Fjórðungur smitaðra óbólusettur

Að minnsta kosti 255 óbólu­settir ein­stak­lingar hafa greinst með kór­ónu­veiruna hér á landi á þremur vikum. Tæplega 750 smit, um 72 pró­sent, eru hjá full­bólu­settum.

Um 85 prósent Íslendinga sextán ára og eldri eru bólusett
Um 85 pró­sent Íslend­inga sextán ára og eldri eru bólu­sett Mynd: EPA

Það sem af er júlí hafa að minnsta kosti 1.059 inn­an­lands­smit greinst. Fjóra daga í röð hafa vel yfir 100 hund­rað smit greinst á hverjum sól­ar­hring. Mestur var fjöld­inn, miðað við upp­færðar tölur á COVID.is í fyrra­dag, er 129 manns reynd­ust smit­aðir af veirunni. Aldrei hafa fleiri greinst á einum degi frá upp­hafi far­ald­urs.

Að minnsta kosti 255 óbólu­settir ein­stak­lingar hafa greinst með kór­ónu­veiruna hér á landi á þremur vikum. Óbólu­settir eru fjórð­ungur allra sem greinst hafa frá 9. júlí. Tæplega 750 smita, um 72 pró­sent, eru hjá full­bólu­settum.

[adspot]

Í gær voru smitin að minnsta kosti 112 en miðað við reynslu síð­ustu sól­ar­hringa gæti sú tala átt eftir að hækka þar sem tafir hafa verið á grein­ingu sýna og úrvinnslu upp­lýs­ing­anna. Yfir 4.300 sýni voru tekin inn­an­lands í gær og var hlut­fall jákvæðra ein­kenna­sýna tæp 3,4 pró­sent.

Á einni viku hafa átta greinst með veiruna á landa­mær­unum, þar af sjö óbólu­settir.

Þriðjungur nýgreindra óbólusettur

Ef síð­ustu fjórir sól­ar­hringar eru skoð­aðir með til­liti til hvort inn­an­lands­smitin hafi verið hjá bólu­settum eða óbólu­settum kemur í ljós að hlut­fall óbólu­settra var hæst í gær, fimmtu­dag. Af þeim 112 sem að minnsta kosti greindust með COVID-19 voru 35 óbólu­settir eða þriðj­ungur. Á mið­viku­dag var hlut­fall óbólu­settra meðal nýgreindra um 27 pró­sent.

[links]Ein stærsta breyt­ingin sem orðið hefur í bylgj­unni sem nú gengur yfir og þeim fyrri er hversu fáir eru í sótt­kví við grein­ingu. Alla daga frá 14. júlí hefur innan við helm­ingur greindra verið í sótt­kví og suma dag­ana mik­ill minni­hluti. Veiran hefur einnig greinst í öllum lands­hlutum, þótt smitin séu lang­fæst á Aust­ur­landi, á Vest­fjörðum og á Norð­ur­landi vestra.

Um 85 pró­sent Íslend­inga sextán ára og eldri eru bólu­sett. Miðað við íbúa­fjölda á land­inu í byrjun árs eru rétt tæp 70 pró­sent allra lands­manna bólu­sett. Það þýðir einnig að um 30 pró­sent, eða um 114 þús­und manns eru það ekki. Fjöl­menn­asti hóp­ur­inn er vit­an­lega börn enda mæla íslensk sótt­varna­yf­ir­völd enn sem komið er aðeins með bólu­setn­ingu 16 ára og eldri. Það kann að breyt­ast á næst­unni og lík­legt þykir að mælt verði með bólu­setn­ingu barna á aldr­inum 12-15 ára. Tæplega 10 pró­sent þess ald­urs­hóps er þegar full­bólu­settur.

Flest smitin í þess­ari fjórðu bylgju far­ald­urs­ins hafa greinst hjá fólki á aldr­inum 18-29 ára. Um 40 pró­sent allra sem eru í ein­angrun núna eru á þeim aldri. Að minnsta kosti 105 eru yfir sex­tugu og 132 börn yngri en sautján ára.

Í gær lágu tíu manns á Land­spít­al­anum með COVID-19 sjúk­dóm­inn. Tveir voru á gjör­gæslu, báðir óbólu­settir.

Alma Möller land­læknir ítrek­aði á upp­lýs­inga­fundi í gær að rann­sóknir sýndu að bólu­setn­ing dragi „sem betur fer“ mikið úr veik­indum og því „alveg ljóst“ að staðan væri mun alvar­legri ef ekki væri vegna bólu­setn­inga.

„Við erum öll búin að leggja mikið á okkur og árangur hefur verið góður og þess vegna viljum við ekki hætta á neitt og biðjum fólk að fara var­lega, virða óviss­una þannig að við missum ekki þennan góða árangur.“

Alma sagði að auð­vitað hefðu heil­brigð­is­yf­ir­völd þó áhyggjur af stöð­unni. Vonir standi til að „línur skýrist“ á næstu dögum eða viku en að við séum enn á þeim stað að meta hversu mikil veik­indi þeirra sem eru að sýkj­ast nú verða. Vonir væru bundnar við að veik­indi fólks verði minni en í fyrri bylgju og legu­tím­inn styttri. „Við tökum einn dag í einu,“ sagði hún, og „þangað til stöndum við auð­vitað áfram saman, hugsum hvert um annað og reynum að gera það besta úr hlut­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár