sex pró­sentu­stigum við sig. Flokk­ur­inn hefur líka, eins og Píratar, verið ósnertur af Panama­skjöl­unum.

Ekkert haggast hjá Samfylkingu

Panama­lek­inn er ekki að gera neitt fyrir fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar. Gjald­keri flokks­ins sagði af sér í tengslum við málið en fleiri teng­ingar hafa ekki verið gerðar á milli flokks­manna og Panama­skjal­anna. Í sam­an­burði við tengsl Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks eru tengslin afar lítil. En það skilar flokknum engu fylgi og mælist hann í stöð­ugum átta til níu pró­sentum, fyrir og eftir lek­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár